Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Búnaðarþing stendur í Reykjavík og hefur síðan á mánudag. Bændur ráða ráðum sínum; sjálfsagt er um margt að ræða enda landbúnaður snúinn; háður margs konar aðföngum og undir flóknu regluverki. Matvælaframleiðsla er viðkvæm og mikilvæg. Formaður Bændasamtakanna Trausti Hjálmarsson, bóndi í Austurhlíð í Biskupstungum, kom til okkar.
Þórhildur Ólafsdóttir sagði okkur tíðindi frá Úganda. Nú stendur regntímabilið með tilheyrandi kvefpestum, hún sagði okkur líka frá félagslífi útlendinga og heimsókn sinni í pyntingarklefa Idi Amin, enda mikilvægt að breiða ekki yfir skelfilega söguna.
Muna hlustendur eftir Kísilverksmiðjunni í Helguvík? Lagt var upp með stórhuga áform en allt reyndist byggt á sandi. Nú er unnið að niðurrifi verksmiðjunnar; efnið fer í brotajárn. Hilmar Bragi Bárðarson blaðamaður á Víkurfréttum fór yfir sögu verksmiðjunnar sem átti að skipta sköpum í atvinnumálum Suðurnesjamanna en starfaði bara í fáeina mánuði.
Tónlist:
Benjamín Gísli Tríó - Line of Thought.
Tommy Seebach - Du er det dejligste.
Chiwoniso - Nguva Yekufara.
Jóhann Helgason - She's done it again.
