17:30
Sama viðtalið um ESB
Baldvin ræðir við framkvæmdastjóra SFS um sjávarútveg og ESB

Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti.

Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni: Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu?

Umsjón: Baldvin Þór Bergsson og Patrekur Jaime Plaza

Stjórn upptöku og samsetning: Helgi Jóhannesson

Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen og Baldvin Þór Bergsson

Grafík: Kolbrún Þóra Löve

Ljósmyndun: Ragnar Visage

ATH: Hægt er að horfa á alla þættina í sjónvarpshluta spilarans

Hvernig mun íslenskum sjávarútvegi farnast fari svo að Ísland gangi í Evrópusambandið? Segja má að sjávarútvegurinn sé eitt stærsta einstaka hagsmunamál Íslands fari svo að gengið verði til viðræðna við sambandið. Í þættinum er rætt við Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra SFS, um úthlutun veiðiheimilda við Ísland, flökkustofna sem eilíf deila stendur um, erlendar fjárfestingar í íslenskum sjávarútvegi og ýmislegt fleira.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 28 mín.
,