23:10
Lestin
Hexekver, heyrnartól sem einkarými, hundaganga með Ófeigi

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Hexekver er heiti lítt þekktrar galdrabókar frá 1859. Hinn fjölkunnugi bóndi Þorsteinn Guðmundsson skrifaði bókina á sínum tíma en nú er hún fáanleg á ensku í öllum helstu bókabúðum. Við ræðum við þýðendurna Kára Pálsson og Giorgiu Sottotetti um rúnir og galdra.

Svo fáum við glænýjan pistil um einkarýmið eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, rithöfund, en að þessu sinni beinir hún sjónum sínum að byltingarkenndri uppfinningu, heyrnartólunum.

Og fyrir þá hlustendur sem hafa saknað Lóu Bjarkar sem hefur verið fjarri góðu gamni undanfarið ætlum við að spila innslag úr Tengivagninum frá því í sumar þar sem hún kíkti í hundagöngutúr á Hólmsheiði með rithöfundinum Ófeigi Sigurðssyni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 55 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Endurflutt
,