
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

07:30

08:30


Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög sem hafa verið samin við ljóð ýmissa skálda en líka eitt lag þar sem textinn hefur verið íslenskaður. Fyrri hluta þáttarins hljóma lög við ljóð Jakobs Jóhannessonar Smára, en það eru lög við ljóðin Þrá, eftir Gunnar Þórðarson, Sjón eftir Edgar Smára Atlason, Til hennar eftir Halldór Laxness og Hraustir menn sem er þýðing Smára, eins og hann var kallaður, á enskum söngtexta. Síðan hljóma lögin Hjá lygnri móðu sem Jón Ásgeirsson samdi við ljóð Halldórs Laxness, Í síðasta sinn sem Þórir Sæmundsson samdi við ljóð Davíðs Stefánssonar, Aldrei flýgur hún aftur sem Magnús Þór Sigmundsson samdi við ljóð Þórbergs Þórðarsonar, Nótt sem Gunnar Þórðarson samdi við Nótt eftir Þorstein Erlingsson, Litli fuglinn sem Ólafur Þórarinsson samdi við ljóð Jóns Thoroddsen, Nóttin er mjúk sem Bjarni Hafþór Helgason samdi við ljóð Sigurðar Pálssonar og Ég heyri sem Sunna Gunnlaugsdóttir samdi við ljóð Jóns úr Vör.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Hugleiðingu dagsins um haust flytur Ólafur Sveinn Jóhannesson, ljóðskáld.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.


Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
„Hér eru engir múmínálfar,“ skrifar listakonan finnsk-sænska Tove Jansson í bréfi til Tuulikki Pietilä konu sinnar þegar hún var að byrja að skrifa bók sem átti að slíta hana frá stóra sköpunarverkinu, Múmíndal og öllum íbúum hans. Dóttir myndhöggvarans kom fyrst út árið 1968 en var að koma út í þýðingu Gerðar Kristnýjar. Bókin samanstendur af 19 smásögum frá sjónarhorni barns og lýsa sögurnar æsku Tove á skáldlegan hátt, tilverunni á listamannaheimili sem er fullt af sköpun, gáska en líka hættum.
Pólski rithöfundurinn og Nóbelshafinn Olga Tokarczuk hlaut í vikunni Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Ewa Marcinek, kemur og ræðir við mig um Olgu Tokarczuk, bókmenntir og Pólland.
Viðmælendur: Ewa Marcinek og Gerður Kristný.
Lesari: Guðrún Gunnarsdóttir
Tónlist: Etiovalssi - Jimi Tenor og Blood in the Labyrinth - Boards of Canada

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Guðrún Gunnarsdóttir - Eilífa tungl.
Fritz Weisshappel, Guðmundur Jónsson - Það er svo margt (Ingi T. Lárusson)
viibra - Kvoða (Bergur Þórisson)
The Beatles - Strawberry fields forever.
Björg Blöndal's C4THERINE - Pink is the color of my alter's ego soul.
Jóna G. Kolbrúnardóttir, Ástríður Alda Sigurðardóttir - Fischerweise (F. Schubert)

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Í byrjun ágústmánaðar 2026 fór fram í Hörpu tónlistarhátíðin Seigla, sem hefur fært tónlistaráhugafólki ferska strauma bæði sígildrar og samtímatónlistar undanfarin ár. Fjölmargir viðburðir á dagskrá dagana 7-9. ágúst sem spönnuðu allt litróf tónlistarinnar auk þess að gera sér far um að höfða til allra aldurshópa með upplfunum fyrir alla fjölskylduna og þá yngstu í viðburðum undir nafninu Litla Seigla.
Í seinni yfirreið Rásar 1 um Seiglu tónlistarhátíð er gripið niður í tónleikana Dægurlög, Krókaleiðir um Julius Eastman og Mæðramátt.
Hjörtur Páll Eggertsson stjórnar kammersveitinni Elju:
Ticket to ride /Yesterday - Lennon/McCartney - úts L Berio - Harpa Ósk Björnsdóttir
Heut' Nacht hab'ich geträumt von dir/ Ég er kominn heim - Emerich Kálman/Jón Sigurðsson - Kristín Einarsdóttir Mäntylä
Frá tónleikunum Mæðramáttur:
Hjálmar Ragnarsson - Vögguvísa Sólveigar
Jórunn Viðar - Mamma ætlar að sofna - Matthildur Anna Gísldóttir leikur á píanó og Vera Hjördís Matsdóttir syngur
B. Britten (1913-1976) Charms of a Lullaby Op. 41:
Sephestia's Lullaby / A Charm /The Nurse’s Lullaby -Hildigunnur Einarsdóttir · mezzó-sópran/Matthildur Anna Gísladóttir píanó
F. Mendehlssohn - Dúettar Op. 63:
Ich wollt, meine Liebe ergösse sich/Abschiedslied der Zugvögel/Volkslied /Maiglöcken und die Blümelein. Vera Hjördís Matsdóttir sópran og Hildigunnar Einarsdóttir mezzosópran. Matthildur Anna Gísladóttir píanó.
Julius Eastman (1940-1990): Joy Boy - Elja kammersveit
Spjall við Pétur Eggertsson um Krókaleið
Pétur Eggertsson: Krókaleið
“Krókaleið er vistkerfi af hljóðum, fyrir kammersveit án stjórnanda. Verkið er innblásið af umhverfishljóðum frá skólalóð Mills College þar sem ég var í námi. Sterkir froskakórar birtust að hausti til, þar sem einn froskur myndi byrja að kalla og smám saman bættust fleiri við þar til hljóðið varð alltumlykjandi. Inn á milli heyrðist í flugum, fuglum, spjalli, hljóðfæraæfingum og fjarlægum umferðaniði. Þessi umhverfishljóð minntu óneitanlega á verk Pauline Oliveros sem setti sterkan svip sinn á skólann og starfaði þar fram til dauðadags, en verkið er að sama skapi innblásið af hlustunarverkum Oliveros.
Verkið er liður í áframhaldandi rannsókn tónskáldsins á aðferðafræði í nótnaskrift sem gefur flytjandanum ákvarðanavald og inngripstækifæri innan tónefniviðsins. Nótnaskriftin er innblásin af borðspilum og slembiaðferðum bandarísku tilraunahefðarinnar, og er byggð upp af “tónefnareitum” sem flytjendur leiða sig í gegnum á þann hátt sem þau kjósa, en þó eftir settum reglum verksins.”
Julius Eastman (1940-1990): Stay On It - Hjörtur Páll Eggertsson stjórnar Elju kammersveit og DUVE - Det Unge VokalEnsemble · kammerkórnum danska.
Funiculi Funicula - Luigi Denza - úts Arnold Schönberg
Michelle -Lennon/McCartney - úts L Berio -Harpa Ósk Björnsdóttir syngur með Elju
Þorgrímur Þorsteinsson hljóðritaði tónleika Seiglu.
Umsjón: Pétur Grétarsson

Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.


Að loknum 17. lestri Völsunga sögu stiklar Jórunn Sigurðardóttir á stóru í bókmenntum og staldrað við þar sem barnamorð koma fyrir, einkum þar sem foreldrar drepa börn sín til að koma fram hefndum á nákomnum (18,55 mín.)
Frumflutt 16.04.1993


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

07:30

08:30


Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Griðarstaður grasrótarinnar.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson.