Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um hollenska listamanninn Han van Meegeren, sem falsaði verk eftir landa sinn, 17. aldar-meistarann Johannes Vermeer, á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. Van Meegeren blekkti helstu listaspekúlanta Hollands og seldi falsanir sínar fyrir himinháar fjárhæðir, en upp komst um hann að lokum.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínil plata úr safninu dregin fram og leikin í heild.
Plata vikunnar er Syngið með sem Fjórtán Fóstbræður gerðu árið 1964, og var fyrsta platan sem kom út á vegum nýstofnaðs útgáfufyrirtækis, S.G. hljómplatna.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Stiklað á stóru í sögu kvenna frá 1874 fram á 21. öld. Sögulegir viðburðir eru rifjaðir upp, gluggað í ýmsar heimildir, ævisögur og viðtöl og ljósi varpað á veröld kvenna fyrr og nú. Tónlist í þættinum er flutt af konum. Brot úr sögu íslenskra kvenna.
Umsjón: Anna Melsteð og Gerður Róbertsdóttir.
(Áður á dagskrá 2005)
Í þættinum er stiklað á stóru í sögu kvenna frá 1874 til dagsins í dag. Sögulegir viðburðir eru rifjaðir upp, gluggað í ýmsar heimildir, ævisögur og viðtöl og ljósi varpað á veröld kvenna fyrr og nú. Tónlist í þættinum er flutt af konum.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Birgir Þór Helgason vélstjóri var boðaður á leynilegan fund haustið 1986. Fund sem markaði upphaf háskafarar um heimsins höf. Birgir hefur reynt ýmislegt um ævina og í þessum þætti heyrum við meðal annars af smygli og sjóskaða.
Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason, Brynjólfur Karlsson og Jónas Hall.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Framleiðandi: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi, Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður og Andrés Jónsson almannatengill. Þau ræddu meðal annars hvalveiðimálið, netverslanir með áfengi, stöðuna á stjórnarheimilinu, mótmæli og Evrópumótið í fótbolta.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Útvarpsfréttir.
Fimm eru á gjörgæslu og tveimur haldið sofandi eftir alvarlegt rútuslys í Öxnadal í gær. Að sögn lögreglu köstuðust tveir farþeganna út úr rútunni. Vegagerðin hafði varað við aðstæðum á veginum, meðal annars vegna malbiksblæðinga.
Forseti Rússlands hefur afhjúpað heimsvaldastefnu sína með því að krefjast þess að Úkraína gefi eftir landsvæði, segir Kanslari Þýskalands. Tugir þjóðarleiðtoga eru saman komnir í Sviss á ráðstefnu um frið í Úkraínu.
Áætlun Stætó á Keflavíkurflugvelli er ekki sett upp með þarfir flugfarþega í huga. Vegagerðin vill betri stað fyrir biðskýli og hefur ítrekað farið frammá það við Isavia að almenningssamgöngur séu kynntar betur í flugstöðinni.
Mótmælendur komu saman í Aþenu í gær til að minnast þess að ár er liðið síðan um 600 flóttamenn drukknuðu undan ströndum Grikklands. Kallað hefur verið eftir rannsókn á slysinu en fátt er um svör frá grískum yfirvöldum.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, snýr aftur til kennslu við Háskóla Íslands í haust. Þetta upplýsti rektor við útskriftarathöfn í dag.
Ein fyrsta bæjarhátíð sumarsins er hafin á Hofsósi. Við heyrum í fulltrúa í undirbúningsnefnd.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Í Sumar-Heimskviðum rifjum við upp efni út þáttum vetrarins og búum til nýja þætti úr áður fluttu efni okkar.
Öldum saman hafa stríð verið háð vegna auðlinda og hver er ein dýrmætasta auðlind veraldar? Það er vatnið. Það þrifist ekki líf á plánetunni jörð án þess. Staðbundin átök, skærur eða deilur milli hópa vegna vatns eru algeng en ekki hefur enn brotist út stríð milli ríkja eingöngu vegna vatns. Gæti það gerst í náinni framtíð? Ólöf Ragnarsdóttir leitaði svara við því.
Þegar ellefu hljóðfæraleikarar tóku að sér hlutverk í hljómsveitinni fyrir söngleikinn um óperudrauginn á Broadway árið 1988 grunaði þá líklega fæsta að þarna væri ævistarfið komið. Þrjátíu og fimm árum, og hátt í fjórtán þúsund sýningum síðar, var komið að lokasýningunni. Þetta var í apríl í fyrra. Vinsældir söngleikja eru stundum samofnar því sem er að gerast í samfélaginu. Til dæmis þótti söngleikurinn Mamma Mia kærkominn þegar hann var frumsýndur í New York stuttu eftir hryðjuverkaár ásirnar þar í borg. Birta skoðaði sögu söngleikja, ástæður vinsælda þeirra og framtíðarhorfur.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Lagalisti:
Clockworking - INNI — musica da camera
Occurrence - Flutter
Óútgefið - Miss Reykjavík Rita
Recurrence - Flow and Fusion
Elektra Ensemble - Downbeat Aroma
Vernacula - 48 Images of the Moon
Í þáttunum eru rifjaðir upp nokkrir atburðir fyrri tíðar hér á landi og settir fram eins og um nútíma fréttir sé að ræða.
Fréttalesarar eru Sigvaldi Júlíusson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Hermann Sveinbjörnsson.
Umsjónarmaður: Jón Gauti Jónsson.
Í þættinum er rifjaðir upp nokkrir atburðir 12. aldar í anda hefðbundins fréttatíma.
Undir lok Listahátíðar í Reykjavík er þjóðin kölluð á svið í Hörpu í þátttökuverkinu 12 lokalög. Þrjátíu manns eru kallaðir til, ekki leikarar heldur vinnandi fólk úr íslensku samfélagi. Allt frá hádegi til miðnættis laugardaginn 15. júní mætir alls konar fólk á vakt, sinnir sínum störfum, segir okkur frá vinnunni og sjálfu sér um leið. Málari málar vegg, söngvari tekur lagið, stjörnufræðingur segir frá lögmálum himingeimsins, ljósmóðir leiðir okkur í allan sannleika um fæðingu nýs lífs. Og þarna verða líka tveir laumufarþegar, útsendarar Ríkisútvarpsins, því að Rás 1 tekur þátt í verkinu með beinni útsendingu milli kl. 15 og 17.
Í þessu óvenjulegarlistaverk býðst gestum að upplifa fjölbreytta mannlífsflóru Íslands, hitta fólk sem verður ekki endilega á leið okkar í hvunndeginum, velta fyrir okkur tímanum og tilverunni og skyggnast inn um ótal margar dyr sem yfirleitt eru lokaðar.
Það er sviðslistahópurinn Quarantine sem stendur að verkinu. Hann á bækistöðvar í Manchester en hefur ferðast víða með sýningar sínar sem eiga það sameiginlegt að draga fram óvæntar hliðar á mannlífinu. 12 lokalög hafa hlotið frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda.
Umsjón með útsendingu Rásar 1 hafa Guðni Tómasson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í þessum þáttum er fjallað um bandarískar sönggyðjur allt frá því að Bessie Smith og hinar kröftugu blússöngkonur hófu að hljóðrita með djasshljómsveitum til helstu djasskvenna okkar tíma einsog Dee Dee Bridgewater. Billie Holliday, Ella Fitzgerald og Sarah Vaughan eru drottningar djassins, en fjöldi annarra söngkvenna gerðu garðinn frægan þótt sjaldnar heyrist þær á öldum ljósvakans, nema þá gospelsöngkonan Mahalia Jackson og söngkonur sem voru á mörkum djass og popps einsog Nina Simone og Diana Washington. Samt sem áður eru þær margar sem ekki eiga skilið að falla í gleymsku og verða kynntar í þessum þáttum jafnt sem hinar frægari.
Umsjón með þáttunum hefur Vernharður Linnet.
(Áður á dagskrá 2008)
Fjallað um söngkonuna Dinu Washington sem var jafnvíg á djasstónlist, rytmablús, popp- og sálartónlist.
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um hollenska listamanninn Han van Meegeren, sem falsaði verk eftir landa sinn, 17. aldar-meistarann Johannes Vermeer, á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. Van Meegeren blekkti helstu listaspekúlanta Hollands og seldi falsanir sínar fyrir himinháar fjárhæðir, en upp komst um hann að lokum.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
![Minningar um merkisfólk](/spilari/DarkGray_image.png)
Gunnar Stefánsson fjallar um merkisfólk fyrri tíðar og leitar fanga í bókum og blaðagreinum.
(Áður á dagskrá 2007)
Lesin er frásögnin Ólöf á Hlöðum, eftir Huldu Á. Stefánsdóttur, sem birtist í Minningum Huldu, II, Æska. Umsjónarmaður les.
Umsjónarmaður: Gunnar Stefánsson.
Fjallað er um Sturlungasögu og rætt við leika og lærða um söguna, sögusviðið og einstakar persónur frá ýmsum sjónarhornum.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
(Áður á dagksrá 1984-85)
Í þættinum er fjallað um kveðskap Sturlu Þórðarsonar.
Fluttir eru þættir úr erindi Hermanns Pálssonar frá Sturlustefnu í Háskóla Íslands frá 1984 um kveðskap Sturlu.
Þættir úr erindi Hermanns prófessors við Edinborgarháskóla.
Lestur Kristbjargar Kjeld úr tímatali.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
![Veðurfregnir](/spilari/DarkGray_image.png)
Veðurstofa Íslands.
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan sveimar um árið 1953, lítur í blöðin og leikur vinsæl lög, innlend og erlend, frá því ári. Við sögu koma m.a. Alfreð Clausen og Eisenhower, Dean Martin og danslagakeppni S.K.T., Íslenzkir tónar og Útvarp Reykjavík, herstöðin á Miðnesheiði og HSH. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi, Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður og Andrés Jónsson almannatengill. Þau ræddu meðal annars hvalveiðimálið, netverslanir með áfengi, stöðuna á stjórnarheimilinu, mótmæli og Evrópumótið í fótbolta.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
![Næturtónar](/spilari/DarkGray_image.png)
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Morguntónar](/spilari/DarkGray_image.png)
Tónlist af ýmsu tagi.
Kristján Freyr stekkur í skó Felix Bergssonar, rabbar við hlustendur í morgunsárið og spilar huggulega tóna sem hæfa laugardagsmorgnum. Hin bráðskemmtilega Fimma er á sínum stað þar sem góðir gestir segja frá fimm skemmtilegum atriðum sem hafa breytt lífi þeirra
Gestur Fram og til baka þennan laugardagsmorgun miðs júnímánaðar var myndlistarkonan Elín Elísabet Einarsdóttir. Elín Elísabet hefur myndskreytt margar bækur fyrir börn og fullorðna, meðal annars bók um nýyrði Jónasar Hallgrímssonar, Á sporbaug, sem kom út fyrir fáeinum árum. Elín bauð upp á flögrandi skemmtilega fimmu; nefnilega fimm fugla.
Og að því tilefni var ekki hægt annað en að tileinka fuglum lagaval þáttarins og þar komu líkt og í sögum Elínar, ýmsir fuglar við sögu.
Hér er lagalisti þáttarins:
Frá kl. 09-10:
Billy Joel - Just The Way You Are.
Kirkjukór Hábæjarkirkju - Kvölds í blíða blænum.
Frá kl. 09-10
Fleetwood Mac - Albatross.
The Beatles - Blackbird.
The Housemartins - Build.
Elín Smáradóttir, Halldór Smárason - Ég bið að heilsa.
Grafík - Bláir fuglar.
Mugison - Two Birds.
Hörður Torfa - Litli fugl (Hausttónleikar Borgarleikhúsinu 2005).
Paul Simon - Mother And Child Reunion.
Hildur Vala - Songbird.
Geirfuglarnir - Næst síðasti Geirfuglinn.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Fimm eru á gjörgæslu og tveimur haldið sofandi eftir alvarlegt rútuslys í Öxnadal í gær. Að sögn lögreglu köstuðust tveir farþeganna út úr rútunni. Vegagerðin hafði varað við aðstæðum á veginum, meðal annars vegna malbiksblæðinga.
Forseti Rússlands hefur afhjúpað heimsvaldastefnu sína með því að krefjast þess að Úkraína gefi eftir landsvæði, segir Kanslari Þýskalands. Tugir þjóðarleiðtoga eru saman komnir í Sviss á ráðstefnu um frið í Úkraínu.
Áætlun Stætó á Keflavíkurflugvelli er ekki sett upp með þarfir flugfarþega í huga. Vegagerðin vill betri stað fyrir biðskýli og hefur ítrekað farið frammá það við Isavia að almenningssamgöngur séu kynntar betur í flugstöðinni.
Mótmælendur komu saman í Aþenu í gær til að minnast þess að ár er liðið síðan um 600 flóttamenn drukknuðu undan ströndum Grikklands. Kallað hefur verið eftir rannsókn á slysinu en fátt er um svör frá grískum yfirvöldum.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, snýr aftur til kennslu við Háskóla Íslands í haust. Þetta upplýsti rektor við útskriftarathöfn í dag.
Ein fyrsta bæjarhátíð sumarsins er hafin á Hofsósi. Við heyrum í fulltrúa í undirbúningsnefnd.
![Smellur](/spilari/DarkGray_image.png)
Njóttu laugardaganna með Völu Eiríks með smellum fyrri áratuga. Nostalgísk samvera og besta tónlistin.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 8. -15. júní 2024.
Spjallað við landann og leikin tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Næturvakt kvöldsins var klárlega bland í poka. Tónlist úr öllum áttum og ólíkar raddir. Létt og góð stemmning.
Tónlist þáttarins:
THE CHATS - Pub feed (mp3).
DOPE LEMON - Home Soon.
AC/DC - Ride On.
Lón - Hours.
Sigur Rós - Inní mér syngur vitleysingur.
SNOOP DOGGY DOGG - Gin And Juice.
BRUCE SPRINGSTEEN - Born In The U.S.A..
STEVIE WONDER - Signed, Sealed, Delivered.
Svavar Knútur Kristinsson, Kristjana Stefánsdóttir - Enn syngur vornóttin.
WHITNEY HOUSTON - I Will Always Love You [Special Radio Edit].
JÚNÍUS MEYVANT - Ain't gonna let you drown.
Cyrus, Billy Ray - Achy breaky heart.
Vintage Caravan, The - 04. Dark Times.
MARMALADE - Reflections Of My Life.
Upplyfting - Traustur vinur.
BJARTMAR & BERGRISARNIR - Á ekki eitt einasta orð.
AC/DC - Shot In The Dark.
BRAIN POLICE - Mr. Dolly.
TED NUGENT - Cat Scratch Fever.
The Jimi Hendrix Experience - Purple Haze.
Hjálmar - Kindin Einar.
OMD - Enola Gay.
FIONA APPLE - Across the Universe.
Martin, Dean - Volare.
VAN MORRISON - Into The Mystic.
CROSBY STILLS & NASH - Almost Cut My Hair.
ROLLING STONES - Sympathy For The Devil.
Einar Bragi Bragason, Aðalsteinn Ísfjörð - Gimli valsinn.
BILLY JOEL - Uptown girl.
Haraldur Reynisson - Sveitin mín heitir Breiðholt.