Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fyrir helgi bárust fréttir af þróun á nýrri tegund einhvers konar allsherjarbóluefnis í Bandaríkjunum. Þetta er reyndar ekki bóluefni eins og Ásgeir Haraldsson, prófessor í barnalækningum og yfirlæknir, sagði frá í þættinum. Ásgeir ræddi þessar spennandi rannsóknir og ýmislegt fleira.
Uppbygging er fyrirhuguð á Króksfjarðarnesi, bæði hafa fengist styrkir til uppbyggingar matvælaseturs og til að stofna þróunarfélag. Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðarstofu, sagði frá.
Vitundarvakning fyrir Einstök börn er í þessari viku, en rúmlega 900 börn og ungmenni hér á landi eru í félaginu og með sjaldgæfan og alvarlegan sjúkdóm eða heilkenni. Guðrún Helga Harðardóttir framkvæmdastjóri samtakanna kom í þáttinn.
Tónlist:
Carpenters - Rainy days and mondays.
Carpenters - (They long to be) Close to you.
Carpenters - Superstar.

07:30

08:30
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Hróflur er frá Bolungarvík einn af sjö systkinum, sem yfirleitt eru kölluðuð Vagnsbörn.
Hrólfur hefur búið í Þýskalandi í 40 ár , en hugur hans er alltaf á Hesteyri.

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Leikin eru nokkur lög, eftir erlenda og íslenska höfundar, þar sem ljóðaþýðingar Magnús Ásgeirssonar eru í forgrunni. Anna Pálína Árnadóttir flytur Söng Fríðu, sem er líka þekkt undir heitinu Í fyrsta sinn ég sá þig, Gunnar Guttormsson syngur lög sem heita Mansöngvarinn og Ameríkubréf, Einsöngvarakvartettinn syngur Kvæði um einn kóngsins lausamann, Lónlí blú bojs syngja Laugardagskvöld á Gili, Bubbi Morthens flytur eigin lög við kvæðin Eins og gengur og Bólivar, Páll Óskar Hjálmtýsson syngur Enska manvísu frá 14. öld, Ólafur Þórarinsson syngur eigið lag við kvæðið Kapellan, Sigurboginn flytur lag Sigurðar J. Grétarssonar við kvæðið Regla og Lítið eitt syngja kvæðið Konungurinn í Thule.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru nokkur lög frá ýmsum tímum sem hafa annaðhvort verið samin við ljóð eða þá að lagasmiðir hafa leitað til skálda um að yrkja söngkvæði. Lögin í þættinum eru Lítill fugl, ljóðið eftir Örn Arnarson, í túlkun Ernu Gunnarsdóttur og Íslenskt ástarljóð, ljóðið eftir Vilhjálm frá Skáholti, í túlkun Helga Björnssonar, bæði lögin eftir Sigfús Halldórsson. Herbergið mitt og Fallvölt rós, ljóðin eftir Vilhjálm frá Skáholti og lögin eftir Arnar Sigurbjörnsson. Brimkló annast flutning laganna. Jesús Kristur og ég, ljóðið eftir Vilhjálm frá Skáholti, lagið eftir Magnús Eiríksson, Mannakorn flytur. Vorkvæði um Ísland eftir Jón Óskar, Allt verður minning þín, ljóð eftir Vigdísi Grímsdóttur, Karl Tómasson flytur bæði lögin. Þegar ég praktíseraði og Kvæðið um pennann, bæði ljóðin eftir Tómas Guðmundsson og lögin eftir Þormar Ingimarsson. Pálmi Gunnarsson syngur fyrra lagið en Ríó tíó flytur seinna lagið. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Það virðist vera sem gufu- eða gusuæði sé runnið á Íslendinga. Framundan er ferðalag sem farið verður í maí og þemað í þessari ferð eru sánur og það verður farið til Eistlands, Lettlands og Finlands og þar verða allskonar mismunandi sánumeðferðir, t.d. með nuddi og dekri inni í sánunum. Leifur Wilberg Orrason og Jura Aku hafa verið að gusa saman í Sækoti, þar sem þau hafa haldið sánagusur. Við ræddum um sánur, gusur, fargufur og alla þessa sánumenningu sem er að myndast á Íslandi.
Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV emur til okkar annan hvern mánudag með gullmola af safni RÚV. Í tilefni þess að í gær var konudagurinn haldinn hátíðlegur dró Helga Lára fram úr safninu stuttan fréttaauka sem var fluttur þann 30.júní árið 1950, eða fyrir 76 árum, þar sem ræddust við tvær merkilegar konur; fréttakonan Margrét Indriðadóttir og Margrét Tryggvadóttir húsmóðir. Þar segir frá orlofsferð húsmæðra úr Vestur Húnavatnssýslu um Suðurland.
Svo var Örn Úlfar Sævarsson texta- og hugmyndasmiður og spurningahöfundur, lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Örn Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og/eða höfunda:
Jötunsteinn e. Andra Snæ Magnason
Vegur allrar veraldar e. Sigríði Hagalín
Passíusálmarnir e. Hallgrím Pétursson
Tónlist í þættinum í dag
Leikur að vonum / Ólafur Þórarinsson (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik)
Regndropar falla við hvert fet/ Engilbert Jensen (Burt Bacharah, texti Þorsteinn Eggertsson) 1970
Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Áætlað er að rúmlega 32 hektarar hafi brunnið í gróðureldum við Elliðavatn í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hvetur fólk til að vera á varðbergi vegna gróðurelda. Í annarri vindátt hefðu vatnsból höfuðborgarbúa getað verið í hættu.
Rússar gerðu umfangsmiklar árásir á Úkraínu í gær og í nótt. Á morgun eru fjögur ár frá upphafi stríðsins. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir valdi beitt gegn lögum víða um heim.
Utanríkisráðherra varaði við mikilli afturför í grundvallarmannréttindum á alþjóðavísu, í stefnuræðu sinni í mannréttindaráði Sameinuðu Þjóðanna í dag.
Hafrannsóknastofnun metur hve mikið laxeldi er óhætt að hafa í Mjóafirði, líklega verður hægt bjóða út eldi í firðinum í vor eða sumar.
Óeirðir hafa stigmagnast í Mexíkó eftir að herinn felldi yfirmann eins umfangsmesta glæpagengis landsins í gær.
Matvælasetur og uppbygging í Króksfjarðarnesi á sunnanverðum Vestfjörðum fá styrk úr byggðaáætlun. Staðsetning, jarðhiti og raforka í fela í sér möguleika í ferðaþjónustu segir framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu
Norðmenn voru sigursælastir á vetrarólympíuleikunum sem lauk í gærkvöld, unnu bæði flest gullverðlaun og verðlaun í heildina.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í dag beinum við sjónum okkar út í geim - að mögulegu lífi annars staðar en á jörðinni okkar. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nefnilega skipað alríkisstofnunum, meðal annars varnarmálaráðuneytinu, að yfirfara og birta öll gögn og upplýsingar sem tengjast óþekktum fljúgandi fyrirbærum og geimverum. Rætt er við Sævar Helga Bragason.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Helgir dómar eru gripir gerðir úr líkamsleifum heilagra manna eða öðrum hlutum sem hafa með einum eða öðrum hætti komist í snertingu við dýrlinga. Þeir gegna mikilvægu hlutverki í helgihaldi og trúarsiðum kaþólikka. Flís úr krossi Krists, bein úr hinu og þessu helgu fólki, brot úr innyflum þeirra eða snifsi úr klæðum og blóðdreitlar úr fyrrum páfum í litlum flöskum eru dæmi um helga dóma. Griprirnir eru gjarnan varðveittir inni í altaristöflum kaþólskra kirkja en finnast sömuleiðis í einkaeigu fólks. Í þessum þætti kynnir Anna Gyða Sigurgísladóttir sér safn helgra dóma á Íslandi.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Sónata nr. 4 í a moll op. 23 eftir Ludwig van Beethoven.
Verkið er í 3 þáttum:
I. Presto
II. Andante scherzoso, piu allegretto
III. Allegro molto
Flytjendur eru Isabelle Faust fiðluleikari og Alexander Melnikov píanóleikari.
Útgefið árði 2009 á plötunni Complete sonatas for piano and violin.
Söngljóð úr ljóðaflokknum Liederkreis op. 24 eftir Robert Schumann við ljóð eftir Heinrich Heine. Ljóðin í flokknum eru alls níu en leikin eru fjögur þeirra:
Nr. 3 Ich wandelte under den Bäumen
Nr. 5 Schöne Wiege meiner Leiden
Nr. 6 Warte, warte wilder Schiffmann
Nr. 9 Mit Myrten und Rosen
Andri Björn Róbertsson bassabaríton syngur, Ástríður Alda Sigurðardóttir leikur á píanó.
Hljóðritað í Salnum, Kópavogi 12.-15. apríl 2021.
Horn konsert nr. 1 í D-dúr eftir Franz Joseph Haydn.
Verkið er í þremur þáttum:
1. Allegro
2. Adagio
3. Allegro
Barry Tuckwell leikur einleik á horn ásamt hljómsveitinni Academy of St. Martin-in-the-Fields-sveitinni undir stjórn Neville Marriner.
Útgefið á plötunni Haydn concertos : trumpet, horn, cello árið 1967.
To fleeting pleasures make your court úr óratóríunni Samson eftir Georg Friedrich Händel. Renée Fleming sópran syngur, Hljómsveit upplýsingaaldarinnar leikur undir stjórn Harry Bicket.
Útgefið á plötunni Renée Fleming : Händel árið 2004.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Franski rithöfundurinn Alexandre Dumas er miðpunktur þáttarins í dag. Hann er langfrægastur fyrir bækurnar Greifinn af Monte Cristo, Skytturnar þrjár og Maðurinn með járngrímuna. En hann skrifaði heilan haug af öðrum bókum og leikritum, enda var hann lengi vel með her skósveina sem skrifuðu fyrir hann og með honum.
Saga hans er líka svo áhugaverð, hann fæddist skömmu eftir aldamótin 1800 þegar allt var á stjórnmálalegum suðupunkti í Frakklandi eftir byltinguna; Napóleon, aftur yfir í konung, svo aftur Napóleon. Faðir Dumas barðist í byltingunni og var síðar virtur hershöfðingi í franska hernum. Hann fæddist í frönsku nýlendunni Santki Dominík í Vestur-Indíum, þar sem nú er Haítí. Faðir hans var franskur aðalsmaður, hvítur þrælahaldari en móðir hans var þræll hans, svört kona af óþekktum afrískum uppruna. Alexandre Dumas ólst upp föðurlaus og í sárafátækt hjá móður sinni og varð svo einn afkastamesti og frægasti rithöfundur Frakka fyrr og siðar. Faðirinn sem hann fékk ekki að kynnast var samt goðsögn í augum Dumas og var hann innblástur að mörgum af persónunum í bókunum. Bækur Dumas, sem sumar fara að nálgast 200 ára aldur, eru enn þá gríðarlega vinsælar og mikið þýddar og Dumas er á topplista yfir mest þýddu höfunda sögunnar. Sögurnar hafa líka orðið reglulega innblástur fyrir bíó, sjónvarp og leikhús. Ein þessara bóka, Greifinn af Monte Cristo, verður einna mest í brennidepli í dag.
Viðmælendur: Ragnhildur Helgadóttir, Sigurjón Bergþór Daðason og Guðrún Kristinsdóttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
„Rauði liturinn er blóð. Bara það að vera kona og vera ein, og starfa í myndlist, þar er mjög erfitt. Laun kvenna hafa verið miklu lægri. Það er bara töff að vera í þessu,“ segir Margrét Jónsdóttir um eitt verka sinna sem nú hangir uppi í Listasal Mosfellsbæjar. Verkin á sýningunni eru máluð á ólíkum tímum en tala saman á óvæntan hátt. Stór eldri vatnslitaverk kallast á við nýrri verk þar sem frumur, fræbelgir og heilög sár í rauðum og grænum tónum minna á hringrás lífsins. Víðsjá heimsótti Listasalinn og ræddi við Margréti um sveitauppeldi á Íslandi og sveitalíf í Frakklandi, fegurð og forgengileika, líf myndlistarkonu, blóð, hundaskít, ellibelgi og dýran pappír.
Tómas Ævar fjallar um brot úr ævi tónlistarmannsins Henry Threadgill, en hann gaf út hálf lygilega ævisögu sína fyrir þremur árum. Á ótrúlegri ævi hleypur hann til að mynda undan kúlnahríði lögreglunnar níu ára, tekur hávær saxófón sóló fyrir trylltan söfnuð uppfullan af heilögum anda þegar hann er táningur, strýkst upp við tígrisdýr í skógum Víetnam og hrærist í margar vikur undir væng sikileysku mafíunnar.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Getur Slapp verið appið sem bjargar okkur? Tveir æskuvinir hafa stofnað nýjan samfélagsmiðil sem er einungis fyrir íslendinga og þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á hann. Þannig ekki er hægt að koma þar fram undir huldu höfði. En hvernig er að nota þennan miðil? Hvað virkar og hvað virkar ekki? Við veltum fyrir okkur kostum og hindrunum með Reyni Ólafssyni, álitsgjafa Lestarinnar.
Komin eru 20 ár síðan Næturvaktin, einn ástælasti íslenski sjónvarpsþátturinn, var sýndur í sjónvarpi. Nú sjá MR-ingar fyrir sér að setja hann upp í leikriti Herranætur í vor, en mörg í leikhópnum voru ekki fædd þegar þættirnir voru sýndir.
Og við förum yfir fréttir af BAFTA-verðlaununum. Hverjir voru sigurvegarar kvöldsins og hvað var ritskoðað og hvað ekki.
Fréttir
Fréttir
Útsýnispallurinn í Reynisfjöru næstum hvarf í miklu brimróti og stórstreymi í gærkvöld. Landeigandi segir þetta þó ekki ógna ferðamönnum því ekki er fært alveg niður í fjöruna.
Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á misferli í opinberu starfi.
Látlausar árásir Rússa og leit að veilum í vörnum Úkraínumanna hafa ekki skilað Rússum miklu á víglínunni. Þeir hafa stöðugt bætt í árásir á borgaralega innviði. Aldrei hafa fleiri árásir beinst að heilbrigðisþjónustu í Úkraínu en í fyrra.
Rödd Íslands og Norðurlandanna allra verður að beita í baráttu gegn bakslagi í grundvallarmannréttindum, segir utanríkisráðherra sem flutti stefnuræðu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag.
Verk fjögurra íslenskra tónskálda voru flutt á sérstökum tónleikum í breska ríkisútvarpinu í gær.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Látlausar árásir Rússa og leit að veilum í vörnum Úkraínumanna hafa ekki skilað Rússum miklu á víglínunni. Þeir hafa stöðugt bætt í árásir á borgaralega innviði til að veikja barátturþrek Úkraínumanna segir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur.
Margir, yst á vinstri væng stjórnmálanna, bundu vonir við að þeir flokkar sem náðu ekki kjöri í síðustu þingkosningum tækju saman höndum og byðu sameiginlega fram. Flokkarnir virðast hins vegar laskaðir á meðan það er ekkert taktleysi í hægrisveiflunni, rætt er við Evu H. Önnudóttur prófessor.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Kammerkórinn, Hákon Oddgeirsson - Hóladans.
Mótettukórinn - 08 Enn syngur vornóttin - Úts. Gunnar Reynir Sveinsson (1933-2008).
Kristján Tryggvi Martinsson - Bless less.
Tómas R. Einarsson, GDRN - Fingur.
BKPM hljómsveit - Bílalag 1.
Andrews Sisters, The - I've got a gal in kalamazoo.

frá Veðurstofu Íslands

Útsending frá 100 ára afmælistónleikum ungverska tónskáldsins György Kurtág í Búdapest 19.febrúar 2026.
Á dagskrá er fjölbreytt frumsamin tónlist Kurtágs auk útsetninga hans á verkum eftir Bach og Haydn.
Umsjón: Pétur Grétarsson.
Flytjendur:
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanó
Halla Oddný Magnúsdóttir, píanó
Csaba Klenyán, klarinet (og bassatromma)
Maté Szücs, víóla
Pablo Márquez, gítar
Danubia hljómsveitin
Stjórnandi: Markus Stenz
Efnisskrá:
1
György Kurtág (1926) - Twittering, from 'Jatékok, Book 1'
2
Johann Sebastian Bach (1685-1750) - Sonatina, from 'Gottes Zeit ist die allerbeste Zeit, BWV 106'
3
György Kurtág (1926) - Excerpts from 'Játékok'
4
Johann Sebastian Bach (1685-1750) - Air, from 'Orchestral Suite No. 3 in D, BWV 1068'
5
György Kurtág (1926) - Excerpts from 'Játékok'
6
Joseph Haydn (1732-1809) - Adagio, from 'String Quartet No. 60 in G, op. 76/1, Hob. III:75 ('Erdödy')'
7
György Kurtág (1926) - Hommage à Robert Schumann, op. 15d, for clarinet, viola and piano
8
György Kurtág (1926) - …quasi una fantasia…, op. 27/1
9
György Kurtág (1926) - Grabstein für Stefan, op. 15c
10
György Kurtág (1926) - Stele, op. 33
11
György Kurtág (1926) - Excerpts from 'Játékok'
12
Johann Sebastian Bach (1685-1750) - Air, from 'Orchestral Suite No. 3 in D, BWV 1068'
13
György Kurtág (1926) - Excerpts from 'Játékok'
14
György Kurtág (1926) - Twittering, from 'Jatékok, Book 1'
15
Johann Sebastian Bach (1685-1750) - Sonatina, from 'Gottes Zeit ist die allerbeste Zeit, BWV 106'
Helgir dómar eru gripir gerðir úr líkamsleifum heilagra manna eða öðrum hlutum sem hafa með einum eða öðrum hætti komist í snertingu við dýrlinga. Þeir gegna mikilvægu hlutverki í helgihaldi og trúarsiðum kaþólikka. Flís úr krossi Krists, bein úr hinu og þessu helgu fólki, brot úr innyflum þeirra eða snifsi úr klæðum og blóðdreitlar úr fyrrum páfum í litlum flöskum eru dæmi um helga dóma. Griprirnir eru gjarnan varðveittir inni í altaristöflum kaþólskra kirkja en finnast sömuleiðis í einkaeigu fólks. Í þessum þætti kynnir Anna Gyða Sigurgísladóttir sér safn helgra dóma á Íslandi.
Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Það virðist vera sem gufu- eða gusuæði sé runnið á Íslendinga. Framundan er ferðalag sem farið verður í maí og þemað í þessari ferð eru sánur og það verður farið til Eistlands, Lettlands og Finlands og þar verða allskonar mismunandi sánumeðferðir, t.d. með nuddi og dekri inni í sánunum. Leifur Wilberg Orrason og Jura Aku hafa verið að gusa saman í Sækoti, þar sem þau hafa haldið sánagusur. Við ræddum um sánur, gusur, fargufur og alla þessa sánumenningu sem er að myndast á Íslandi.
Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV emur til okkar annan hvern mánudag með gullmola af safni RÚV. Í tilefni þess að í gær var konudagurinn haldinn hátíðlegur dró Helga Lára fram úr safninu stuttan fréttaauka sem var fluttur þann 30.júní árið 1950, eða fyrir 76 árum, þar sem ræddust við tvær merkilegar konur; fréttakonan Margrét Indriðadóttir og Margrét Tryggvadóttir húsmóðir. Þar segir frá orlofsferð húsmæðra úr Vestur Húnavatnssýslu um Suðurland.
Svo var Örn Úlfar Sævarsson texta- og hugmyndasmiður og spurningahöfundur, lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Örn Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og/eða höfunda:
Jötunsteinn e. Andra Snæ Magnason
Vegur allrar veraldar e. Sigríði Hagalín
Passíusálmarnir e. Hallgrím Pétursson
Tónlist í þættinum í dag
Leikur að vonum / Ólafur Þórarinsson (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik)
Regndropar falla við hvert fet/ Engilbert Jensen (Burt Bacharah, texti Þorsteinn Eggertsson) 1970
Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Getur Slapp verið appið sem bjargar okkur? Tveir æskuvinir hafa stofnað nýjan samfélagsmiðil sem er einungis fyrir íslendinga og þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á hann. Þannig ekki er hægt að koma þar fram undir huldu höfði. En hvernig er að nota þennan miðil? Hvað virkar og hvað virkar ekki? Við veltum fyrir okkur kostum og hindrunum með Reyni Ólafssyni, álitsgjafa Lestarinnar.
Komin eru 20 ár síðan Næturvaktin, einn ástælasti íslenski sjónvarpsþátturinn, var sýndur í sjónvarpi. Nú sjá MR-ingar fyrir sér að setja hann upp í leikriti Herranætur í vor, en mörg í leikhópnum voru ekki fædd þegar þættirnir voru sýndir.
Og við förum yfir fréttir af BAFTA-verðlaununum. Hverjir voru sigurvegarar kvöldsins og hvað var ritskoðað og hvað ekki.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Í annarri vindátt hefði sinueldurinn í gær getað ógnað vatnsbóli höfuðborgarsvæðisins. Fjölmennt lið slökkviliðsmanna barðist við sinueld við Þingahverfi og Guðmundarlund og tíkst þeim að slökkva eldinn á áttunda tímanum. Það sem virtist í fyrstu ætla að verða takmarkaður eldur varð að lokum mikið bál sem reyndist erfitt að slökkva. Við heyrðum í Brynju Ragnarsdóttur, forstöðumanni vatnsmiðla hjá Veitum.
Við heyrðum í Sævari Helga í síma að þessu sinni. Hann er staddur á sólmyrkvaslóðum fyrir vestan en ætlar að horfa með okkur til himins, eins og hann gerir annan hvern mánudag.
Lilja Alfreðsdóttir var á dögunum kjörin formaður Framsóknarflokksins fyrst kvenna í rúmlega 109 ára sögu flokksins. Framsóknarflokkurinn hefur oft verið með meira fylgi og það er spurning hvernig Lilja ætlar að fara að því að rífa flokkinn í gang. Hún mætti í Morgunútvarpið og sagði okkur það.
Stjörnubíó er ný íslensk heimildarþáttaröð um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti tekur Ari Eldjárn fyrir eina sígilda kvikmynd og skyggnist á bak við tjöldin. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna. Ari kom til okkar ásamt Gunnari Páli Ólafssyni, sem framleiðir þættina með honum.
Í tilefni af konudeginum í gær birti Hagstofa Íslands myndband á Facebook sem sýndi hvernig konur eyða deginum sínum, samkvæmt tímarannsókn Hagstofunnar. Ýmislegt merkilegt kemur þar í ljós, t.d. að konur sofi að jafnaði í tæplega níu tíma á nóttu og eyði rúmlega þremur tímum á dag í afþreyingu og öðrum þremur í að sinna eigin þörfum. Konur á Facebook skildu hvorki upp né niður í þessum tölum og við fengum Anton Örn Karlsson, deidarstjóra félagsmálatölfræði hjá Hagstofunni, til að fara yfir niðurstöðurnar með okkur.

07:30

08:30

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Áætlað er að rúmlega 32 hektarar hafi brunnið í gróðureldum við Elliðavatn í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hvetur fólk til að vera á varðbergi vegna gróðurelda. Í annarri vindátt hefðu vatnsból höfuðborgarbúa getað verið í hættu.
Rússar gerðu umfangsmiklar árásir á Úkraínu í gær og í nótt. Á morgun eru fjögur ár frá upphafi stríðsins. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir valdi beitt gegn lögum víða um heim.
Utanríkisráðherra varaði við mikilli afturför í grundvallarmannréttindum á alþjóðavísu, í stefnuræðu sinni í mannréttindaráði Sameinuðu Þjóðanna í dag.
Hafrannsóknastofnun metur hve mikið laxeldi er óhætt að hafa í Mjóafirði, líklega verður hægt bjóða út eldi í firðinum í vor eða sumar.
Óeirðir hafa stigmagnast í Mexíkó eftir að herinn felldi yfirmann eins umfangsmesta glæpagengis landsins í gær.
Matvælasetur og uppbygging í Króksfjarðarnesi á sunnanverðum Vestfjörðum fá styrk úr byggðaáætlun. Staðsetning, jarðhiti og raforka í fela í sér möguleika í ferðaþjónustu segir framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu
Norðmenn voru sigursælastir á vetrarólympíuleikunum sem lauk í gærkvöld, unnu bæði flest gullverðlaun og verðlaun í heildina.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Mánudagur í Popplandi og Lovísa Rut var landamæravörður. Nýtt frá U2, Valdimar, Lykke Li, Memfismafíunni og fleirum. Plata vikunnar kynnt til leiks sem þessa vikuna er platan Joey 3 með Joey Christ.
Bríet - Bang Bang.
Langley, Ella - Choosin' Texas.
U2 - American Obituary.
Lavigne, Avril - I'm with you.
Kahan, Noah - The Great Divide.
Valdimar - Tenerife.
Salka Sól Eyfeld - Tímaglas.
PHIL COLLINS - In The Air Tonight.
Dyrholm, Trine, Matti Lauri Kallio - Trommeslaven [Trommuþrællinn]?.
Isoebel, Prins Thomas - Linger.
Buffalo Traffic Jam - Fools Gold.
Joey Christ - 101.
Joey Christ - Þú ert hér.
BLAZROCA OG ÁSGEIR TRAUSTI - Hvítir skór.
ASAP Rocky - Punk Rocky.
Elín Hall - Tachylite.
MASSIVE ATTACK - Paradise circus.
Wet Leg - pokemon.
PAT BENATAR - Hit me with your best shot.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Memfismafían - Syngdu.
DAVID BOWIE - Cat People (Putting Out the Fire).
Bad Bunny - DtMF.
Perez, Gigi - Sailor Song.
Imagine Dragons - Whatever it takes.
James hljómsveit - Hallelujah Anyhow.
THE VERVE - Sonnet.
FLEETWOOD MAC - Go Your Own Way.
Helgi Björnsson - Ég Skrifa Þér Ljóð Á Kampavínstappa.
Parks, Arlo - 2SIDED.
Lykke Li - Lucky Again.
Pétur Ben - The great big warehouse in the sky.
BUBBI MORTHENS OG DAS KAPITAL - Blindsker.
HJALTALÍN - Feels Like Sugar.
Styles, Harry - Aperture.
KATE BUSH - Wuthering Heights.
Charli XCX - Chains of Love.
Ellis, Dove - Heaven Has No Wings.
ARCADE FIRE - Put Your Money On Me.
Winter, Cameron - Love Takes Miles.
Á móti sól - Fyrstu laufin.
GORILLAZ - Clint Eastwood.
JOEY CHRIST - 101.
FRANK OCEAN - Novacane.
NICK DRAKE - Pink Moon.
KINGFISHR - Killeagh.
INSPECTOR SPACETIME - People in the video.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Snjóbylur sem gengur nú yfir norðausturhluta Bandaríkjanna hefur valdið samgöngutruflunum og rafmagnsleysi. Jafnfallinn snjór er allt að 60 cm og veðurviðvörun sem gefin hefur verið út nær til nærri 40 milljón manna. Við hringdum til New York og heyrðum í Erlu Skúladóttur kvikmyndargerðarkonu sem þar býr og hefur búið lengi.
Fyrsti áfangi nýs íbúðahverfis í Mosfellsbæ er núna í skiplagsgátt hjá bæjarfélaginu. Um er að ræða tæplega 35 hektara hluta af Blikastaðalandi. Valdimar Birgisson, formaður skipulagsnefndar Mosfellsbæjar kom til okkar og sagði okkur betur frá.
Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum sendu borgarfulltrúum bréf þegar ákvörðun hafði verið tekin að leyfa áfengissölu á íþróttaviðburðum gegn ströngum skilyrðum þar sem þau harma þessa ákvörðun. Árni Guðmundsson er formaður samtakanna hann og hann kom til okkar.
Neytendasamtökin kynntu fyrir helgi samantekt og tillögur samtakanna um aðgerðir á tryggingamarkaði sem þau létu taka út. Tryggingar séu meðal stærri útgjaldaliða íslenskra heimila og til mikils er að vinna sé hægt að lækka þann kostnað segja samtökin. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, kom til okkar.
Atvinnufjelagið, sem er félag smærri fyrirtækja, er nú í fundarferð um landið í tilefni af sveitarstjórnarkosningum í maí. Félagið vill ræða við fulltrúa stjórnmálaflokka víða um land um framtíð atvinnulífsins á þeirra svæðum. Sigmar Vilhjálmsson kom og sagði okkur tilgang Atvinnufjelagsins og sagði okkur meira af fundarferðinni.
Um daginn fengum við til okkar Sigurð Kolbeinsson hjá Kolumbus ævintýraferðum og fengum í kjölfarið mikinn áhuga á slíkum ævintýraferðum. Ferðir sem eru öðruvísi en hinar hefðbundnum sólarlandaferðir. Í dag kom til okkar Rebekka Þurý Pétursdóttir hjá Kilroy. Hún sagði okkur frá slíkum ferðum og hvernig ferðir Íslendingar velja hjá þeim.
Fréttir
Fréttir
Útsýnispallurinn í Reynisfjöru næstum hvarf í miklu brimróti og stórstreymi í gærkvöld. Landeigandi segir þetta þó ekki ógna ferðamönnum því ekki er fært alveg niður í fjöruna.
Peter Mandelson, fyrrverandi sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á misferli í opinberu starfi.
Látlausar árásir Rússa og leit að veilum í vörnum Úkraínumanna hafa ekki skilað Rússum miklu á víglínunni. Þeir hafa stöðugt bætt í árásir á borgaralega innviði. Aldrei hafa fleiri árásir beinst að heilbrigðisþjónustu í Úkraínu en í fyrra.
Rödd Íslands og Norðurlandanna allra verður að beita í baráttu gegn bakslagi í grundvallarmannréttindum, segir utanríkisráðherra sem flutti stefnuræðu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í dag.
Verk fjögurra íslenskra tónskálda voru flutt á sérstökum tónleikum í breska ríkisútvarpinu í gær.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Látlausar árásir Rússa og leit að veilum í vörnum Úkraínumanna hafa ekki skilað Rússum miklu á víglínunni. Þeir hafa stöðugt bætt í árásir á borgaralega innviði til að veikja barátturþrek Úkraínumanna segir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur.
Margir, yst á vinstri væng stjórnmálanna, bundu vonir við að þeir flokkar sem náðu ekki kjöri í síðustu þingkosningum tækju saman höndum og byðu sameiginlega fram. Flokkarnir virðast hins vegar laskaðir á meðan það er ekkert taktleysi í hægrisveiflunni, rætt er við Evu H. Önnudóttur prófessor.
Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.
Í hit(t) & Þetta heyrist hitt og þetta milli frétta og í þætti kvöldsins er eintóm hamingja
Jónas Sig / Hamingjan er hér
The Clash / Should i stay or should go
Nina Simone / Feeling good
Karlakórinn Vísir / Sem lindirn tær
Iggy Pop / Lust for life
Maneskin / If i can dream
Queen / Don´t stop me now
E.L.O /Can´t get out out of my head

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Belle and Sebastian - The Boy With the Arab Strap.
Bubbi Morthens, Kristmundur Axel - Kominn heim.
STONE TEMPLE PILOTS - Interstate Love Song.
Noah Kahan - The Great Divide.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
Röyksopp - What Else Is There.
Lykke Li - Lucky Again.
Zara Larsson - Lush life.
Wet Leg - mangetout (The Dare remix)
Zach Bryan - Plastic Cigarette.
Bríet - Gleymmérei.
Grian Chatten, Kae Tempest, Damon Albarn - Flags.
Arctic Monkeys - Opening Night.
The Smiths - Heaven knows I'm miserable now.
Joyce Manor - All my Friends are so depressed.
Cribs, The - Never The Same.
THE STROKES - Someday.
Tómas R. Einarsson, GDRN - Pínu sein.
Metro Boomin - Creepin' (ft. The Weeknd & 21 Savage).
Del Rey, Lana - White Feather Hawk Tail Deer Hunter.
Charli XCX - Always Everywhere.
JJerome87, Alt-J - Brush Me Like A Horse.
Blake, James - Death of Love.
Pop, Iggy, Calvi, Anna - God's Lonely Man.
Ragnar Kjartansson, Samúel Jón Samúelsson - Hættur að drekka.
Kingfishr - Killeagh.
Machine Gun Kelly - Times of my life.
Alice in Chains - No excuses.
Morby, Kevin - Javelin.
U2 - American Obituary.
RADIOHEAD - Creep.
Black Keys, The - You Got To Lose.
Brigitte Calls Me Baby - Slumber Party.
Smokey Robinson - Going to a go-go.
Stephen Sanchez - Sweet Love
Bruno Mars- I Just Might
Chet Faker - 1000 Ways
Christine & the Queens - Ah Ya
Gorillaz - Orange County
Fred Again.. - Light Burns Dimmer
Fatboy Slim, Riva Starr - Eat, sleep, rave repeat
Kneecap - Liars Tale
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Joey Christ lýkur hér plötuþríleik sem hófst með gríðarlegum vinsældum árið 2017. Joey 3 er sögð vera hans persónulegasta verk til þessa. Á meðan fyrri plöturnar einkenndust af krafti næturlífsins, er þessi plata afrakstur þroska og sjálfsskoðunar. Joey stígur hér fram sem reyndari listamaður og tónlistarframleiðandi sem þarf ekki lengur að hækka róstuna til að láta heyra í sér. Við setjumst niður og ræðum ferilinn en hlustum líka á plötuna alla með kynningum.
Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.
Í þættinum heyrum við í tónlistarkonunni Sunnu Margréti sem var rétt í þessu að ljúka við tónleikaferðalag í Bretlandi, ásamt því heyrum við nánast alfarið tónlist eftir konur í tilefni konudagsins.
Lagalisti:
Andrés Þór Þorvarðarsson - Ólátagarður
arfi - modern days
Anya Shaddock - Hugarró
Turturi - Big shoes
MSEA - Mouth of the face of the sea
sillus - dapply
Bethany Ley - Cycles Renew
Sunna Margrét - Sickness
Sunna Margrét - Hibiscus
Sunna Margrét - Out of breath
Sunna Margrét - Fern - Live for The Line of Best Fit
Lily Montague - I Miss My Mates