Snorri Helgason fær til liðs við sig þátttakendur í Reykjavik Folk Festival á þessum tónleikum í Iðnó 20. mars 2026.
Brek: Harpa Þorvaldsdóttir, Jóhann Ingi Benediktsson, Sigmar Þór Matthíasson, Guðmundur Atli Pétursson
Umbra Ensemble: Arngerður María Árnadóttir,
Alexandra Kjeld, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Lilja Dögg Gunnarsdóttir
Svavar Knútur Kristinsson

Útvarpsfréttir.

Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 22. mars 2014.
Umsjón: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólina Þorsteinsdóttir leikur tónlist að eigin vali.


Umsjón: Kristján Kristjánsson.


frá Veðurstofu Íslands.

Aldrei hefur gustað jafn kröftuglega um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og nú. En þó pallíetturnar og glimmerið glitri undan ljóskösturunum sprettur sjónarspilið úr rammpólitískum jarðvegi sem, þegar grannt er á litið, hefur alltaf sett sinn brag á keppnina.
Gæti keppnin sungið sitt síðasta 2026?
Gísli Marteinn Baldursson hagar seglum eftir vindvélunum og fylgir blæstri þeirra í gegnum átakasögu Eurovision.


Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Þátturinn í dag er eins konar óður til öldunga. Annars vegar fjöllum við um einn virtasta og dáðasta mann samtímans, David Attenborough. Hann veðrur 100 ára þann 8.maí næstkomandi. Anna Lilja Þórisdóttir fer yfir sögu og arfleið Attenborough.
Og svo eru það Pete og Bas, Bretar sem eru að nálgast áttrætt en eru að rappa á fullu, nýkomnir frá Bandaríkjunum, eru núna á Evróputúr. Bjarni Pétur segir okkur frá þeim.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Sérkennileg ljósmynd leiðir okkur til þess að kafa dýpra ofan í líf einbúans
á Kvennahóli í Dalasýslu. Biskupinn Peter Michael Micari lifði einangruðu lífi á Íslandi,
andsnúinn neysluhyggju. Hann var þekktur fyrir trúarlegar skoðanir og óvenjulegar venjur.
Þátturinn færir okkur innsýn í líf hans og tengsl við list og samfélag.
Í þættinum er meðal annars rætt við Guðmund Odd Magnússon, eða Godd eins og hann var kallaður, en hann lést skömmu eftir að vinnslu þáttarins lauk.
Umsjón: Alexandra Jónsdóttir

Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir
Í fyrsta þætti verður hugað að bakgrunni og tónlistarlegum rótum listamannsins sem fæddist í borginni Gary í Indianafylki í Bandaríkjunm seint á sjötta áratugnum.

Útvarpsfréttir.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Í þættinum opnum við inn í heim pólskra furðusagna og vísindaskáldskapar. Pólverjar eiga einhvern merkasta og áhugaverðasta höfund 20. aldar á því sviði, Stanisław Lem.
Þekkturstu verk Stanisławs Lem eru smásagnasafnið Cyberiada og Solaris, sem tvisvar hefur verið kvikmynduð, 1972 kom mynd í leikstjórn Andrei Tarkovsky og 2002 í leikstjórn Steven Soderbergh. Þetta eru fjölbreytt verk sem teygja sig yfir allt rófið, allt frá svokölluðu hörðum vísindaskálskap yfir í mjúkan en alltaf eru undirliggjandi flóknar heimspekilegar spurningar um siðferði, trú, mörk mannlegrar skynsemi, hvað tækni getur og hvaða áhrif hún hefur á okkur mennina sem hana búa til. Maður gegn vél, allt sem góður vísindaskáldskapur þarf að búa yfir. Pawel Bartoszek segir frá, en hann hefur lesið bækur Lem frá því í menntaskóla og við ræddum vísindaskáldskap, tæknisiðferði og ýmislegt þessu tengt.
Við byrjum á heimsókn frá Mariolu Alichu Fiema, sem kennir pólsk fræði við Háskóla Íslands. Þar fá nemendur yfirlit yfir sögu Póllands allt frá miðöldum fram að seinni heimsstyrjöld. Og í gegnum helstu bókmennta- og listaverk hvers tíma er reynt að skyggnast inn í pólska þjóðarsál. Ég ræddi við Mariolu um bókmenntirnar í gegnum aldirnar, hvar þetta byrjar allt saman en líka hvernig pólsk menning á Íslandi blasi við henni.
Viðmælendur: Mariola Alicja Fiema og Pawel Bartoszek.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Austurríki/Búlagaría/Tékkland
Á hverju ári skiptist dagskrárgerðarfólk djasstónlistarinnar á nokkrum lögum úr sínu nærumhveffi.
Í þessum þætti hljómar tónlist eftir austurísku hljómsveitina Shake Stew, sem Andreas Felber frá Ö1 sendi okkur.
Lukas Kranzelbinder (1988) - Tristan Junk
Lukas Kranzelbinder (1988) - Ascendance
Lukas Kranzelbinder (1988) - Searching
Frá Búlagarí kemur tónlist með stórsveit búlgarska útvarpsins undir stjórn Antoni Donchev.
Uppástunga frá Maya Raikova BNR (Bulgaria) .
Alexander Ivanov (20th cent.) - Space Game
Vladislav Michev - Funky Colors
Nedelcho Ninov (20th cent.) - Don't Look Down
Og síðust í þessari þrennu evrópudjassins er Nikol Bókóva frá Tékklandi.
Með henni leika Martin Kocian á kontrabassa og Michael Wierzgon á trommur. Þetta er Nikol Bókóva og Fjöður númer tvö.
Nikol Bóková (1991) - Feather No. 2
Nikol Bóková (1991) - Feather No. 1
Nikol Bóková (1991) - Corner of the Room
Sending frá Václav Vraný - Czech Radio - Vltava

Fréttir
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um ástæðu þess að alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er haldinn hátíðlegur einmitt 1. maí, blóðbaðið á Haymarket-torgi í Chicago árið 1886.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Kvartett Sonny Stitt flytur lögin I Can't Get Started, Groovin' High, Blues For Prez and Bird, By Accident, I Got Rhythm og Topsy. Kvartett Larry Young leikur lögin Softly As In The Morning Sunrise, Monk's Dream, If, Zoltan, Beyond All Limits og Moontrane. Kvintett Max Roach flytur lögin Body and Soul, Woody 'n' You, Ezz-thetic og Just One Of Those Things.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Í greininni Úr fórum Halldórs Laxness fjallar Guðrún Kvaran málfræðingur um orðaforðann í verkum Halldórs Laxness, annars vegar dönsk tökuorð og hins vegar íslenskt alþýðumál.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur, segir frá sínu uppáhalds tónverki.
René Fleming og Thomas Hampson syngja lokadúettinn úr óperu Massenet, Thais. Guiseppe Sabatine stjórnar Þjóðarhljómsveit Bordeaux.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson
Í þættinum er lesið úr bók Elínar Pálmadóttur ,,Með fortíðina á farteskinu" sem út kom hjá Vöku-Helgafelli árið 1996 (21 mín.)
Í bókinni er saga þriggja formæðra Elínar ömmu, langömmu og langalangömmu.
Í þættinum er sérstaklega fylgst með sögu langömmunnar, Sigurveigar Ingimundardóttur.
Lesari með umsjónarmanni Bryndís Þórhallsdóttir, Hrafnagilsskóla , Eyjafirði (13 mín.) X greiðsla
Tónlist:
Útlaginn, amerískt þjóðlag, texti Jóns Sigurðssonar 3,38 mín.
Skagafjörður, lag Sigurður Helgason, texti Matthías Jochumsson, Karlakórinn Heimir syngur, stjórnandi Stefán R. Gíslason 1,18 mín.
Fyrst á dagskrá 8. september 2009


frá Veðurstofu Íslands

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Lög úr Evróvisjón keppninni 1964-69 og ýmsir íslenskir flytjendur sem hefðu átt að keppa ef Ísland hefði verið með í keppninni.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.



Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.


Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í níunda þætti eru árin 1996-1998 til umfjöllunar, þegar Bubbi sendi frá sér plöturnar Allar áttir, Trúir þú á engla og Arfur. Hér má m.a. heyra valdar klippur úr útvarpsþáttunum Árið er og Bubbi segir sögur.
Viðmælandi í níunda þætti er Bubbi Morthens.
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson og Ólafur Páll Gunnarsson.
Lagalisti:
Bubbi - Brostu
Bubbi - Hverjum geturðu treyst?
Bubbi - Sá sem gaf þér ljósið
Bubbi - Fjallakofinn (ljóð)
Bubbi - Þú ert ekki lengur
Bubbi - Alla daga
Bubbi - Með vindinum kemur kvíðinn
Bubbi - Við vatnið
Bubbi - Leiðin liggur ekki heim
Bubbi - Einn dag í einu
Bubbi - Trúir þú á engla
Bubbi - Styndir feðranna
Bubbi - Með þér
Bubbi - Börn guðs
Bubbi - Hrafninn
Bubbi - Láttu sem þú sofir
Bubbi - Þeir fengu fiskinn í arf
Bubbi - Jesús Pétur Kiljan, hin heilaga jómfrú og aumingja ég
Bubbi - Maður án tungumáls
Bubbi - Ísaðar gellur
Bubbi - Vandi er um að spá
Bubbi - Stimpilklukkupabbar
Bubbi - Fagrar heyrði ég raddirnar

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Ragga Holm og Vilborg stikluðu á stóru yfir fyrstu tuttugu lög listans, ásamt því að líta í baksýnisspegilinn þar sem árin 2009 og 1990 voru í forgrunni. Töluverðar breytingar urðu á topp 10 listanum, þar sem Creature of Habit er kominn í fyrsta sæti. Svo er spurning hvort Ragga hitti í mark með spákúlunni sinni þessa vikuna!
Lagalisti:

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
