07:03
Morgunvaktin
Vísitölur, kvikmyndahús og kvikmyndatónlist

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Við ræddum um vísitölu neysluverðs, þessa sem notuð er til að reikna út verðbólguna. Er þar að baki neysla og lífsstíll meðal Íslendingsins; það sem fólk borðar og gerir; það sem fólk borgar fyrir. Ásta Jenný Sigurðardóttir sérfræðingur á Hagstofunni í vísitölum drakk með okkur morgunkaffið.

Við spjölluðum svo um kvikmyndahús og kvikmyndir. Þór Martinsson sagnfræðingur var gestur okkar en hann hefur undanfarið skoðað og velt fyrir sér reykvískum kvikmyndahúsum og áhrifum þeirra á borgarmenninguna síðustu rúmu hundrað árin.

Svo var áfram fjallað um áhrif kvikmynda - eða kvikmyndatónlistar - í síðasta hluta þáttarins. Þá rifjuðum við upp spjall sem við áttum við Magnús Lyngdal árið 2024.

Tónlist:

Ragnar Bjarnason - Vorkvöld í Reykjavík.

Louis Mhlanga - Rhumba all the way.

Kinks - Waterloo sunset.

Sigrún Hjálmtýsdóttir - Stella í orlofi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,