
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Heiðrún Helga Back flytur.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Plata vikunnar er #1 Record, fyrsta plata bandarísku hljómsveitarinnar Big Star sem gefin var út vorið 1972. Þetta er eina platan sem stofnandinn Chris Bell tók þátt í að gera. Hann spilaði á gítar og samdi helming laganna. Hinir meðlimir Big Star á þessum tíma voru söngvarinn og gítarleikarinn Alex Chilton, sem hafði verið í Box Tops, bassaleikarinn Andy Hummel og trommuleikarinn Jody Stephens, sem er eini eftirlifandi meðlimur Big Star.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Hlið 1
1. Feel
2. The Ballad of El Goodo
3. In the Street
4. Thirteen
5. Don't Lie to Me
6. The India Song
Hlið 2
1. When My Baby's Beside Me
2. My Life Is Right
3. Give Me Another Chance
4. Try Again
5. Watch the Sunrise
6 ST 100/6

Umsjón: Stefán Jónsson.
Stefán Jónsson ræðir við Gísla Þorsteinsson bónda, Geirshlíð, Guðmund Kristjánsson, Hörðubóli, Elínu Guðmundsdóttur húsfreyju, Bæ, Miðdölum, Guðjón Ásgeirsson, Kýrunnarstöðum, Steinunni Þorgilsdóttir, Breiðabólsstað, Guðmund Jónasson, Leikskálum, Margréti Teitsdóttur, Hóli, Hörðudal og Torfa Sigurðsson, Hvítadal.
Áður á dagskrá 1. nóvember 1967.
Umsón: Stefán Jónsson.

Umsjón: Kristján Kristjánsson.

Veðurstofa Íslands.

Í þessari þáttaröð hættir Arnar með bílnum, eða allavega endurskoðar samband sitt við hann.
Þáttasería um ástarsambönd og sambandsslit, borgarskipulag og óreiðu, rúntinn, bílaþvott, tæknilega skynsemishyggju, sjálfstæði og ósjálfstæði.
Við getum ekki haldið áfram að treysta á bílinn sem aðal ferðamáta okkar. En af hverju er það svona erfitt? Ég elska bílinn. Ég veit ekki hvernig ég gæti lifað hér án hans, ég elska að keyra, ég næ tengingu við sjálfan mig og aðra í honum. Hann hreyfanleg rót í mínu lífi.
En bökkum aðeins. Hvernig varð þetta svona? Hvernig getur málmílát með vél og gúmmídekkjum orðið órjúfanlegur partur af sjálfi okkar og þjóð? Hvað gerist þegar draumkenndu hveitibrauðsdagar okkar með bílnum eru taldir? Þurfum við að kveðja bílinn alfarið eða getum við fundið jafnvægi í sambandi okkar sem þjónar báðum aðilum?
Þáttagerð: Arnar Geir Gústafsson og Snorri Rafn Hallsson.
Hvenær erum við sjálfstæð og hvenær ósjálfstæð? Arnar veltir fyrir sér skipulagi, óskipulagi, stjórn, stjórnleysi og notagildi óreiðunnar.
Fjallað er um fjölskyldubíllinn og einkabíllinn, félagslega hugmyndafræði bílsins, ofur-rökhyggju, gatnalagningu rómverja, og sjálfan taktinn í bæjarlífinu.
Þáttagerð: Arnar Geir Gústafsson og Snorri Rafn Hallsson.
Viðmælendur: Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, Hildigunnur Sverrisdóttir, Herdís, Alexia og Katrín.

Útvarpsfréttir.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Höskuldur Kári Schram ræðir við Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur þingmann Vinstri grænna, Diljá Mist Einarsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokks og Gísla Rafn Ólafsson þingmann Pírata um launhækkanir æðstu ráðamanna, stjórnmál, hvalveiðar og efnahagsmál.
Tæknimaður: Joanna Warzycha

Íslenskt lag eða tónverk.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Mansal og söngleikir eiga fátt ef nokkuð sameiginlegt, kannski annað en það en að vera umfjöllunarefni þáttarins í dag. Evrópulögreglan, Europol, greindi frá því í fyrradag að rúmlega 200 hafi verið handtekin í aðgerð gegn skipulögðum glæpahópum sem tengjast mansali. Um 13 þúsund lögreglumenn leituðu í fjörutíu og fjórum löndum, í íbúðarhúsum, lestarstöðvum, flugvöllum og víðar. Rúmlega 14 hundruð mögulegum fórnarlömbum mansals var bjargað. Flest þeirra voru börn. Ólögráða börn eru þolendur mansals. Þau eru seld mansali til kynlífsmisnotkunar og neydd til að betla eða fremja margskonar glæpi. Arnar Björnsson fjallar um málið.
Þegar ellefu hljóðfæraleikarar tóku að sér hlutverk í hljómsveitinni fyrir söngleikinn um óperudrauginn á Broadway árið 1988 grunaði þá líklega fæsta að þarna væri ævistarfið komið. Þrjátíu og fimm árum, og hátt í fjórtán þúsund sýningum síðar, var komið að lokasýningunni. Þetta var í apríl. Vinsældir söngleikja eru stundum samofnar því sem er að gerast í samfélaginu. Til dæmis þótti söngleikurinn Mamma Mia kærkominn þegar hann var frumsýndur í New York stuttu eftir hryðjuverkaárásirnar þar í borg. Birta skoðaði sögu söngleikja, ástæður vinsælda þeirra og framtíðarhorfur.
Umsjónarmenn þáttarins eru: Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Sóley Sigurjónsdóttir, sem notar listamannsnafnið Sól Ey, hefur velt fyrir sér skilgreiningunni á hljóðfæri. Hún hefur samið tónlist meðal annars fyrir fyrir hanska og gólfmottu sem tengd eru við hreyfiskynjara og tölvu og er með í undbúningi það sem kalla mætti sinfóníu fyrir dansara. Umsjón: Árni Matthíasson.
lagalisti:
Óútgefið - Vagabond
Óútgefið / Soundcloud - Og svo varð allt hvítt
Óútgefið / Soundcloud - Skrítla
Óútgefið / Vimeo - O + Beygja
Óútgefið - Materize
Margir líta á myndasögur sem ódýrt uppfyllingarefni dagblaða eða afþreyingu barna og unglinga sem betur ættu að verja tíma sínum til annarra hluta. Þó má segja að teiknimyndir séu elsta þekkta tjáningarform mannkyns, líkt og sjá má af ævafornum hellaristum forfeðra okkar og -mæðra. Í Belgíu og Frakklandi hafa myndasögur meira að segja verið kallaðar „níunda listgreinin“.
Í þessum þáttum verður fjallað um myndasögur vítt og breitt. Í hverri viku kemur nýr þáttarstjórnandi og gerir grein fyrir eftirlætis bókaflokka sínum, höfundi eða einhverri af hinum ótalmörgum undirgreinum myndasögunnar.
Umsjón: Stefán Pálsson og Ragnar Egilsson.
Goðheima-myndasögurnar segja frá ævintýrum norrænu guðanna í Ásgarði. Fimmtán bækur komu út þrjátíu ára tímabili og urðu aðalheimild tveggja kynslóða um heiðnu goðafræðina, en hvernig tekst að fella fornar goðsagnir að myndasöguforminu.
Umsjón: Stefán Pálsson.
Þáttaröð þar sem umsjónarmaður ferðast aftur í tímann og kynnir fyrir hlustendum borgarlífið í níu Evrópuborgum á ólíkum tímum. Á hvernig tónlist hlustuðu Parísarbúar árið 1835? En íbúar Feneyja árið 1643? Hvernig var bæjarlífið í Mílanó árið 1878? Og hvernig bækur lásu íbúar Prag árið 1883?
Umsjón: Edda Þórarinsdóttir.
Aðstoð veittu: Friðrik Rafnsson og Þorgeir Ólafsson.
Áfangastaðurinn í dag er París, nánar tiltekið París árið 1835. Við hefjum ferðalagið á vinstri bakka árinnar Signu á kaffihúsi þar sem margir rithöfundar hafa drukkið sinn kaffibolla. Í þættinum hljóma verk erftir Chopin, Liszt og Berlioz.

Orðanna origami á Rás 1. Hugað að öllu mögulegu á sviði bókmenntanna.
Í þættinum er litið inn á viðburð sem Tunglið forlag hélt í Mengi við Óðinsgötu 19. maí 2023 og nefndis Þýsk/íslensk ljóðbrú. Í þættinum heyrist brot úr tvímála flutningi Ragnasr Helga Ólafssonar og Wolfgangs Schiffer á Alfareiðinni eftir Goethe þar sem Wolfgang mælti frumtextann en Ragnar Helgi þýðingu Jónasar Hallgrímssonar. Einnig heyrðist þýsk/tyrkneska skáldið Dincer Gütcieter flytja ljóð sitt Ein Brief an Papa og Dagur Hjartarson flytja þýingu Gauta Kristmannssonar á ljóðinu. Þá er í þættinum rætt við Dincer Gücyeter um skáldsögu hans Unser Deutschlandmärchen - Þýskalandsævintýrið okkar sem hlaut í lok apríl verðlaun bókakaupstefnunnar í Leipzig í flokki fagurbókmennta. Einnig rætt við Dincer um útgáfuforlags hans Elif á íslenskri ljóðlist en hjá Elif hafa komið út tvímálaútgáfu þýðingar á um það bil einum tugi lljóðabóka eftir íslensk samtímaskáld. Þýðendur eru Jón Þór Gíslason og Wolfgang Schiffer og í þættinum er einnig rætt stuttlega við Wolfgang. Þá heyrist Wolfgang flytja upphaf ljóðs síns Damals als ich mich schämte og Sigrún Valbergsdóttir sömuleiðis upphafið á þýðingu sinni á ljóðinu. í síðari hluta þáttarins er svo rætt við natöshu S annan af tveimur ritstjórum ritgerðarsafnins Skáldreka sem nýlega kom út hjá Unu útgáfu. Einnig rætt við Margréti Tryggvadóttur fomann rithöfundasambands Íslands um afstöðu sambandsins til nýrra íslenskra höfunda sem eru af erlendum uppruna, skrifa ekki á íslensku en eru íslenskir rithöfundar.
Lesari: Gunnar Hansson.
Leifur Hauksson fjallar um tímann á breiðum grunni og fær til sín fræðimenn og fleira fólk til að ræða um tímann og ótímann.
Leifur Hauksson fjallar um tímann á breiðum grunni og fær til sín fræðimenn og fleira fólk til að ræða um tímann og ótímann.
Rætt við Þorleif Friðriksson sagnfræðing um þróun vinnutíma á Íslandi á 20. öld.
Rætt við Halldór Grönvold aðstoðar framkvæmdastjór ASÍ um framtíðarhugmyndir um starfsævi manna.

Fréttir
Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Carmen McRae syngur lögin Skylark, Chicken Today, Bob White Whatcha Gonna Swing Tonight, Baltimore Oriole, Flamingo, A Nightingale Sang On Berkley Square og Bye Bye Blackbird. Tríó Oscars Peterson leikur lögin Porgy, Watch What Happens, Triste, Fly Me To The Moon, Down On The Ground og Nightingale. Kvartett Herb Harris flytur lögin Alice Yvonne, Monkee See Monkee Do, A Two-per To Fill, Robert Earl, N.Y. Saze N.Y. Knights og Paranoia. Kristian Blak og félagar flytja lögin Caramba, Butterfly Blossom og Art Samba.
Fjallað um landnám Íslendinga í Vesturheimi. Lesið úr bréfum og frásögnum sem birtust í blöðum og bókum.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
(Áður á dagskrá 1996)
Rætt er við Mörð Árnason sem segir frá nefnd um samstarf við Vestur-Íslendinga en hún starfar á vegum utanríkisráðuneytisins og vinnur að skrásetningu Kanada- og Bandaríkjamanna af íslenskum ættum. Í nefndinni sitja auk hans Vésteinn Ólason, Haraldur Bessason, Steinn Lárusson og Bjarni Sigtryggsson. Inn á milli er skotið sögum úr ferð Hallfreðar Arnar Eiríkssonar vestur um haf, fyrir tæpum aldarfjórðungi. Gunnar Sæmundsson segir frá hversu stórir og þrekmiklir Íslendingar þóttu og segir svo sögu af Sigurbirni Johnsen.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir.

Frásöguþættir.
Umsjón: Ragnheiður Viggósdóttir.
Fótspor fortíðar, frásöguþáttur eftir Þorstein Matthíasson sem höfundur les.
Minningbrot Þorkels Bjarnasonar í Selvogi, Árnessýslu.
Umsjón: Ragnheiður Viggósdóttir.
Áður á dagskrá 27. nóvember 1984.

Veðurstofa Íslands.
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan er á dagskrá Rásar 1 á fimmtudagsmorgnum kl. 10:15 og endurflutt á föstudagskvöldum kl. 22:15. Þar leikur Lana Kolbrún Eddudóttir allskonar tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við KK-sextettinn, Lúdó og Stefán, Monicu Zetterlund og Ragnar Bjarnason. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>
Litla flugan dregur fram hljómplötur og segulbönd með gömlu dönsunum. Grettir Björnsson, Sigurður Ólafsson, hljómsveit Carls Billich, Sigga Maggý og Gunnar Páll, hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar o.fl. syngja og leika polka, valsa, ræla, skottísa, jenka og vínarkrus. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Höskuldur Kári Schram ræðir við Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur þingmann Vinstri grænna, Diljá Mist Einarsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokks og Gísla Rafn Ólafsson þingmann Pírata um launhækkanir æðstu ráðamanna, stjórnmál, hvalveiðar og efnahagsmál.
Tæknimaður: Joanna Warzycha

Útvarpsfréttir.

Tónlist af ýmsu tagi.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
gestur dagsins í fimmunni tengdist auðvitað sjósókn í tilefni af sjómannadeginum sem stendur fyrir dyrum. Það var Jón Frímann Eiríksson stýrimaður og skipstjóri sem settist hjá Felix og talaði um fimm skip sem hafa haft áhrif á líf hans. Listinn var svona: Sturlaugur H Böðvarsson AK10, Rán HF, Heiðrún SH, Hringur SH og Akurey AK10. Jón Frímann talaði um breytingar á vinnulagi á skipum frá því að hann hóf störf átján ára gamall og deildi ýmsum skemmtilegum sögum af uppákomum um borð.
Í síðari hluta þáttarins kom Karl Ágúst Ipsen og talaði um heilsuvandræði Celine Dion og svo fengum við nýjar fréttir af Dolly Parton

Umsjón: Salka Sól Eyfeld.

Útvarpsfréttir.

Atli Már Steinarsson rabbar við hlustendur og leikur létta tónlist.
Síðasti þáttur af Atli það ekki fyrir sumarfrí og breytingar í dagskrá. Við höldum uppteknum hætti með óskalögum og kveðjum fram eftir degi.
Lagalisti:
FLOTT - L'amour.
DAÐI FREYR - Whole Again.
Bríet - Fimm.
HOZIER - Eat Your Young.
LEXZI - Beautiful moon.
Knopfler, Mark - The trawlerman's song.
Helgi Björnsson - Kókos og engifer.
PJ HARVEY FT. TIM PHILIPS - Who By Fire.
eee gee - More than a Woman.
Bee Gees - Night Fever.
FREDDIE MERCURY - The Great Pretender.
ROBYN - Dancing On My Own.
HUMAN LEAGUE - Don't You Want Me.
Electric Light Orchestra - Telephone line.
NORAH JONES - Sunrise.
Lil Nas X - Old Town Road.
Helga Möller - Hvort sem ég vaki eða sef.
JÚLÍ HEIÐAR & KRISTMUNDUR AXEL - Ég er.
GRÝLURNAR - Ekkert Mál.
LEAVES - Parade.
Alicia Keys - Fallin'.
R.E.M. - Man on the moon.
Loreen - Tattoo.
LF SYSTEM - Afraid To Feel.
ARCTIC MONKEYS - Why'd You Only Call Me When You're High?.
Bjartmar Guðlaugsson - Veðurskeyti frá Skagatá.
KK - Þjóðvegur 66.
ELÍN HALL - Vinir.
Helgi Sæmundur Guðmundsson, Emmsjé Gauti - Pabbi.
FLORENCE AND THE MACHINE - You've Got The Love.
ÞURSAFLOKKURINN - Pínulítill Karl.
Kirel, Noa - Unicorn (Ísrael).
SPILLER - Groovejet.
ÁSGEIR TRAUSTI - Sumargestur.
Una Torfadóttir - En.
Teya & Salena - Who The Hell Is Edgar? (Austurríki).
RAG 'N' BONE MAN - Human.
PAUL McCARTNEY & WINGS - Maybe I'm Amazed.
Käärijä - Cha Cha Cha (Finnland).
Taylor Swift - Wildest Dreams.
MIKA - Relax.
LOVIN' SPOONFUL - Summer in the city.
RITA ORA - Praising You.
BEYONCÉ feat. JAY Z - Crazy In Love.
PRINCE - 1999.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Árið er snýr aftur á Rás 2 laugardaginn 17.júní og næstu 16 mánuði verður farið yfir árin 1980-2020 í íslenskri dægurlagatónlistarsögu.
Í þessum upphitunarþætti má heyra nokkur vel valin brot úr þáttaröðinni frá árunum 1980 til 1994.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Fréttir
Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Farið yfir vinsælustu lög Rásar 2 þessa vikuna.
Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.
Samantekt lista: Matthías Már Magnússon.

Fréttastofa RÚV.
Skúli Helgason og Snorri Már Skúlason snúa aftur með Rokkrásina 40 árum síðar.
Rokkrásin hóf göngu sína á Rás 2 í desember 1983. Í þáttunum röktu tveir 18 ára guttar sögu tónlistarmanna og hljómsveita í tali og tónum auk þess sem athyglinni var beint að því sem var að gerast nýtt og spennandi í nýbylgju þessa tíma.
Á laugardagskvöldum í júní ætla Skúli og Snorri að rifja upp það sem þeir voru að gera á þessum fyrstu árum Rásar 2, spila tónlistina og spjalla og hafa gaman.
Umsjón: Snorri Már Skúlason og Skúli Helgason.

Spjallað við landann og leikin tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.