19:00
Tónleikur
Frönsk tónlist

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Í Tónleik að þessu sinni verður flutt frönsk tónlist frá því um aldamót 19. og 20. aldar. Segja má að á þeim tíma hafi Frakkland tekið forystuna í nýjungum á sviðum margra lista, að minnsta kosti bæði í tónlist og myndlist.

Verkin sem flutt verða eru Forleikurinn að síðdegi skógarpúkans eftir Claude Debussy, sem var ótvíræður frumkvöðull í upphafi 20. aldarinnar, Gymnopediurnar eftir Erik Satie, sem einnig var tímamótaverk og Menuett antique og Le Tombeau de Couperin, eða Grafhýsi Couperins eftir Maurice Ravel, en segja má að þeir þrír hafi allir orðið fyrir sterkum áhrifum hver frá öðrum, auk þess sem Debussy og Ravel litu báðir til fortíðarinnar í franskri tónlist í tónsmíðum sínum, til þeirra Rameau og Francois Couperin.

Ekki leyfi fyrir netáhorf eftir útsendingu.
Lengd: 52 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Endurflutt
,