Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Pétur Grétarsson og Vera Illugadóttir hafa ofan af fyrir hlustendum nokkra sumarmorgna
Fenesta, ca lucive e mo nun luce – Vincento Bellini – Dieter Schnerring
Medio dia – Sergio Gonzales – Congreso 1998
Que alegres son las obreras = Söngur um hamingju vinnandi kvenna – Victor Jara
Quartier Latin - Friðrik Karlsson – Mezzoforte
Quando M' en vo = As I wander through the streets – Diddú og Sinfónían
Fimmta sumarleikhússýning Kómedíuleikhússins hefur nú verið sett á svið í litla samkomuhúsi leikhússins í Haukadal í Dýrafirði. Haukadalur er rétt vestan við Þingeyri og er meðal annars þekktur fyrir að vera hluti af sögusviði Gísla sögu Súrssonar. Að Kómedíuleikhúsinu standa hjónin Marsibil G. Kristjánsdóttir og Elfar Logi Hannesson. Halla Ólafsdóttir hélt í Haukadal og hitti Elfar Loga á tröppum litla leikhússins.
Summer wind – Meier/Bradke/Mercer - Frank Sinatra og Nelson Riddle
Ljóð dagsins - Einu konungar Íslands, Sigurður Pálsson les eigið ljóð
Fågeln - Eivör Pálsdóttir með stórsveit danska útvarpsins - Tröllabundin 2005
Úr ýmsum áttum, 6. september 1959 - Sveinn Skorri Hörskuldsson ræðir við Láru Ágústsdóttur miðil.
Miðillinn ópera eftir Menotti - Framhald fyrsta þáttar (Niðurlag) (síða IV) (Blær að ströndu) - Guðmunda Elíasdóttir og Þuríður Pálsdóttir
Alone - Pink is the color of my alter's ego soul – Björg Blöndal's C4THERINE 2025
Hrafninn – Gunnar Þórðarson. Djäss og Björn Atle Anfinsson
Atarnakh, Kurd song - Gurdjieff Folk Instruments Ensemble
Ship o hoj – Oddgeir Kristjánsson/Loftur Guðmundsson - Sextett Ólafs Gauks

07:30

08:30
Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
María Einarsdóttir framkvæmdastjóri NTC er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. María var orkumikið barn sem skipti nánast á einni nóttu íþróttum út fyrir tísku. Hún hefur lifað og hrærst í heimi tískunnar í áratugi en tók líf sitt í gegn fyrir um 15 árum, hætti að drekka og gerði upp áföll, meðal annars sáran barnsmissi en elsti sonur hennar lést aðeins nokkurra mánaða gamall.

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög við ljóð íslenskra ljóðskálda. Bubbi Morthens syngur eigið lag við Þjóðlag eftir Snorra Hjartarson og lag Ingva Þórs Kormákssonar við ljóðið Ólafsvíkurrútan eftir Anton Helga Jónsson. Berglind Björk Jónasdóttir syngur lag Ingva Þórs við ljóðið Vaknaði í gær eftir Úlfhildi Dagsdóttur. Björgvin Halldórsson syngur lag Bergþóru Árnadóttur við ljóðið Borgarljósin eftir Sigurð Anton Friðþjófsson og Bergþóra syngur eigið lag við ljóðið Nótt í erlendri borg eftir sama höfund. Ragnheiður Gröndal syngur lag Tómasar R. Einarssonar við ljóðið Sumarkvöld í Hvalfirði eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur. Teitur Magnússon flytur tvö frumsamnin lög, annarsvegar við Kysstu mig eftir Stefán frá Hvítadal og hinsvegar Háfjöllinrísa eftir Halldór Laxness. Að síðustu flytur Guðmundur Andri Thorsson tvö frumsamin lög, annarsvegar við ljóðið Þegar vetrarþokan grá eftir Þorstein Erlingsson og hinsvegar við Kvöldvísur Hallgríms Péturssonar.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Það er Regnbogahátíð á Austurlandi þessa vikuna. Það verða ýmsir viðburðir víða um Austurland, þau hófu leikinn á Bræðslunni í Borgarfirði en verða svo víða, götur verða málaðar, það verður lifandi tónlist og hinsegin listasmiðjur. Jódís Skúladóttir var á línunni að austan og sagði okkur frekar frá hátíðinni og Hinsegin Austurlandi sem einmitt stendur fyrir hátíðinni.
Safn vikunnar í þetta sinn var Þjóðminjasafn Íslands. Helga Vollertsen er sérfræðingur viðburða og fræðslu þar á bæ og hún var hjá okkur í dag og sagði okkur frá því sem er á döfinni í Þjóðminjasafninu þessa dagana og á næstunni. Þar er til dæmis verið að sýna brúðarbúning frá 18.öld sem fannst á sjöunda áratugnum í London. Eins eru verk Sólons Íslandus, eða Sölva Helgasonar, og fleira sem Helga sagði okkur frá.
Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Það er svo skrýtið / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Í sól og sumaryl / Stebbi og Eyfi (Gylfi Ægisson)
Við komum heim / Hinsegin Austurland, söngvarar m.a. Páll Óskar og Svavar Pétur Eysteinsson (Alexander Bard, Tim Norel og Jean-Pierre Barda, texti Jódís Skúladóttir, Stefán Bogi Sveinsson og Ingunn Bylgja Einarsdóttir)
Sunshine Reggae / Laid Back (Tim Stahl & John Guldberg)
Umsjón: Gunnar Hansson og Hulda Geirsdóttir

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Ingólfur Gíslason (1874-1951) var vel metinn læknir á fyrri hluta 20. og skrifaði magnaðar æviminningar sínar þar sem lýsti lækningaferðum sínum um ekki síst Vopnafjarðarhérað þar sem hann var lengi héraðslæknir. Hann flutti líka erindi í útvarpið um sama efni. Aðeins eitt erinda hans hefur varðveist í safni útvarpsins en það var flutt 1949 og þar segir hann frá ferð sinn á fund sjúklingsins Guðna gamla sem var illa haldinn af sullaveiki. Þetta er fyrri hluti frásagnar hans.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Sígild og samtímatónlist
Kynnir: Rakel Edda Guðmundsdóttir
Tónlistin í þættinum:
Konsert fyrir fiðlu og hljómsveit í D-dúr, op. 61 eftir Ludwig van Beethoven.
Þættir verksins eru:
1. Allegro ma non troppo
2. Larghetto
3. Rondo. Allegro
María Dueñas leikur einleik á fiðlu ásamt Sinfóníuhljómsveit Vínarborgar undir stjórn Manfred Honeck.
Hljóðritunin kom út í maí 2023.
Söngur án orða fyrir selló og píanó op. 109 eftir Felix Mendelssohn Bartholdy.
Sheku Kanneh-Mason leikur á selló og Isata Kanneh-Mason á píanó.
Hljóðritunin kom út í september 2022.
Umsjón: Illugi Jökulsson
Umsjón: Illugi Jökulsson
Á 3. áratug 20. aldar hófust umræður um hvort réttlætanlegt væri að þurfafólk, það er að segja fólk sem þáði sveitarstyrk af ýmsum ástæðum, væri þar með svipt ýmsum borgaralegum réttindum eins og verið hafði. Umræðurnar vörpuðu ljósi á viðhorf til þurfafólks bæði að fornu og nýju. Ragnheiður Kristjánsdóttir hefur skrifað um þetta bók í nýrri ritröð Sögufélags, Þurfamenn fá mannréttindi, og ræðir í þessum þætti við Illuga Jökulsson um bókina og ýmsa þætti málsins.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Salka Valka sem kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932, og segir verkið sögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, en hún elst upp á Óseyri við Axlarfjörð, á miklum umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar.
Samlesari Sölku Völku og sérstakur gestur þáttar er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari.
Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta verk sem tekið verður fyrir í bókaklúbbnum verður smáskáldsagan Úngfrúin góða og húsið; dagsetning verður nánar auglýst síðar.
Fréttir
Fréttir
Slökkviliðsmenn í Frakklandi standa frammi fyrir fordæmalausum gróðureldum, að sögn innanríkisráðherra landsins. Spáð er 40 stiga hita í Frakklandi á morgun.
Ríflega fjögur hundruð manns greiddu atkvæði utan kjörfundar um framhald viðræðna við ESB -- á fyrsta degi utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Áhættumat ríkislögreglustjóra er til endurskoðunar í ljósi árásarinnar á hinsegin dögum í Berlín um helgina.
Formaður Hinsegin daga á Íslandi segir skipuleggjendur í góðu samtali við lögreglu.
Manni var bjargað úr lífsháska eftir að hann brotlenti svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag.
Lögreglan er við öllu búin fyrir verslunarmannahelgina. Miðasala á þjóðhátíð er tekin að glæðast, en á Akureyri er búist við metfjölda.
Umsjón: Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Óhætt er að segja að sannkölluð sprenging hafi orðið á sviði net- og símglæpa af öllu tagi, á allra síðustu árum. Skipulögð, fjölþjóðleg glæpasamtök hafa komið sér upp stærðarinnar úthringi- og tölvuverum, sem gera ekki annað en að reyna að svíkja fé af fólki alstaðar í heiminum allan daginn alla daga allan ársins hring með hinum fjölbreytilegustu aðferðum. Og sækist það giska vel.
Raktar eru sláandi niðurstöður nýrrar skýrslu SÞ um umfang net- og símglæpa í Austur- og Suðaustur Asíu, Ástralíu og Nýja Sjálandi og rætt við Agnesi Ósk Marzellíusardóttur lögreglufulltrúa um stöðu mála hér á landi.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Hljóðritun frá kammertónleikum sem fram fóru á Schubert-hátíðinni í Schwarzenberg 21. júní sl.
Á efnisskrá eru tvö verk eftir Franz Schubert:
-Píanótríó nr. 1 í B-dúr, D. 898.
-Píanókvintett í D-dúr, D. 667, Silungakvintettinn.
Flytjendur: Renaud Capuçon fiðluleikari, Gérard Caussé víóluleikari, Julia Hagen sellóleikari, Lorraine Campet kontrabassaleikari og píanóleikarinn Guillaume Bellom.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Skáldsaga eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas.
Heimir Pálsson þýddi, en lesari er Ingrid Jónsdóttir.
Sagan er samin um 1930. Hún segir frá fólki á býlinu Framnesi. Þar býr Ambos, rekur stóran hestabúgarð og ekur með ferðamenn um héraðið. Svörtu hestarnir hans eru honum kærari en flest annað. Ambros var ekkjumaður og á uppkomin börn, en hefur fyrir skömmu kvænst í annað sinn, ungri konu, Lísu. Þau eiga tvö ung börn, en Lísa er annarar gerðar en Ambros og samlagast ekki lífinu á bænum, yfir hjónabandinu hvílir skuggi sem markar allt fólkið á Framnesi.
Tarjei Vesaas var einn af helstu höfundum Norðmanna á tuttugustu öld. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Klakahöllina, sem einnig hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sagan er 18 lestrar.


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Það er Regnbogahátíð á Austurlandi þessa vikuna. Það verða ýmsir viðburðir víða um Austurland, þau hófu leikinn á Bræðslunni í Borgarfirði en verða svo víða, götur verða málaðar, það verður lifandi tónlist og hinsegin listasmiðjur. Jódís Skúladóttir var á línunni að austan og sagði okkur frekar frá hátíðinni og Hinsegin Austurlandi sem einmitt stendur fyrir hátíðinni.
Safn vikunnar í þetta sinn var Þjóðminjasafn Íslands. Helga Vollertsen er sérfræðingur viðburða og fræðslu þar á bæ og hún var hjá okkur í dag og sagði okkur frá því sem er á döfinni í Þjóðminjasafninu þessa dagana og á næstunni. Þar er til dæmis verið að sýna brúðarbúning frá 18.öld sem fannst á sjöunda áratugnum í London. Eins eru verk Sólons Íslandus, eða Sölva Helgasonar, og fleira sem Helga sagði okkur frá.
Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Það er svo skrýtið / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Í sól og sumaryl / Stebbi og Eyfi (Gylfi Ægisson)
Við komum heim / Hinsegin Austurland, söngvarar m.a. Páll Óskar og Svavar Pétur Eysteinsson (Alexander Bard, Tim Norel og Jean-Pierre Barda, texti Jódís Skúladóttir, Stefán Bogi Sveinsson og Ingunn Bylgja Einarsdóttir)
Sunshine Reggae / Laid Back (Tim Stahl & John Guldberg)
Umsjón: Gunnar Hansson og Hulda Geirsdóttir

Útvarpsfréttir.
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Glænýtt safn um Gísla Gíslason á Uppsölum verður formlega opnað í Selárdal í Arnarfirði í byrjun ágústmánaðar. Einbúinn Gísli á Uppsölum varð þjóðþekktur í upphafi níunda áratugar síðustu aldar þegar sjónvarpsmaðurinn Ómar Ragnarsson tók hús á Gísla í þætti sínum Stiklum hér á RÚV. Hús Gísla hefur á síðustu mánuðum verið gert upp og mun hýsa safnið og sá sem veit sitthvað um þetta verkefni er Kári G. Schram sem sagði okkur frá safninu og hvað fram undan væri í Selárdal.
Yfir 300.000 hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni vegna skógarelda og talið er að um 420 ferkílómetra svæði hafi orðið eldi að bráð í Frakklandi. Þetta eru meðal umfangsmestu rýminga á friðartímum í sögu Frakklands og ljóst að þetta eru einir verstu skógareldar í sögu landsins. Brynja Huld Óskarsdóttir öryggis- og varnarmálasérfræðingur var á ferðalagi um Frakklandi um nýliðna helgi og lýsti óhuggulegri upplifun sinni á samfélagsmiðlum þar sem hún flúði Bordeaux í gulgráu landslagi, drunga og brunalykt.
Frami er nýr vefskóli sem byggir á þeirri sýn að menntun eigi að vera aðgengileg alla ævi. Frami býður upp á fjölbreytt námskeið m.a. á sviði tækni og forritunar, heilsu og vellíðan og ritista og bókmennta svo eitthvað sé nefnt. Í ágúst verður einnig boðið upp á krakkasmiðjur fyrrir börn á aldrinum 9–12 ára þar sem þau fá að kynnast hugarfari, sögum, tækni og fjármálalæsi. Kristín Hildur Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri Frama kom til okkar og sagði okkur allt um þennan nýja vefskóla og hvað er þar í boði.
Augu heimsins beinast þessa dagana að í Mið-Austurlöndum. Hlé hefur verið á stríði Írans og Bandaríkjanna síðustu nætur. Nóttin í nótt var sú þriðja í röð þar sem ekki berast fregnir af árásum milli ríkjanna vegna deilna um Hormússund sem liggur á milli Persaflóa og Ómanflóa. Vonir hafa kviknað að friðarsamingar náist. Það eru fáir íslendingar sem þekkja þessi mál jafn vel og Erlingur Erlingasson hernaðarsagnfræðingur. Hann er búsettur í London en er staddur hér á landi og mætti til okkat í hljóðver.
Austfirðingar hafa upplifað einmuna veðurblíðu upp á síðkastið og höfðu því skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Bræðslunnar á Borgarfirði eystra vaknað upp í sól og blíðu í undirbúningsvinnunni síðustu vikurnar. Það kom því afar flatt upp á Bræðslufólk að mæta allt í einu slagveðri, norðvestan roki og rigningu þegar hátíðin fór loks af stað um nýliðna helgi. Áskell Heiðar Ásgeirsson er einn af Bræðslustjórunum, er með meirapróf í viðburðahaldi en þurfti að takast á við krísustjórnun á hátíðinni í ár.

07:30

08:30

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Margrét Erla Maack fylgir fólki á góðum sumardögum, leikur lauflétta tóna og heldur gleðinni gangandi.
Fréttir
Fréttir
Slökkviliðsmenn í Frakklandi standa frammi fyrir fordæmalausum gróðureldum, að sögn innanríkisráðherra landsins. Spáð er 40 stiga hita í Frakklandi á morgun.
Ríflega fjögur hundruð manns greiddu atkvæði utan kjörfundar um framhald viðræðna við ESB -- á fyrsta degi utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Áhættumat ríkislögreglustjóra er til endurskoðunar í ljósi árásarinnar á hinsegin dögum í Berlín um helgina.
Formaður Hinsegin daga á Íslandi segir skipuleggjendur í góðu samtali við lögreglu.
Manni var bjargað úr lífsháska eftir að hann brotlenti svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag.
Lögreglan er við öllu búin fyrir verslunarmannahelgina. Miðasala á þjóðhátíð er tekin að glæðast, en á Akureyri er búist við metfjölda.
Umsjón: Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Óhætt er að segja að sannkölluð sprenging hafi orðið á sviði net- og símglæpa af öllu tagi, á allra síðustu árum. Skipulögð, fjölþjóðleg glæpasamtök hafa komið sér upp stærðarinnar úthringi- og tölvuverum, sem gera ekki annað en að reyna að svíkja fé af fólki alstaðar í heiminum allan daginn alla daga allan ársins hring með hinum fjölbreytilegustu aðferðum. Og sækist það giska vel.
Raktar eru sláandi niðurstöður nýrrar skýrslu SÞ um umfang net- og símglæpa í Austur- og Suðaustur Asíu, Ástralíu og Nýja Sjálandi og rætt við Agnesi Ósk Marzellíusardóttur lögreglufulltrúa um stöðu mála hér á landi.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Tónlist að hætti hússins.