Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Við ræddum um umfangsmestu samgönguframkvæmd landsins á sínum tíma; Vestfjarðagöngin - 30 ár eru síðan þau voru tekin í gagnið. Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi þingmaður Vestfjarða, rifjaði upp þá stóru stund þegar umferð var hleypt um göngin og við röbbuðum líka um vegagerð og -bætur vítt og breitt.
Landslagið í þýskum stjórnmálum er breytt eftir þrennar fylkiskosningar í þessum mánuði. Merz kanslari ætlar sér að þrauka áfram í embætti þó að flokkur hans hafi fengið verstu útreiðina. Arthúr Björgvin Bollason fór yfir stormasama daga í Þýskalandi.
Hjónin í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, Eygló Björk Ólafsdóttir og Eymundur Magnússon, hafa náð framúrskarandi árangri í lífrænni framleiðslu og voru verðlaunuð fyrir það á lífræna deginum um helgina. Við slógum á þráðinn til Eymundar og spjölluðum um lífræna ræktun og lífið og tilveruna.
Tónlist:
Engilbert Jensen - Regndropar falla (við hvert fet).
Engilbert Jensen - Sextán týrur.
Rúnar Þór Pétursson - Brotnar myndir.
Nena - 99 luftballons.
Tom Waits - I hope that I don't fall in love with you.
John Coltrane - Alabama.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á laugardaginn var haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Lífræni dagurinn og í þetta sinn í Kringlunni. Þar gat fólk kynnst lífrænni ræktun og framleiðslu og ekki síst hitt fólkið sem stendur á bak við íslenska lífræna matinn. Anna María Björnsdóttir var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir stöðuna á lífrænum landbúnaði á Íslandi og hvernig framtíðin lítur út.
Heimildarmyndin Fuglar (og menn) var frumsýnd í síðustu viku. Í henni er fylgst með hjónunum Ólafi Aðalsteinssyni og Jóhönnu Ólafsdóttur sem hafa í rúma tvo áratugi helgað sumur sín verndun og uppbyggingu æðarvarps í Loðmundafirði á Austfjörðum. Myndin sýnir á afar fallegan og hispurslausan hátt samband manns og náttúru, en Ólafur hefur til dæmis byggt sex þúsund fuglakofa í firðinum fyrir kollurnar enda koma sífellt fleiri fuglar þangað á hverju ári. Ingvar Þórðarson, einn leikstjóra og framleiðandi myndarinnar, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá.
Að lokum kynntum við okkur málþingið Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar sem verður haldið á miðvikudaginn í Loftskeytasöðinni. Þar verður varpað ljósi á hlutverk hvala í vistkerfinu og tengsl þeirra við líffræðilega fjölbreytni, hringrás næringarefna, frumframleiðni, kolefnisbindingu og heilbrigði hafsins. María Theodóra Ólafsdóttir forstöðumaður Loftskeytastöðvarinnar og Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina sögðu okkur frá því sem þar fer fram í þætti dagsins.
Tónlist í þættinum:
Ég elska þig í akkorði / Ragnar Bjarnason og hljómsveit Svavars Gests (Neil Sedaka, texti Ómar Ragnarsson)
Rogastans /Brek (Jóhann Helgi Benediktsson, Harpa Þorvaldsdóttir, Sigmar Þór Mattíasson, Guðmundur Atli Pétursson, texti Jóhann Helgi Benediktsson)
Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (K. Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson)
Breaking up is hard to do / Neil Sedaka (Neil Sedaka & Greenfield)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt.
Félag mannsins var stofnað árið 2023 en varð gjaldþrota árið 2025. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins.
Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið lögðu niður störf vegna kjaramála í síðustu viku. Sendlarnir vilja meina að þeir fái greidd laun sem eru undir kjarasamningsbundnu lágmarki, þeir séu gerviverktakar hjá Wolt og að laun þeirra fyrir sendlastörfin hafi verið lækkuð um helming á árinu.
Rætt er við lögfræðinginn Karen Ósk Nielsen Björnsdóttur hjá ASÍ um Wolt og sænska doktorsnemann Pontus Blume sem skrifar doktorsritgerð um fyrirtækið og önnur giggfyrirtæki.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Við erum mætt til Akureyrar til þess að elta uppi pólitíska öskubuskusögu blikkara úr Þorpinu.
Manns sem þótti ekki nógu fínn fyrir Framsóknarflokkinn, en stofnaði í staðinn stjórnmálaflokk sem varð ekki bara ráðandi afl í bænum heldur er hann nú þriðja elsta stjórnmálaafl á Íslandi og hefur í bráðum tvo áratugi verið í meirihluta.
Við reynum að fá að vita hvort árangur L-listans sýni að það sé hvorki nauðsynlegt né árangursríkt að eiga stóran, sterkan frænda í Reykjavík, sem sækja þurfi til samþykki eða aðstoð.
Umsjón: Helgi Seljan
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Félagarnir Tumi Torfason, Hannes Arason, Tumi Árnason og Björgvin Ragnar Hjálmarsson mynda kvartettinn Tu Ha? Tu Bjö! sem sendi frá sér samnefnda plötu fyrir stuttu. Kveikjan að samstarfinu var löngun til að kalla saman tónlistarmenn sem töluðu / spiluðu sama tónmál.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hjálmar Jónsson í Bólu - öðru nafni skáldið Bólu-Hjálmar - skrifaði ýmsa þjóðsagna- og þjóðlífshætti og hér verður lesinn þáttur hans um Þorbjörgu Kolku, konu sem á að hafa verið uppi á 12. öld, var alin upp hjá huldukonu á Hornströndum en fluttist síðan á Skaga þar sem hún gerðist rómuð sjókona og reri ein á tíæringi.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.
Í handprentuðum bláleitum ljósmyndum teflir Inga Lísa Middleton saman stærstu og smæstu lífverum hafsins, hvölum og svifþörungum, og varpar ljósi á samspil þeirra. Sýninginí Loftskeytastöðinni kallast Hafið á öld mannsins, og hefur að geyma verk sem nú þegar hafa ferðast víða um heim. Víðsjá hitti Ingu Lísu við verkin og spurði út í vinnuferlið og innblásturinn, en við sögu koma þýskur efnafræðingur og breskir fagurkerar frá viktoríutímanum.
Pétur Ben, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og ræðir lífið og listina, plötuna Painted Blue og komandi tónleika í Hljómahöllinni.
Haukur Þorgeirsson málfræðingur og pistlahöfundur heldur áfram að ræða frænkur íslenskunnar. Að þessu sinni heyrum við af tengslum íslensku og sanskrít og hinum heilaga drykk sem ránfuglinn færði guðunum.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Kammerkórinn, Hákon Oddgeirsson - Hóladans.
Mótettukórinn - 08 Enn syngur vornóttin - Úts. Gunnar Reynir Sveinsson (1933-2008).
Kristján Tryggvi Martinsson - Bless less.
Tómas R. Einarsson, GDRN - Fingur.
BKPM hljómsveit - Bílalag 1.
Andrews Sisters, The - I've got a gal in kalamazoo.
- Endurflutt

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Í Tónleik að þessu sinni verður flutt frönsk tónlist frá því um aldamót 19. og 20. aldar. Segja má að á þeim tíma hafi Frakkland tekið forystuna í nýjungum á sviðum margra lista, að minnsta kosti bæði í tónlist og myndlist.
Verkin sem flutt verða eru Forleikurinn að síðdegi skógarpúkans eftir Claude Debussy, sem var ótvíræður frumkvöðull í upphafi 20. aldarinnar, Gymnopediurnar eftir Erik Satie, sem einnig var tímamótaverk og Menuett antique og Le Tombeau de Couperin, eða Grafhýsi Couperins eftir Maurice Ravel, en segja má að þeir þrír hafi allir orðið fyrir sterkum áhrifum hver frá öðrum, auk þess sem Debussy og Ravel litu báðir til fortíðarinnar í franskri tónlist í tónsmíðum sínum, til þeirra Rameau og Francois Couperin.
- Endurflutt

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistin í þættinum:
Fúga um mig og þig eftir Atla Ingólfsson. Samið yfir lag eftir Gunnar Þórðarson (Þú og ég) Eyþór Ingi Jónsson leikur á orgel. Útgefið á plötunni XV árið 2025.
Hik, eftir Arngerði Maríu Árnadóttur orgelleikara og Unu Sveinbjarnardóttur fiðluleikara, sem leika. Af plötunni Hik sem kom út í ágúst 2025.
Þrenning (Solastalgia) - III. þáttur eftir Svein Lúðvík Björnsson. Cauda collective leikur. Hópinn skipa: Sigrún Harðardóttir fiðluleikari, Þóra Margrét Sveinsdóttir víóluleikari og Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari. Útgefið á plötunni Solastalgia í mars 2026.
Emptyness eftir Ásgeir Ásgeirsson gítarleikara.
Flytjendur:
Ásgeir Ásgeirsson, gítar ; Hamid Khansari, oud, setar; Aryan Rezaee, slagverk; Bamdad Maleki, tombak slagverk;
Birgir Steinn Theodórsson, kontrabassi; Kjartan Valdemarsson, píanó; Marjan Mehraban, kanun; Shervin Mohajer, kamenche; Yashar Etaati, kamenche og qeychak.
Útgefið á plötunni Emotions í febrúar 2025. Matti Kallio sá um hljóðblöndun.
Gömul veröld eftir Einar Bjart Egilsson píanóleikara. Hljóðritað og mastering: Louis van Eeten í Soundtrack Producitons í Maastricht Útgefið á plötunni Heimkoma 2015.
Heimurinn núna, lag og texti eftir Ólöfu Arnalds sem syngur og leikur og gítar. Útgefið á plötunni Spíra í desember árið 2025.
Framtíð mannkyns eftir Jón Hall Stefánsson, bæði lag og texti. Jón Hallur syngur og leikur á píanó. Með honum leika Hermann Stefánsson á rafbassa, kassagítar og rafgítar (slide); Ólafur Björn Ólafsson á trommur; Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir á klukkuspil. Útgefið á plötunni Mansöngvar, sem er tvöföld vinylplata og kom út í ágúst 2025.
Sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Við erum mætt til Akureyrar til þess að elta uppi pólitíska öskubuskusögu blikkara úr Þorpinu.
Manns sem þótti ekki nógu fínn fyrir Framsóknarflokkinn, en stofnaði í staðinn stjórnmálaflokk sem varð ekki bara ráðandi afl í bænum heldur er hann nú þriðja elsta stjórnmálaafl á Íslandi og hefur í bráðum tvo áratugi verið í meirihluta.
Við reynum að fá að vita hvort árangur L-listans sýni að það sé hvorki nauðsynlegt né árangursríkt að eiga stóran, sterkan frænda í Reykjavík, sem sækja þurfi til samþykki eða aðstoð.
Umsjón: Helgi Seljan
- Endurflutt

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. 4. bók - Á Snæfellsnesi. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1997


frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Á laugardaginn var haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Lífræni dagurinn og í þetta sinn í Kringlunni. Þar gat fólk kynnst lífrænni ræktun og framleiðslu og ekki síst hitt fólkið sem stendur á bak við íslenska lífræna matinn. Anna María Björnsdóttir var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir stöðuna á lífrænum landbúnaði á Íslandi og hvernig framtíðin lítur út.
Heimildarmyndin Fuglar (og menn) var frumsýnd í síðustu viku. Í henni er fylgst með hjónunum Ólafi Aðalsteinssyni og Jóhönnu Ólafsdóttur sem hafa í rúma tvo áratugi helgað sumur sín verndun og uppbyggingu æðarvarps í Loðmundafirði á Austfjörðum. Myndin sýnir á afar fallegan og hispurslausan hátt samband manns og náttúru, en Ólafur hefur til dæmis byggt sex þúsund fuglakofa í firðinum fyrir kollurnar enda koma sífellt fleiri fuglar þangað á hverju ári. Ingvar Þórðarson, einn leikstjóra og framleiðandi myndarinnar, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá.
Að lokum kynntum við okkur málþingið Mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar sem verður haldið á miðvikudaginn í Loftskeytasöðinni. Þar verður varpað ljósi á hlutverk hvala í vistkerfinu og tengsl þeirra við líffræðilega fjölbreytni, hringrás næringarefna, frumframleiðni, kolefnisbindingu og heilbrigði hafsins. María Theodóra Ólafsdóttir forstöðumaður Loftskeytastöðvarinnar og Valgerður Árnadóttir formaður Hvalavina sögðu okkur frá því sem þar fer fram í þætti dagsins.
Tónlist í þættinum:
Ég elska þig í akkorði / Ragnar Bjarnason og hljómsveit Svavars Gests (Neil Sedaka, texti Ómar Ragnarsson)
Rogastans /Brek (Jóhann Helgi Benediktsson, Harpa Þorvaldsdóttir, Sigmar Þór Mattíasson, Guðmundur Atli Pétursson, texti Jóhann Helgi Benediktsson)
Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (K. Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson)
Breaking up is hard to do / Neil Sedaka (Neil Sedaka & Greenfield)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Getur dáleiðsla fært okkur meiri ró, sjálfstraust og jafnvel vellíðan? Svo segir Ingibjörg Bernhöft, hjúkrunarfræðingur og dáleiðslukennar, en hún segir að dáleiðsla sé náttúrulegt ástand hugans þar sem við slökum á, beinum athyglinni innávið og gefum okkur tækifæri til að vinna með hugsanir, tilfinningar og líðan á dýpri og mildari hátt. Hljómar vel en á morgun verður Ingibjörg með fræðslu um dáleiðslu á Borgarbókasafninu Sólheimum. Hún kom í Morgunútvarpið og sagði okkur frá þessu.
Ef samningar nást ekki milli Icelandair og flugvirkja skellur á allsherjarverkfall á miðnætti. Allar flugferðir félagsins frá Íslandi falla að óbreyttu niður um leið og verkfall flugvirkja hefst en undanfarna daga hefur flugfarþegum verið boðið að færa flugferðir sínar. En hver er réttur fólks sem á bókað flug ef það kemur til verkfalls. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, var á línunni.
Sérfræðingar frá ólíkum sviðum tengdum umferðaröryggi deila þekkingu sinni og reynslu með áherslu á unga vegfarendur á Umferðarþingi í dag. Raddir yngri vegfarenda fá að heyrast á þinginu en forvitnilegt verður að heyra hvernig þau vilja gera umferðina öruggari. Bjarklind Björk Gunnarsdóttir og Margrét Birna Björnsdóttir frá Samgöngustofu komu til okkar í umferðarspjall.
Íslenska karlalandsliðið hefur leik í C-deild Þjóðadeildarinnar um næstu helgi. Liðið er í riðli með Eistlandi, Lúxemborg og Búlgaríu og spilar fjóra leiki á aðeins ellefu dögum en sá fyrsti er á laugardaginn við Eistland á Laugardalsvelli. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari kíkti til okkar í kaffibolla.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Hvíti snákurinn átti afmæli, Modest Mouse fóru í siglingu og allir Heyrðu diskarnir voru rammaðir inn.
HERBERT GUÐMUNDSSON – Með stjörnunum
MGMT – Kids
QUEEN – Bohemian Rhapsody
HJÁLMAR – Saknaðarljóð
KRUMMI – Hinterland
ALLMAN BROTHERS BAND – Midnight Rider
GOMEZ – Catch Me Up
SPACESTATION – Watching It Happen
MICHAEL SEMBELLO – Maniac
BUBBI MORTHENS – Jakkalakkar
ACE OF BASE – All That She Wants
DAVID BOWIE – Jump They Say
RADIOHEAD – Creep
JAZZY JEFF & FRESH PRINCE – Boom! Shake the Room
US3 – Cantaloop
GRANT LEE BUFFALO – Fuzzy
NÝDÖNSK – Hunang
JET BLACK JOE & SIGRÍÐUR GUÐNADÓTTIR – Freedom
SCOPE – Was That All It Was
PORTISHEAD – Sour Times
WEEZER – Buddy Holly
CIGARETTE – I Don't Believe You
SUGARCUBES – Walkabout
MODEST MOUSE – Lampshades On Fire
EMINEM – Without Me
SUGARHILL GANG – Rapper's Delight
SUPREMES – Where Did Our Love Go
KASABIAN – Where Did All The Love Go
ARON CAN – Fæddur til þess að vera þinn
DEEP PURPLE – Burn
WHITESNAKE – Guilty Of Love
EMILÍANA TORRINI – Big Jumps
JANE'S ADDICTION – Jane Says
BRIMKLÓ – Eitt Lag Enn
PÁLL ÓSKAR OG BENNI HEMM HEMM – Eitt af blómunum
COLDPLAY – In My Place
CROSBY, STILLS, NASH & YOUNG – Teach Your Children

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Nokkuð hefðbundið fyrirkomulag í Popplandi þennan þriðjudaginn, fjölbreytt tónlist fyrst og fremst. Plata vikunnar á sínum stað, nýjasta platan frá Teiti Magnússyni, Askur.
Kaktus Einarsson - Follow.
MIIKE SNOW - Animal.
Spacestation - Watching it happen.
All-American Rejects, The - I wanna.
CRISTOPHER CROSS - All Right.
María Magnúsdóttir - Þakka þúsundfalt.
TRACY CHAPMAN - Give Me One Reason.
THE STONE ROSES - Fools Gold.
Teitur Magnússon - Barn.
JEFFERSON AIRPLANE - Today.
Bjarni Daníel Þorvaldsson- DÍSEL.
Múgsefjun - Sendlingur og sandlóa.
EGÓ - Ástin ert þú á litinn.
JOHNNY MARR - It's Time.
U2 - Street of Dreams.
Michigander - Freaking Out.
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina).
FLEETWOOD MAC - Go Your Own Way.
Ásgeir Trausti Einarsson - Hunter.
Jón Jónsson, Herra Hnetusmjör - Las á milli línanna.
Dean, Olivia, Fender, Sam - Rein Me In.
LEON BRIDGES - Coming Home.
Perez, Gigi - Sailor Song.
Flott - 20 og eitthvað.
AVICII & ALOE BLACC - Wake me up!.
EVERLAST - What It's Like.
Creature of Habit, Malen, Birna Eyfjörð - auðnin.
ARCTIC MONKEYS - Why'd You Only Call Me When You're High?.
Friðrik Dór Jónsson, SinfoniaNord - Hvað er það versta sem gæti gerst?.
Sycamore tree - All tangled up.
DIDO - White Flag.
Hjálmar - Saknaðarljóð.
MATT BERNINGER - Martini Me Fatso.
CALVIN HARRIS & JAZZY - Satisfy.
ARIANA GRANDE - petal.
TOPLOADER - Dancing In The Moonlight.
SNOW PATROL & KYLIE MINOUGE - These Alarms.
VANCE JOY - Fascination in the Dark.
NÝDÖNSK - Stundum.
TEITUR MAGNÚSSON - Gullauga.
LINDA HARTMAN - Rewind.
TEMPER CITY - Self Aware.
CORNERSHOP - Brimful of Asha (Norman Cook Remix)
TAME IMPALA - Loser.


Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Tónlistarmaðurinn - leikarinn og leikstjórinn Hörður Torfason er gestur Rokklands vikunnar. Hann mætti í std. 12 í vikunni sem leið - við spjölluðum saman og hann spilaði nokkur lög.
Við ræðum í þættinum um ástina - gamlar kærustur - búsáhaldabyltinguna - stofnun samtakanna 78 - foreldra og margt fleira. Hörður sem er fæddur árið 1945 hefur ekki mikið verið að halda tónleika undanfarið en brást vel við þegar við báðum hann um að koma og spila fyrir okkur - og spjalla.
- Endurflutt