18:00
Kvöldfréttir
Valkyrjur hefja viðræður, herlög í Suður-Kóreu, níu Sólheimamenn dæmdir í fangelsi

Fréttir

Kvöldfréttir útvarps

Valkyrjurnar eru komnar til að sjá og sigra, sagði formaður Flokks fólksins eftir fyrsta fund hennar og formanna Samfylkingarinnar og Viðreisnar um nýja ríkisstjórn. Stjórnarmyndunarviðræður hefjast á morgun.

Níu af átján sakborningum í Sólheimamálinu svokallaða fengu óskilorðsbundna fangelsisdóma. Fátítt er að svo margir þurfi að afplána í sama máli.

Forseti Suður-Kóreu setti á herlög í landinu í dag. Hann sakar stjórnarandstöðuna um að vera hliðholla stjórnvöldum í Norður-Kóreu.

Úkraínumenn sárvantar auknar loftvarnir til að verjast árásum Rússa á orkuinnviði landsins. Þetta sagði utanríkisráðherra Úkraínu á fundi NATO-ríkjanna í dag.

Var aðgengilegt til 03. desember 2025.
Lengd: 10 mín.
,