
Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Ég býð ykkur kæru hlustendur innlega velkomna að viðtækjunum þennan fagra laugardag. Við erum saman komin á miðju sumri og ekkert virðist geta aftrað okkur frá því að njóta lífsins , sólin skín , allir hlægja, grasið sprettur og blómin skarta sínu allra fegursta, þá ekki síst baldursbráin..Þátturinn skartar lögum úr ýmsum áttum:
Bless bless - Lúdó og Stefán
Baldursbrá - BG og Ingibjörg
Sveitin milli sanda - Elý Vilhjálms
Í faðmi dalsins - Haukur Morthens.
Foldin fríða - Purrkur Pillnikk
Silungurinn - Skólakór Garðabæjar
Getaway - Earth wind and fire
Sjá dagar koma - Karlakórinn Fóstbræður
Rafmagnssnúrurnar - Rafmagnssnúrurnar
Life is just what you make it - Donny Osmond
I´m woman - Helen Ready.
Sáuð þið hana systur mína - Stefán Íslandi
Þátturinn var fyrst á dagskrá 2. ágúst 2014.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum verða fluttar tónsmíðar og lesin ljóð og sögubrot sem tengjast júlímánuði. Þar má nefna „Juli“ úr ballettinum „Tólf með póstvagninum“ eftir Knudåge Riisager, „Juli“ úr píanóverkinu „Das Jahr“ (Árið) eftir Fanny Mendelssohn Hensel, „July Tree“ eftir Irmu Jurist, flutt af Ninu Simone, og „Júlívísu“ úr Söngvum mánaðanna“ sem Jón Hlöðver Áskelsson samdi við kvæði eftir Böðvar Guðmundsson. Lesin verða ljóðin „Júlísól“ eftir Gyrði Elíasson, „Júlíljóð“ eftir Sigurð Pálsson, „Júlí“ eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur og „Flóki teiknar í júlí“ eftir Nínu Björk Árnadóttur. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson.

Bjarki Sveinbjörnsson fer yfir yfir sögu hljómsveitarinnar og rekur meðal annars hvað aðalhljómsveitarstjórar hennar höfðu að leiðarljósi við störf sín.
Í þættinum verður rekin saga Sinfóníuhljómsveitar Íslands á 7. áratugnum. Aðal áhersla verður lögð á hlutverk Bohdan Wodiczko, pólska hljómsveitarstjórans. Þá verður lesið ú skýrslu sem bæði hann og hjóðfæraleikarar sendu stjórnarmönnum hljómsveitarinnar um þætti sem betur mættu fara. Þá verða flutt þrjú verk frá Norrænum tónleikum sveitarinnar árið 1967 undir stjórn Wodiczkos.
Adagio fyrir flautu, hörpu, strengjasveit og píanó eftir Jón Nordal
Þjóðvísa eftir Jón Ásgeirsson og
Chaconna eftir Pál Ísólfsson.
Að þættinum loknum verður fluttur Fiðlukonsert í D-dúr op. 77 eftir Johannes Brahms frá sömu tónleikum. Einleikari er Björn Ólafsson.


frá Veðurstofu Íslands.

Í tuttugu ár ferðaðist Katrín Sif Einarsdóttir um heiminn, oftast ein á ferð og utan alfaraleiðar, þar til hún hafði heimsótt öll lönd heims. Í tveimur þáttum segir hún frá stríðshrjáðum ríkjum, lokuðum samfélögum, afskekktum eyjum og stórbrotinni náttúru, en einnig lífinu á ferðinni, forvitninni sem knýr hana áfram og þeim áskorunum sem hún hefur tekist á við. Þetta er ferðasaga sem spannar tvo áratugi, um manneskju sem lét óvenjulegan draum verða að veruleika.
Umsjón: Hinrik Wöhler
Katrín Sif Einarsdóttir hefur heimsótt öll lönd heims, oftast ein á ferð og utan alfaraleiðar. Í fyrri þættinum segir hún frá ferðum sínum um Jemen, Suður-Súdan og Afganistan, hvernig hún undirbýr sig fyrir ferðalög um átakasvæði og hvernig er að upplifa af eigin raun lönd sem við þekkjum helst úr fréttum af stríði og óstöðugleika. Einnig kynnumst við lífi hennar á ferðinni, stórbrotinni náttúru Mongólíu, gönguferðum um Pamir-fjöllin og ævintýrum á Grænlandi.

Prestur og predikari: sr. Þorgrímur Daníelsson
Organisti: Szebik Attila
Söngur: Ívar Helgason
TÓNLIST Í MESSUNNI:
Fyrir predikun
Forspil: Ein feste Burg ist unser Gott – fughette JohannPachebel (1653-1706)
Sálmar: Númer Heiti lags/sálms Höfundar
Ég vil með þér Jesú fæðast Matthías Jochumsson / Ívar Helgason
265 Þig lofar faðir líf og önd Sigurbjörn Einarsson / Nicolaus Decius
Lambið litla(Góði hirðirinn) Sigurbjörn Einarsson / Ívar Helgason
Biblían mín blíða Ívar Helgason (1976-) & Ívar Helgason 1856-1933 / Ívar Helgason
Eftir predikun
Númer Heiti lags/sálms Höfundar
537 Ó, faðir gjör mig lítið ljós Sigurbjörn Einarsson / Ívar Helgason
Orgel: Þín mildu augu Drottinn Jesús Zoltán Gárdonyi (1906-1986)
Orgel: Jesús Kristur lífsins ljómi - Stutt fantasía Attila Szebik
791 Á mótum tugalda Sigurbjörn Einarsson / Ívar Helgason
Eftirspil: Une petitte sortie Attila Szebik

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Sumarið er tími ferðamanna en mörg hafa skoðanir á því hvar og hvernig þeir dvelja á fjölförnum stöðum. Við rifjum upp umfjöllun um AirBNB-bann í Barcelona í þætti dagsins.

Þættirnir eru í umsjón hjónanna Guðbjargar Gissurardóttur og Jóns Árnasonar, en þau hafa sett sér það markmið að koma sér upp lífrænum matjurtagarði í sælureit sínum í Kjós. Þau hafa enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau eiga að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fara þau á stúfana og hitta sérfræðinga og vana leikmenn á sviði matjurtaræktunar til að fá ráðleggingar og hugmyndir sem munu vonandi skila þeim og hlustendum góðri uppskeru í lok sumars. Einnig munu þau hafa uppi á fólki sem er að gera óvenjulega hluti á þessu sviði, auk þess að taka fyrir matreiðslu grænmetis, nýtingu villijurta o.m.fl. Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi innblástur og hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti, hvort sem það er úti í garði, uppi í sumarbústað, á svölunum eða úti í glugga.
Frá 2011
Umsjón: Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason.
Tæknimaður: Björgvin Kolbeinsson
Lengd þáttar: 51:32 mín.
Innihald: í þessum þætti heimsækja þáttastjórnendurnir Jón og Guðbjörg skemmtilegan sveitamarkað í Eyjafjarðarsveit sem ber nafnið Sumardagur á Sveitarmarkaði. Þar spjalla þau við heimamenn og fólk úr nágrannasveitum sem bjóða fjölbreyttar vörur og veitingar úr héraði. Að því loknu fer Guðbjörg í Yndisgöngu frammi í Skíðadal með Önnu Dóru Hermannsdóttur jógakennara og leiðsögumanni og upplifir áhugaverða leið til að njóta náttúrunnar.
Viðmælendur:
1. Margrét Vera Benediktsdóttir
2. Benedikt Fáfnir Benediktsson
3. Ragnheiður Hreiðarsdóttir
4. Elisabeth Jóhanna Zitterbart
5. Vigdís Hreiðarsdóttir o.fl
6. Anna Dóra Hermannsdóttir
Tónlist:
1. Vorkoman, Villi Valli, Í Tímans Rás, 12 tónar - 2006
2. Country Pie, Bob Dylan, Nashville Skyline - Columbia Records 1969
3. Dæmi um góðan dag, Bjartmar Guðlaugsson, Bjartmar Guðlaugsson 2005
4. What a wonderful world, Louis Armstrong, George Wiess og Bob Thiele, MCA records

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Úrval úr Lestarþáttum vikunnar.

Útvarpsfréttir.

Hljóðritun frá opnunartónleikum Sönghátíðar í Hafnarborg 13. júní sl. þar sem sópransöngkonan Sally Matthews og Simon Lepper píanóleikari fluttu verk eftir Gustav Mahler, Samuel Barber og Richard Strauss.
Á efnisskrá:
-Rückert-Lieder eftir Gustav Mahler.
-Knoxville: Summer of 1915 eftir Samuel Barber.
-Vier letzte Lieder eftir Richard Strauss.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir

Fréttir
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli.
Umsjón: Anna Marsbil Clausen
Sigurður upplifði dýpsta dal síns þjálfaraferils þegar Þórbergur féll í yfirlið í miðri lyftu á stórmóti. Gætu þeir aftur náð hæstu hæðum aðeins fjórum vikum síðar?

frá Veðurstofu Íslands

Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Grétar Halldór Gunnarsson, prestur við Kópavogskirkju. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Grétar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Skrifað í sand - æviminningar Karls Sigurbjörnssonar
Sálumessa syndara - æviminningar Esra Péturssonar geðlæknis (Ingólfur Margeirsson ritaði)
Siddharta e. Hermann Hesse (íslenskuð af Haraldi Ólafssyni)
Páll postuli
Sigurbjörn Einarsson
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Við höldum áfram að rifja upp valin brot frá liðnum vetri og nú er komið að þeim sem fæðast með silfurskeið í munninum. Þó sum þeirra hafi þurft að skila henni. Það er allavega raunin með fyrra umfjöllunarefnið okkar í dag, manninn sem áður var kallaður Andrés prins, en nú Andrew Mountbatten Windsor eftir að hann var sviptur öllum sínum tiltlum og meðfæddri meðgjöf í lífinu. Anna Lilja Þórisdóttir segir okkur söguna alla.
Svanasöngur Downton Abbey kom í kvikmyndahús fyrir áramót. Þetta var þriðja og síðasta rmyndin sem kom í kjölfar feykivinsælla sjónvarpsþáttaraða um Crowley fjölskylduna og aðra íbúa á öllum hæðum Downton Abbey. Þættirnir hafa unnið alþjóðleg verðlaun um allan heim, slegið áhorfsmet og persónurnar eiga sér margar fastan sess í hjörtum aðdáenda. Birta Björnsdóttir fjallar um þættina vinsælu.

Í tuttugu ár ferðaðist Katrín Sif Einarsdóttir um heiminn, oftast ein á ferð og utan alfaraleiðar, þar til hún hafði heimsótt öll lönd heims. Í tveimur þáttum segir hún frá stríðshrjáðum ríkjum, lokuðum samfélögum, afskekktum eyjum og stórbrotinni náttúru, en einnig lífinu á ferðinni, forvitninni sem knýr hana áfram og þeim áskorunum sem hún hefur tekist á við. Þetta er ferðasaga sem spannar tvo áratugi, um manneskju sem lét óvenjulegan draum verða að veruleika.
Umsjón: Hinrik Wöhler
Katrín Sif Einarsdóttir hefur heimsótt öll lönd heims, oftast ein á ferð og utan alfaraleiðar. Í fyrri þættinum segir hún frá ferðum sínum um Jemen, Suður-Súdan og Afganistan, hvernig hún undirbýr sig fyrir ferðalög um átakasvæði og hvernig er að upplifa af eigin raun lönd sem við þekkjum helst úr fréttum af stríði og óstöðugleika. Einnig kynnumst við lífi hennar á ferðinni, stórbrotinni náttúru Mongólíu, gönguferðum um Pamir-fjöllin og ævintýrum á Grænlandi.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Abeid, Hadhoum - Se alarga la noche.
Hespèrion XXI - Der makam-? Hüseyni Semâ'i.
Greisha, Salwa Abou, Ezzayakoum - Wainek.
Dimensión Latina - Gavilan.
Mendoza, Lydia - Un nuevo amanecer.
Listafólk frá Bólivíu - Wara.
Nasibov, Edalat - Fakhri Havasi.
Meteku, Teshome - Mot adeladlogn.
Super Mama Djombo - Fidjo di mi.
Tarika - Sento.
Hijas del sol - Ö wató wa baye = The ship of man.
Uwaifo, Victor - Idogo.


frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Hvíld, lag eftir Huga Guðmundsson við ljóð eftir Snorra Hjartarson. Samið fyrir kammerkórinn Hljómeyki, til minningar um Halldór Vilhelmsson söngvara og félaga í kórnum. Þorvaldur Örn Davíðsson útsetti fyrir stúlknakór. Graduale Nobili syngur undir stjórn Þorvalds Arnar Davíðssonar. Útgefið á plötunni Vökuró árið 2022.
Masques op. 34 eftir Karol Szymanowski.
Þættir verksins eru:
Nr. 1 Shéhérazade : Lento assai. Languido
Nr. 2. Tantris le Bouff on : Vivace assai
No. 3. Sérénade de Don Juan : Vivace
Flytjandi: Krystian Zimerman, píanó
Upptökur fóru fram Tónleikasal Tívolí í Kaupmannahöfn, í maí 1994.
Quartetto Primo í F-dúr, op. 64, no.1, G. 248 eftir Luigi Boccherini. Skálholtskvartettinn leikur, en hann er svo skipaður: Jaap Schröder, 1. fiðla ; Rut Ingólfsdóttir, 2. fiðla ; Svava Bernharðsdóttir, víóla ; Sigurður Halldórsson, selló
Þættirnir verksins eru:
I. Allegro Molto
II. Adagio
III. Allegro
Hljóðritað í Skálholti 8. og 9. ágúst 2005 í samvinnu við Sumartónleika í Skálholti.
Útgefið á plötunni Luigi Boccherini - Jaap Schröder í Skálholti - 100 ára minning árið 2025.
Vögguljóð eftir Sigurð Þórðarson, ljóðið orti Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson. Hljóðritun gerð á vegum Ríkisútvarpsins í hljóðveri 1, 14. febrúar 1979. Útvarpað 7. október 1984. Flytjendur: Ragnheiður Guðmundsdóttir, messósópran og Ólafur Vignir Albertsson, píanó.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Jósef Björnsson (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Hann var sveitastólpi mikill en í bókinni Æskustöðvar (1954) fjallaði hann fyrst og fremst um foreldra sína og æskuárin. Í þessum þætti lýsir hann foreldrum sínum bæði fallega og hispurslaust.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.


Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.


Útvarpsfréttir kl. 11:00 sun.

Útvarpsfréttir.

Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Fyrsti þáttur Rokklands fór í loftið á Rás 2 þann 7. október 1995.
Ólafur Páll Gunnarsson hafði verið tæknimaður á Rás 2 í um fjögur ár áður en hann fékk tækifæri til að spreyta sig við hljóðnemann. Aðdragandinn var sá að hann kom upprifinn af Glastonbury-hátíðinni á Englandi árið 1995 eftir að hafa verið þar gestur BBC. Hann sá fjöldan allan af hljómsveitum og listamönnum spila: Plant & Page, Pulp, Oasis, Jeff Buckley, PJ Harvey, Verve, Supergrass o.fl.. Upp úr þessu fékk Óli Palli að prufa að gera tvo tveggja tíma langa þætti um Glastonbury-hátíðina (sem á þessum tíma var næstum algjörlega óþekkt fyrirbæri hér á landi) og í kjölfarið kom Rokkland.
Þátturinn var 50 mínútur til að byrja með en varð svo 110 mínútur rúmu ári eftir að hann fór af stað. Í dag eru liðin um 13 ár frá því þetta hófst, u.þ.b. 600 þættir eru að baki og fjöldi hljómsveita og listamanna sem hann hefur kynnt og fjallað um eru a.m.k. 1700. Óla reiknast það til að á þessum 13 árum hafi u.þ.b. 400 sólarhringar af lífi hans farið í Rokklandið.
Rokkland er á dagskrá Rásar 2 á sunnudögum frá kl. 16.10 18.00 og er svo endurtekið á þriðjudagskvöldum frá kl. 22.10 24.00. Þar fyrir utan er hægt að hlusta á vefnum www.ruv.is tvær vikur aftur í tímann.
<a href=mailto:[email protected]>Senda Ólafi Páli póst</a>

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.