07:03
Morgunvaktin
Friðarviðræður, alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga og aflagður iðnaður

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Viðræður um vopnahlé og frið voru til umfjöllunar á Morgunvaktinni. Zelensky Úkraínuforseti vill hitta Pútín Rússlandsforseta augliti til auglitis síðar í vikunni, Hamas-samtökin ætla að sleppa gísl úr haldi til að reyna að fá fram vopnahlé á Gaza og um helgina var óvænt tilkynnt um vopnahlé í átökum Pakistana og Indverja. Silja Bára R. Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði og verðandi rektor Háskóla Íslands, ræddi þetta.

Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga er í dag og við beindum sjónum okkar að þeirri mikilvægu starfsstétt. Guðbjörg Pálsdóttir, formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, talaði um stöðu mála en síðar í vikunni lætur hún af embætti formanns eftir níu ár.

Tollar og einangrunarhyggja hafa verið til umræðu síðustu mánuði, og sömuleiðis vangaveltur um áhrifin sem tollar kunni að hafa. Sú var tíðin að hér á landi var mjög öflugur iðnaður og ýmislegt framleitt á Íslandi sem ekki er lengur gert - við rifjuðum upp gallabuxur, mokkajakka, húsgögn og allt hitt þegar Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri, var með okkur.

Tónlist:

Ingibjörg Þorbergs, Alfreð Clausen - Á morgun.

Emilíana Torrini - At least it was.

New Symphony Orchestra of London - Que les songes sont heureux.

Hjálmar - Lof.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,