
Bæn og hugleiðing að morgni dags.


Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30


Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.
- Endurflutt


Veðurstofa Íslands.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög sem hafa annarsvegar verið samin við ljóð Einars Más Guðmundssonar, eða lög sem hann hefur samið söngtexta við. Þursaflokkurinn flytur Þögull eins og meirihlutinn, Einar fer sjálfur með ljóðið Dansaðu, fíflið þitt dansaðu, Hljómar flytja lögin Úr tómleikans gjá, Tregagleði, Rokkhundar og Óður til birtunnar. Rúnar Júlíusson syngur Segðu mér frá ástinni, Blágresi flytur lagið Allt svo gamalt, ekkert nýtt og Elísabet Eyþórsdóttir syngur lögin Á morgun skín sól og Dagar ganga í barndóm.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Uppástand, þema: Menning. Gerður Kristný rithöfundur.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.


Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Kari Ósk Grétudóttir kemur í heimsókn hér rétt á eftir og segir frá nýrri ljóðabók, Undir þér jörðin. Í henni eru þrír ljóðabálkar þar sem jörðin og náttúran er viðfangsefnið út frá ýmsum sjónarhornum sem spegla sálarlíf mannsins, sem er í stöðugri leit að hlutverki hér og getur ýmist verið tortímingarafl eða bjargvættur á þessu stóra búsvæði, jörðinni undir honum.
Á bjargi byggði hygginn maður hús, segir í textanum. Húsið – hlýskeið heitir nýjasta bók Hjálmars Sveinssonar þar sem allt hverfist um gamalt timburhús á Skólavörðuholti. Sögumaðurinn er í stórframkvæmdum, verið er að byggja heila hæð ofan á húsið og í þeim miðjum fer hann að grúska um fyrrum íbúa og óhugnanlega sögu þeirra. En frásögnin þysjar líka rækilega út; Hvað er hús? Hvernig myndaðist húsgrunnurinn í jarðsögulegu ljósi? Hjálmar Sveinsson kemur í hús á eftir og segir betur frá.
Skáldsagan Transcription eftir bandaríska rithöfundinn og ljóðskáldið Ben Lerner hefur vakið mikla athygli vestanhafs frá því að hún kom út í sumar. Bókin hefst á óhappi sögumanns þegar hann ætlar að hitta gamlan háskólakennara sinn og læriföður til að taka við hann eitt lokaviðtal en lendir í því að snjallsíminn, hans eina tæki til að taka viðtalið upp, fer bókstaflega í vaskinn og eyðileggst. Með dauðan síma þykist hann taka upp samræðu tveggja manna. Ef viðtal er tekið í skóginum og enginn heyrir það – gerðist það þá? Út frá þessu fer frásögnin í óvæntar áttir og spyr flókinna spurninga um samband mannsins við tæknina, sagnahefð mannsins, minnið og sannleikann. Alma Mjöll Ólafsdóttir kemur og ræðir verkið.
Viðmælendur: Alma Mjöll Ólafsdóttir, Hjálmar Sveinsson og Kari Ósk Grétudóttir.
Lesarar: Kari Ósk Grétudóttir og Bergsteinn Sigurðsson.
Tónlist: Alles - Einstürzende Neubauten, City Music - Kevin Morby, No Words - The Smile.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Efnisskrá:
Samuel Barber (1910 - 1981)
Dover Beach – fyrir rödd og strengjakvartett
Oddur Arnþór Jónsson les þýðingu Reynis Axelssonar á ljóði Matthews Arnolds á undan flutningnum.
Hildigunnur Rúnarsdóttir (1964)
Tilbrigði um Einu sinni rerum – fyrir fiðlu og víólu
Finnur Karlsson (1988)
Tvenna – fyrir fiðlu og víólu
Jón Nordal (1926-2024)
Systur í Garðshorni – fyrir fiðlu og píanó
I. Ása
II. Signý
III. Helga
Franz Schubert (1797-1828)
Auf dem Strom – fyrir rödd, horn og píanó
Johannes Brahms (1833 - 1897)
Horntríó í Es-dúr op. 40
I. Andante
II. Scherzo: Allegro
III. Adagio mesto
IV. Finale: Allegro con brio
Flytjendur:
Oddur Arnþór Jónsson, söngur
Stefán Jón Bernharðsson, horn
Mathias Susaas Halvorsen, píanó
Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla
Rannveig Marta Sarc, fiðla
Rita Porfiris, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Hljóðritun: Hrafnkell Sigurðsson
Umsjón: Pétur Grétarsson
- Endurflutt

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
- Endurflutt

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. 4. bók - Á Snæfellsnesi. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1997


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.


Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30


Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Griðarstaður grasrótarinnar.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson.