07:03
Morgunvaktin
Laufskálarétt, Aravaka og sígild tónlist

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Réttað verður í Laufskálarétt í Skagafirði á morgun. Við slógum á þráðinn til réttarstjórans Bergs Gunnarssonar á Narfastöðum og spjölluðum um réttirnar.

Svo forvitnuðumst við um Ara Brynjólfsson eðlisfræðing. Hann er lítt þekktur á Íslandi en var í hópi fremstu vísindamanna heims á sínu sviði. Berglind Ásgeirsdóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri og sendiherra, stendur fyrir Aravöku á sunnudag og sagði okkur frá Ara.

Svo var það sígilda tónlistin. Magnús Lyngdal sagði frá átjándu aldar tónskáldinu Dmítrí Bortníanskí.

Tónlist:

Lay Low - Í veikindum.

Reiðmenn vindanna, Helgi Björnsson - Reiðmenn vindanna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,