19:10
Tónleikakvöld
Úr hádegistónleikaröð BBC í Wigmore Hall

Hljóðritun frá tvennum tónleikum í hádegistónleikaröð Breska útvarpsins í Wigmore Hall.

*Frá tónleikum sópransöngkonunnar Sandrine Piau og píanóleikarans Davids Kadouch 10. febrúar sl.

Á efnisskrá eru sönglög eftir Franz Schubert, Klöru Schumann, Hugo Wolf ofl.

*Frá tónleikum píanóleikarans Paul Lewis, Vertavo strengjakvartettsins og kontrabassaleikarans Tim Gibbs, 30. mars sl.

Á efnisskrá er píanókonsert nr. 1 í C-dúr op. 15 eftir Ludwig van Beethoven í útsetningu fyrir píanó og strengjakvintett.

Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Er aðgengilegt til 05. júní 2026.
Lengd: 1 klst. 30 mín.
,