14:03
Á tónsviðinu
Carl Maria von Weber

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Á þessu ári eru liðin 200 ár frá andláti þýska tónskáldsins Carls Maria von Weber, sem fæddist árið 1786 og dó 1826. Í tilefni af þessu verður þátturinn “Á tónsviðinu” helgaður tónlist Webers, og verður þar meðal annars fluttur kafli úr klarínettukonsert Webers nr.2, píanóverkið “Boðið upp í dans” og atriði úr óperunni “Galdraskyttan”. Um kvöldið kl. 19.00 er fyrsta Óperukvöld vetrarins á dagskrá, og verður það einnig helgað Weber. Umsjón með þættinum “Á tónsviðinu” og “Óperukvöldi útvarpsins” hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Er aðgengilegt til 23. desember 2026.
Lengd: 53 mín.