16:05
Síðdegisútvarpið
Fósturforeldrar Oscars Florez,Trump og Harvard,Eliza Reid og K.Óla tekur lagið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Aðstandendur Oscars Florez ásamt samtökunum No Borders stóðu fyrir mótmælum fyrir utan dómsmálaráðuneytið í dag. Þess var krafist að Oscari verði veitt dvalarleyfi hér á landi en til stendur að vísa honum úr landi. Hjón í Hafnarfirði Svavar Jóhannsson og Sonja Magnúsdóttir vilja taka að sér hinn sextán ára gamla Oscar og þau komu til okkar.

Harvard-háskóli hefur lagt fram kæru gegn stjórn Bandaríkjanna vegna ákvörðunar Donalds Trumps forseta um að frysta fjárveitingar til skólans. Forsetinn og háskólinn hafa eldað grátt silfur saman að undanförnu eftir að háskólinn neitaði að fara að kröfum Trumps um víðtækar breytingar á stjórnarháttum, ráðningum og inntökuferli skólans. Í nýjum pistli sem birtist á Eyjunni um Páskan kemur Sigmundur Ernir þingmaður meðal annars inn á þetta. Þar sem hann talar um að Akademískt frelsi sé að baki. Tjáningarfrelsi sömuleiðis. Og að vegið sé að samfélagi fjölmiðla og háskóla sem aldrei fyrr. Við ræddum við Sigmund Erni Rúnarsson.

Við hringdum stuttlega í Elizu Reid á en í kvöld er höfundakvöld á vegum Iceland Writers Retreat í Norræna húsinu. Elíza sagði okkur betur frá því.

Tónlistarkonan K.Óla eða Katrín Helga Ólafsdóttir kom til okkar og tók lagið í beinni.

Árni Friðleifsson aðalvarðstjóri lögreglunnar á Höfuðborgasvæðinu ræddi við okkur um nagladekkjanotkun.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,