19:00
Tónleikur
Alban Berg Lýrísk svíta og fiðlukonsert

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Í Tónleik að þessu sinni verður leikin tónlist eftir Alban Berg. Fyrst munu hljóma tveir kaflar úr Lýrískri svítu frá árunum 1925-26, en hún markar meðal annars upphaf tólftónatækninnar í verkum Bergs.Síðan verður fluttur fiðlukonsert Albans Bergs, en á undan honum heyrist kórall úr kantötu nr. 60 eftir J.S. Bach, sem Berg notaði sem efnivið í konsertinn.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 44 mín.
e