18:00
Kvöldfréttir útvarps
Forsætisráðherra boðar minni hækkanir, forsetinn um gervigreind, tækniskólinn, skriðuhætta, mótmæli og þjóðarhöll

Fréttir

Fréttir

Forsætisráðherra segir þurfa samstillt átak til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Hún tilkynnti í dag að krónutölugjöld og gjaldskrár ríkisins hækki um tvö og hálft prósent um áramót en ekki fimm komma tvö prósent 5,2% eins og gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi.

Gervigreindin má ekki ógna samfélaginu á sama tíma og stríð og átök ógna heimsfriði, segir forseti Íslands, sem hefur boðað til samtals milli kynslóða.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að skipa viðræðuhóp sem fái umboð til að semja við Tækniskólann um uppbyggingu nýs tækniskóla í Reykjavík.

Viðvaranir vegna skriðuhættu eru í gildi á Suðausturlandi, Austfjörðum og sunnanverðu miðhálendinu þar til í fyrramálið.

Fjöldi ungmenna hefur síðustu daga mótmælt slæmum aðbúnaði í frönskum skólum. Kveikt hefur verið í ruslatunnum og öðru og lögregla hefur þurft að skerast í leikinn.

Lítið má út af bregða í byggingu Þjóðarhallar því verklok eru áætluð tæpu ári áður en flautað verður til leiks á heimsmeistaramótinu í handbolta, sem verður að hluta haldið hér á landi.

Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 10 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,