Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt árið 2025 ár skammtafræðinnar.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Í þessum þáttum, frá 2023, kynnum við okkur heim skammtafræðinnar, og brjótum heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.
„Leggðu þig á láðið, hvar lækjarbunur hvína. Farðu svo að þenkja þar um þig og sköpunina," orti skáldið Sigurður Breiðfjörð á fyrri hluta 19. aldar. Við veljum okkur vænan íslenskan lautarbarm, látum okkur falla í dúnmjúkan mosann og hlýðum á streymi vatnsins allt um kring. Hefjum þar að þenkja um það smæsta, og í senn það stærsta; eindir jarðar, minnstu einingar alls og einskis samkvæmt skammtafræðinni. Í þessari þáttaröð horfum við á jörðu og himinsfar, hafsins firna díki, „Gættu að rétt, hver þú ert þar í þessu stóra ríki," eins og Sigurður Breiðfjörð orðaði það. Við kynnum okkur heim skammtafræðinnar, í því ljósi brjótum við heilann um tímann, svarthol, grátt efni, hvítt efni og raunar allra handa efni.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir.
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fyrir einum og hálfum mánuði var lögum íslenska fánann breytt. Nú má flagga allan sólarhringinn, fram í miðjan ágúst. Við ræddum um þessa breytingu og ýmislegt annað sem tengist fánanum við Hörð Lárusson sem er vel heima í efninu.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá mikilli kæti í Þýskalandi eftir góðan sigur fótboltalandsliðsins á HM á sunnudaginn og fjallaði um gamalt bréf sem Sigmund Freud sendi kunningja sínum fyrir margt löngu en kom nýlega í leitirnar.
Á morgun fögnum við lýðveldisstofnuninni. Að vanda verður messa á Hrafnseyri í Arnarfirði, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar; séra Hildur Inga Rúnarsdóttir, prestur á Þingeyri, messar. Við slógum á þráðinn til hennar.
Tónlist:
Christopher Glynn, Rachel Podger - Sonata in F Major, op.24 : II. Adagio molto espressivo.
Valgeir Guðjónsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir - Vögguvísa í húsi farmanns.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við rákumst á áhugaverða grein sem Miriam Petra Ómarsdóttir Awad skrifaði í Heimildina undir fyrirsögninni Hugleiðingar um vestræna menningu. Þar veltir hún fyrir sér hvernig hugmyndin um „vestræna menningu“ mótar sýn okkar á annað fólk. En föðurfjölskylda hennar er egypsk og hún hefur í gegnum tíðina lent ítrekað í þeirri stöðu að finna sig knúna til þess að sannfæra viðmælendur sína um að þau væru gott fólk og oftar en ekki að „þau væru sko mjög vestræn“. Miriam var hjá okkur í þættinum í dag.
Landsmót UMFÍ 50+ fer fram helgina og aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík. Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Keppt verður í 18 greinum á mótinu og við slógum á þráðinn norður og töluðum við Ómar Braga Stefánsson landsfulltrúa og framkvæmdastjóra Landsmóta UMFÍ.
Notkun tíðahvarfahormóna hefur aukist talsvert hér á landi síðustu fimm ár. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að það er ekki áhættulaust, eins og margir gætu haldið, heldur er talið að þau geti aukið áhættu á brjóstakrabbameini hjá konum ef þau eru notuð of lengi og í of miklu magni. Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir og prófessor í Háskóla Íslands segir tíðahvarfahormón klárlega eiga rétt á sér ef einkenni breytingaskeiðs hjá konum eru mikil og þrálát en þá til eins skamms tíma og hægt er. Helga Arnardóttir ræddi við Sigurdísi í Heilsuvaktinni í dag um þetta og helstu áhættuþætti fyrir krabbameini hjá konum.
Tónlistin í þættinum:
Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Matt Poulson, texti Iðunn Steinsdóttir)
Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, texti Tómas Guðmundsson)
Lets Go Away for a While / Beach Boys (Brian Wilson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Guðmundur Óli Scheving.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir
Börn eru allskonar og í fullkomnum heimi ætti það ekki að skipta neinu máli. Þau fengju einfaldlega þjónustu við hæfi, svona eins og lög gera ráð fyrir. En kerfið hefur átt erfitt með að laga sig að breyttum heimi. Viðmælendur í þættinum eru: Guðbjörg Rut Þórisdóttir, Meyvant Þórólfsson og Sara Rós Kristinsdóttir. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.


Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Umsjónarmaður las á síðasta ári margvíslegt efni úr Veröld sem var, æviminningabók Stefans Zweigs sem jafnframt er mögnuð samtímalýsing á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöld í Vínarborg og síðan eftirstríðsáranna.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Tónleiksþátturinn að þessu sinni verður helgaður tónlist eftir konur, samin fyrir konur og í flutningi kvenna, enda er 19. júni helgaður kvenréttindum á Íslandi. Flutt verða verk eftir helstu tónskáld landsins; Jórunni Viðar, Karólínu Eiríksdóttur, Misti Þorkelsdóttur, Elínu Gunnlaugsdóttur, Báru Grímsdóttur og Selmu Kaldalóns, enda af nógu af taka úr smiðju íslenskra kventónskálda.

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir
Börn eru allskonar og í fullkomnum heimi ætti það ekki að skipta neinu máli. Þau fengju einfaldlega þjónustu við hæfi, svona eins og lög gera ráð fyrir. En kerfið hefur átt erfitt með að laga sig að breyttum heimi. Viðmælendur í þættinum eru: Guðbjörg Rut Þórisdóttir, Meyvant Þórólfsson og Sara Rós Kristinsdóttir. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Skráð af Þórbergi Þórðarsyni.
Pétur Pétursson les.


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við rákumst á áhugaverða grein sem Miriam Petra Ómarsdóttir Awad skrifaði í Heimildina undir fyrirsögninni Hugleiðingar um vestræna menningu. Þar veltir hún fyrir sér hvernig hugmyndin um „vestræna menningu“ mótar sýn okkar á annað fólk. En föðurfjölskylda hennar er egypsk og hún hefur í gegnum tíðina lent ítrekað í þeirri stöðu að finna sig knúna til þess að sannfæra viðmælendur sína um að þau væru gott fólk og oftar en ekki að „þau væru sko mjög vestræn“. Miriam var hjá okkur í þættinum í dag.
Landsmót UMFÍ 50+ fer fram helgina og aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík. Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Keppt verður í 18 greinum á mótinu og við slógum á þráðinn norður og töluðum við Ómar Braga Stefánsson landsfulltrúa og framkvæmdastjóra Landsmóta UMFÍ.
Notkun tíðahvarfahormóna hefur aukist talsvert hér á landi síðustu fimm ár. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að það er ekki áhættulaust, eins og margir gætu haldið, heldur er talið að þau geti aukið áhættu á brjóstakrabbameini hjá konum ef þau eru notuð of lengi og í of miklu magni. Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir og prófessor í Háskóla Íslands segir tíðahvarfahormón klárlega eiga rétt á sér ef einkenni breytingaskeiðs hjá konum eru mikil og þrálát en þá til eins skamms tíma og hægt er. Helga Arnardóttir ræddi við Sigurdísi í Heilsuvaktinni í dag um þetta og helstu áhættuþætti fyrir krabbameini hjá konum.
Tónlistin í þættinum:
Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Matt Poulson, texti Iðunn Steinsdóttir)
Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, texti Tómas Guðmundsson)
Lets Go Away for a While / Beach Boys (Brian Wilson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Hlaupaklúbburinn HHHC og Kraftur taka höndum saman og bjóða upp á skemmtilegt tíu kílómetra hlaup á sjálfan þjóðhátíðardaginn á morgun. HHHC er hraðskreiðasti hlaupahópur landsins en ætlar að hægja töluvert á sér í tilefni dagsins og njóta samverunnar með hlaupurunum sem taka þátt. Þátttaka í hlaupinu er ókeypis en hlauparar eru hvattir til að styrkja Kraft, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Sólveig Ása Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krafts mætir til okkar ásamt hlauparanum Pétri Ívarssyni.
Í nýrri fjármálaáætlun, sem samþykkt var á Alþingi í gær, er gert ráð fyrir að dregið verði úr fjárframlögun til framhaldsskóla á næstu árum. Félag framhaldsskólakennara hefur gagnrýnt áformin harðlega og segir að sennilega sé um að ræða meiri niðurskurð en áður hefur sést hér á landi á skólastiginu. Guðjón Hreinn Hauksson formaður félags framhaldsskólakennara kom til okkar.
Hilmar Gunnarsson, nýkjörinn bæjarstjóri Mosfellsbæjar, hefur verið allt í öllu í bænum undanfarin ár. Hann gaf út bæjarblaðið Mosfelling af miklum myndarskap um árabil, stýrði Hlégarði og greip í trompetinn á bæjarhátíðum við mikinn fögnuð bæjarbúa. Nú er hann orðinn bæjarstjóri, eftir frækinn kosningasigur Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, og þá liggur beinast við að spyrja: Hvernig ætlar bæjarpepparinn að gera Mosfellsbæ betri? Hilmar kom til okkar.
Í gær var alþjoðlegur dagur blóðgjafar og við rákum augun í fólk frá Blóðbankanum sem statt var í Kringlunni af þessu tilefni að hvetja fólk til að gefa blóð. Við ákváðum því að heyra í Davíð Guðmundssyni, formanni Blóðgjafafélagins ,og spyrja út í stöðuna þar.
Okkar maður Sigurgeir Svanbergsson, sjósundsmaður frá Eskifirði, lagði í gærkvöldi af stað í mikla hetjuför niður Lagarfljót. Sigurgeir ætlaði að synda um 50 kílómetra og safna um leið fé til stuðnings Píeta-samtökunum. Áætlað var að sundið taki um sólarhring en eftir 15 kílómetra þurfti Sigurgeir að hætta vegna ofkælingar. Vigdís Diljá Óskarsdóttir var á línunni hjá okkur.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Tónlist að hætti hússins.

Bein útsending úr Kaplakrika frá hinni árlegu Hittaramessu Friðriks Dórs. Allir hittararnir, leynigestir og orka sem finnst hvergi annarsstaðar!
Þetta er fjórða árið í röð sem Friðrik Dór heldur Hittaramessu og er hún sú stærsta hingað til.