Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Pétur Grétarsson setur á fóninn vínil vikunnar.
Great Times! er plata sem fóstbræðurninr Duke Ellington og Billy Strayhorn gerðu saman í byrjun árs 1950. Hún hefur að geyma píanódúetta sem þróuðust í partíum á löngum samstarferli þeirra.
Lagalisti:
Hlið A
Cottontail - Duke Ellington
C Jam Blues - Duke Ellington
Flamingo - Groya/Anderson
Bang-Up Blues - Duke Ellington
Tonk - Ellington/Strayhorn
Johnny Come Lately - Billy Strayhorn
Hlið B
In a Blue Summer Garden - Ellington/Strayhorn
Great Times - Duke Ellington
Perdido - Juan Tizol
Take the "A" Train - Billy Strayhorn
Ocalypso - Oscar Pettiford
Blues for Blanton - Duke og Mercer Ellington
Aukalag þáttarins:
Mood Indigo - Bigard/Ellington/Mills
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 24. maí 2014.
Umsjón: Jón Óskar Hafsteinsson
Jón Óskar leikur tónlist að eigin vali.

frá Veðurstofu Íslands.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli.
Umsjón: Anna Marsbil Clausen
Bruninn var hægur þegar Sólveig og Svandís kynntust í landsliðinu í körfuknattleik, gætu þær falið blossann þegar hann loksins kviknaði?

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum.
Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjálfstæðra miðla og það sé ekki aðeins úrelt fyrirkomulag að ríkið fjármagni miðlana heldur spilli það fyrir sjálfstæðri blaðamennsku. Hallgrímir Indriðason vann þessa umfjöllun í febrúar og ræddi við Ingibjörgu Þórðardóttur sem er fyrrverandi fréttastjóri BBC og CNN í Bandaríkjunum. Hún sagði umræðuna um að ríkismiðlar hafi of mikil áhrif á fjölmiðlamarkaðinn góða og gilda en hún eigi ekki við Bandaríkjunum. Almannaþjónustumiðlarnir, NPR og PBS, eigi ekki roð í stærstu einkamiðlana og hvarf þeirra hefði lítil eða engin áhrif á þá. En það myndi hins vegar gera fjölmiðlalandslandslagið bæði einhæfara og fátæklegra.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Fátt finnst Inga Garðari Erlendssyni skemmtilegra en að vinna með börnum, nema það sé þá kannski að gera tilraunir í tónlist. Hann var einn af félögum í S.L.Á.T.U.R. hópnum, sælla minninga, sem leitaði nýrra leiða til að semja og flytja tónlist og er enn að leita.
Lagalisti
CD Hefti 1 - S:I-S:II
Óútgefið - Tveir
Óútgefið - Fimm
Roto Con Moto - Streptococcaceae
Skeylja - Hoarn
Óútgefið - Pólýkubb með rana
Óútgefið - Þránófónn í Mengi
Stjórnendur Lestarinnar, þau Lóa og Kristján, kryfja popplög með Friðriki Margrétar Guðmundssyni, tónskáldi, tónlistarmanni og poppmeinafræðingi.
Við kryfjum lagið Tears með Sabrinu Carpenter til mergjar. Textinn er klúr og kaldhæðnisslegur og tónlistin er diskó-leg.
Umsjón:
Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson

Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir
Michael Jackson sendi frá sér sína síðustu stúdíóplötu árið 2001 og bar hún nafnið Invincible. En var hann ósigrandi? Í þessum þætti skoðum við feril Michael Jackson í kringum aldamótin er hann háði baráttur á ýmsum vígstöðum og fór meðal annars í sjálfskipaða útlegð til Arabalanda.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. júlí 2015.

Útvarpsfréttir.
Erlendur Guðmundsson í Unuhúsi var velgjörðamaður listamanna á fyrrihluta tuttugustu aldar og ásamt móður sinni Unu Gísladóttur rak Unuhús, litla rauða timburhúsið í Garðastræti. Í þremur þáttum tileinkuðum Erlendi kynnumst við manninum gegnum augu vina hans, þeirra Þórbergs Þórðarsonar, Halldórs Laxness og Nínu Tryggvadóttur. Í Unuhúsi var rekið gistiheimili og voru þar haldnar kvöldvökur þar sem list, pólitík, heimsmál, heimspeki og trúmál voru rædd í þaula og má gera ráð fyrir að hafi verið skjól fyrir bæði fólk sem átti ekki í önnur hús að venda sem og róttæka hugmyndafræði. Verður sjónum einnig beint að rýminu Unuhúsi og því sem einkenndi það, sem og listinni sem var að brjótast upp á yfirborðið á þessum tíma.
Viðmælendur eru Pétur Gunnarsson, Soffía Auður Birgisdóttir, Jón Karl Helgason, Rósa Magnúsdóttir, Halldór Guðmundsson, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Ásdís Ólafsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson.
Umsjón hefur Sunneva Kristín Sigurðardóttir.
Nína Tryggvadóttir málari kemur í Unuhús árið 1939. Nína er nýkomin að utan og staldrar stutt við í Unuhúsi, flyst til New York 1943. Hún verður náin vinkona Erlendar og annarra listamanna í Unuhúsi og má líta á portrettverk þeirra Nínu og Louisu Matthíasdóttur sem gestabók Unuhúss þessa tíma. Róttækir málarar og skáld sem sækja Unuhús eiga undir högg að sækja fyrir hugmyndafræði sína. Nína og Erlendur verða perluvinir og má sjá ástina skína úr bréfum þeirra á milli eftir að Nína flyst út. Listin er öllu fremri.
Viðmælendur eru Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Pétur Gunnarsson rithöfundur og Jón Karl Helgason prófessor við Háskóla Íslands.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Scott McLemore um tónlist hans og birtingarmynd hennar á Multiverse plötunum, sem eru þrjár enn sem komið er.
Þeir ræða einnig um hvernig músíkin verður til, hvernig er að tala íslensku þegar maður er fæddur í Virginíufylki Bandaríkjanna og ýmislegt fleira.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Scott:
The Multiverse
Begin Again
Onward
Fearless Lieder
Take a Stand

Fréttir

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Kvartett Francesco Cafiso leikur lögin Imagination, Polka Dots and Moonbeams, Lullaby of Birdland, What's New, Speak Low og Willow Weep For Me. Kvartett Gerry Mulligan og Chet Baker flögin Five Brothers, Ide's Side, Funhouse, Tea For Two, I Can't Get Started, Darn That Dream og My Funny Valentine. John Dankwort leika lögin Stompin' At The Savoy, Days Of Wine And Roses, Moon Valley, Son Of Sparky, Spooks og Close To You.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Arnór Sigurjónsson ritstjóri sá um Daglegt mál í Ríkisútvarpinu árið 1957. Í tveimur þáttanna talaði hann um nýyrðið bifreið, sem hann var ekki mjög hrifinn af. Bifreið og önnur heiti á þessum þarfasta þjóni nútímans var einnig tekið fyrir í Orði af orði árið 2017. Hér eru þessum gömlu þáttum gerð nokkur skil.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.


frá Veðurstofu Íslands

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Fram og til baka er í sumarskapi og Fimman var send í frí fram í lok ágúst. En Felix er á sínum stað og fylgist vel með því sem er að gerast um landið og miðin. Við heyrðum af því sem gerðist á deginum, hringdum í Hilmar Oddsson og heyrðum nýtt lag með Melchior. Svo var rætt um Sumarjazz á Jómfrúnni og beina útsendingu RÚV frá tónleikum Tómasar R Einarssonar og Bogomil Font í dag.

Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.

Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.
Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.
Diskókúlan snýst í Efstaleitinu á laugardagskvöldum í sumar.
Dagskrárliðir eins og Diskótvennan, Frímínútur, Dansárið er, Party Zone múmíur og íslenska lagið verða öll á sínum stað og við hristum í góðan kokteil í seinni hlutar þáttar.
Í þessum þætti er dansárið árið 1996 þar sem meðal annars PartyZone '96 mixdiskurinn kom út og verða lög frá því frábæra tónlistarári í flestum dagskrárliðum þáttarins.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
