Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fyrir helgi bárust fréttir af þróun á nýrri tegund einhvers konar allsherjarbóluefnis í Bandaríkjunum. Þetta er reyndar ekki bóluefni eins og Ásgeir Haraldsson, prófessor í barnalækningum og yfirlæknir, sagði frá í þættinum. Ásgeir ræddi þessar spennandi rannsóknir og ýmislegt fleira.
Uppbygging er fyrirhuguð á Króksfjarðarnesi, bæði hafa fengist styrkir til uppbyggingar matvælaseturs og til að stofna þróunarfélag. Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðarstofu, sagði frá.
Vitundarvakning fyrir Einstök börn er í þessari viku, en rúmlega 900 börn og ungmenni hér á landi eru í félaginu og með sjaldgæfan og alvarlegan sjúkdóm eða heilkenni. Guðrún Helga Harðardóttir framkvæmdastjóri samtakanna kom í þáttinn.
Tónlist:
Carpenters - Rainy days and mondays.
Carpenters - (They long to be) Close to you.
Carpenters - Superstar.
