Benedikt Hermannsson ræðir við góða gesti um tungumál tónfræðinnar og varpar ljósi á byggingareiningar tónlistarinnar.
Benedikt H. Hermannsson ræðir við Barða Jóhannsson um tónfræðikennslu, skýrleika í tónlist og reynslu hans af því að semja tónlist sem öðrum finnst vera röng.
Ljósmynd: Linda Bujoli

Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir flytur morgunbæn og orð dagsins.
Eyðibýlið er viðtals og tónlistarþáttur þar sem viðmælandi er settur í þá stöðu að verða að dvelja í eina viku í einangrun á eyðibýli. Þar hefur hann allt til alls nema fjölmiðla og fjarskiptatæki. Til að stytta honum stundir fær hann að velja nokkur lög til að hlusta á, eina bók til að lesa og svo eitt þarfaþing sem hann má hafa með sér. Í þættinum gerir viðmælandinn grein fyrir vali sínu og svo því helsta sem hann myndi taka sér fyrir hendur í þessar einnar viku einveru.
Viðmælandi Héðins Hallórssonar er Engilbert Guðmundsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Harðstjórar eru persónur sem oft koma fyrir í óperum, persónur sem stundum eru byggðar á raunverulegum þjóðhöfðingjum úr mannkynssögunni. Oftast eru það bassa- eða barítónsöngvarar sem fara með hlutverk harðstjóra, þar sem djúpar raddir þykja hæfa þeim best. Í þættinum "Á tónsviðinu" verða fluttar aríur og dúettar harðstjóra sem koma fyrir í óperum eftir ýmsa höfunda. Meðal persónanna sem fjallað verður um eru Macbeth í samnefndri óperu eftir Giuseppe Verdi, Scarpia í óperunni "Toscu" eftir Giacomo Puccini og Boris Godunov í samnefndri óperu eftir Modest Mussorgskí. Í tónlistinni er lýst ýmsum hliðum á harðstjórunum: fyrstu skrefum þeirra í átt til harðstjórnar, sjálfsöryggi þeirra á hátindi valdsins, einmanaleikanum sem þeir geta ekki varist, og samviskubitinu sem liggur í leyni í sálarfylgsnum þeirra. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson.
Tónlist frá ýmsum tímum, gamlar hljóðritanir úr safni útvarpsins og af sjaldgæfum hljómplötum, m.a. með Borgfirðingakórnum, Maríu Markan, Guðrúnu Á. Símonar, Sigrúnu Jónsdóttur, Sigurði Þórarinssyni, Savanna tríóinu, Svavari Lárussyni og Birni R. Einarssyni. Sigrún Jónsdóttir syngur tvö lög eftir 12. september sem hljóðrituð voru og flutt 12. september 1965 þegar Freymóður Jóhannsson varð sjötugur. Sigurður Þórarinsson syngur lagið lagið Vorkvöld í Reykjavík við gítarleik og flytur erindi um hlaup úr Grímsvötnum yfir Skeiðarársand árið 1954. Hann segir hann frá aðdraganda, hlaupsins og afleiðingum þess, auk þess að vitna í gamla annála og sagnir af hlaupum fyrri alda.
Umsjónarmaður: Jónatan Garðarsson.

Veðurstofa Íslands.
Nemendur í 10. bekk eru þessar vikurnar að sækja um framhaldsskólavist fyrir næsta vetur og möguleikarnir eru margir á þessum kaflaskilum í skólagöngu þeirra. Um leið er ekki sjálfgefið að fá inngöngu í skólann sem er efstur á óskalistanum – nema að nemandinn sé með annaðhvort A eða B plús í öllu. Og er A í einum skóla það sama og A í öðrum?
Ef nemandi er með fötlun eða erlendan bakgrunn er síðan alls ekki víst að skólinn sem viðkomandi hugnast best geti tekið á móti honum og framhaldsskólarnir eru misvinsælir. Því skipta lokaeinkunnir úr grunnskóla sköpum ef sótt er um vinsælustu framhaldsskólana. Í þáttaröðinni Kaflaskil er rætt við fólk sem þekkir vel til í völundarhúsi menntakerfisins á Íslandi.
Þáttaröðin Kaflaskil er framleidd af Rás 1.
Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Góður kennari skiptir miklu máli og kennsla er gefandi starf en um leið erfitt. Það vantar fagmenntað fólk til starfa í grunnskólum landsins og ekki síst í greinum eins og íslensku og stærðfræði. Það er ekki nóg að fjölga fagfólki heldur vantar líka nýtt og betra námsefni. Eins má ekki gleyma mikilvægi læsis og lesskilnings á öllum stigum grunnskólans. Viðmælendur í þættinum eru: Gunnar Gíslason, Hjalti Halldórsson, Ívar Rafn Jónsson, Jóhann Örn Sigurjónsson, Jón Páll Haraldsson, Linda Heiðarsdóttir, Oddur Ingi Guðmundsson, Ómar Örn Magnússon, Sigurgrímur Skúlason og nemendur í tíunda bekk Hagaskóla og Laugalækjarskóla.
Séra Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir altari og predikar. Þetta er jafnframt lokamessa séra Péturs.
Organisti er Matthías V. Baldursson sem einnig stjórnar Lögreglukórnum og Vox Gospel.
Lesarar eru Drífa Nadía Thoroddsen og Inga Laufey Jóhannsdóttir.
TÓNLIST:
Fyrir predikun:
Forspil: Vorið kemur (Vikivaki). Höfundur lags: Valgeir Guðjónsson, höfundur texta: Jóhannes úr Kötlum,
Sálmur 551. Á hverjum degi, Drottinn minn, ég bið. Höfundur: Kristján Kristjánsson. Útsetning: Matthías V. Baldursson.
Sálmur 723. Ég leit eina lilju í holti. Höfundur ókunnur. Íslensk þýðing: Þorsteinn Gíslason. Útsetning: Matthías V. Baldursson.
Sálmur 746. Ég vil dvelja í skugga vængja þinna. Lag: Cathy Spurr og Debbie McNeil. Texti: Gunnar Böðvarsson Útsetning: Matthías V. Baldursson
Sálmur 582. Drottinn er minn hirðir. Lag: Margrét Scheving. Texti: Sálmur 23. Útsetning: Matthías V. Baldursson.
Viltu vera verkamaður? Lag: Höfundur ókunnur. Texti: Jóhannes Ingibjartsson. . Útsetning: Matthías V. Baldursson.
Eftir predikun:
Sálmur 535. Í bljúgri bæn. Lag: Amerískt þjóðlag. Texti: Pétur Þórarinsson. Útsetning: Matthías V. Baldursson.
Því af náð. Lag: Kari Tikka. Texti: Pétur Þorsteinsson. Raddsetning: Matthías V. Baldursson.
Ísland er land þitt. Lag: Magnús Þór Sigmundsson. Texti: Margrét Jónsdóttir. Útsetning: Óskar Einarsson.
Eftirspil: Guardian angel. Höfundur: Friðrik Karlsson
Útvarpsfréttir.
Forseti Rússlands vill ræða beint við stjórnvöld í Úkraínu um stríðslok. Forseti Úkraínu segir það jákvætt en vill að Rússar framlengi stutt vopnahlé sitt til 30 daga.
Stóru viðskiptabankarnir þrír högnuðust um tæpa 20 milljarða á fyrstu þremur mánuðum ársins. Landsbankinn hagnaðist mest.
Hagfræðingur segir jákvætt að almenningur fá forgang í fyrirhugaðri sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Þrátt fyrir að sprengingar hafi heyrst í hinu umdeilda Kasmír-héraði í gærkvöld, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að vopnahlé hafði náðst, virðist hléið hafa haldið að mestu leyti.
Um sjötíu prósent þeirra vara sem keyptar eru í gegnum netverslanir á borð við Temu og Shein innihalda skaðleg efni. Umhverfisráðherra segir verst að þetta eigi einnig við um vörur sem ætlaðar eru börnum.
Karlalandsliðið í handbolta leikur í dag lokaleik sinn í undankeppni Evrópumótsins á móti Georgíu.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða hitar Karitas upp fyrir komandi Eurovision-viku með aðstoð þeirra Gunnu Dísar, þular Eurovision þetta árið og Sigga Gunnars, útvarpsmanns og fyrrum kynni Söngvakeppninnar. Hvernig gengur hópnum úti og hvað er svona merkilegt við Eurovision?

Þátturinn Í boði náttúrunnar hefur nú göngu sína annað sumarið í röð, en í fyrra byrjuðu þau hjónakorn, Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason að rækta sitt eigið lífræna grænmeti. Þau höfðu þá enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau ættu að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fóru þau á stúfana og hittu sérfræðinga og vana leikmenn á því sviði og fengu ráðleggingar og hugmyndir sem skiluðu þeim ágætis uppskeru í lok sumars. Nú þegar þau hafa tekið sín fyrstu skref í matjurtaræktinni halda þau ótrauð áfram, full metnaðar og ætla að afla sér enn frekari reynslu og þekkingar á matjurtaræktinni og frekari sjálfbærni.
Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti eða innblástur til enn frekari afreka í garðinum. (Áður á dagskrá 2010)
Í þessum þessum þætti munu Jón og Guðbjörg, sem hingað til hafa verið upptekin að yfirborði matjurtagarðsins, kafa ofan í moldina með Gunnþóri K. Guðfinnssyni, garðyrkjufræðing og umhverfisstjóra Ölfuss, en hann er einn af helstu sérfræðingum landsins á sviði lífefldrar ræktunnar. Hann mun svara ýmsum spuringum um jarðveginn, hvernig hægt er að lesa hann, hvað einkennir hann og hvernig hægt er að rækta upp góðan jarðveg heima hjá sér. Einnig segir Gunnþór frá helsta vini matjurtaræktandans, ánamaðkinum.
Þáttastjórnendur munu kíkja við í Nytjajurtagarðinum í Grasagarðinum í Laugardal og ræða við Auði Óskarsdóttur garðyrkjufræðing um matlauka, en nú er rétti tíminn til að koma þeim fyrir í garðinum. Að lokum verður Þorsteinn Úlfar Björnsson kvikmyndagerðamaður og áhugamaður um garðyrkju sóttur heim, en fyrir nokkrum árum gaf hann út bókina: Villigarðurinn, garðyrkjuhandbók letingjans.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Tónlist úr ýmsum áttum. Nýjar hljóðritanir Rásar 1 í bland við nýjar plötur íslenskrar og erlendrar tónlistar.
Mathias Engler og Gunnhildur Einarsdóttir (Ensemble Adapter) á tónleikum í Hafnarborg 27. apríl 2025
RIuti - Walter Zimmermann - Matthias Engler leikur á slagverk (klukkusspil, sneriltromma, tom-tromma, bassatromma, kúabjöllur, cimball) og notar röddina líka.
Wolkenorte- einkleiksharpa - Walter Zimmermann - Gunnhildur Einarsdóttir leikur á hörpu, flautar og syngur.
Maikafer, Flieg! - Walter Zimmermann
Matthias Engler leikur á leikfangapíano. Gunnhildur Einarsdóttir leikur á hörpu og flautar og syngur.
Draumur um 'Húsið' : fyrir hörpu og strengi - Leifur Þórarinsson.
Gunnhildur Einarsdóttir leikur á hörpu með Kammersveit Reykjavíkur.
Fjögur barnalög eftir Leif Þórarinsson
1. Preludium
2. Sofandaháttur
3. Skopparakringlan
4. Aukalag
Snorri Sigfús Birgisson leikur á píano. Hljóðritun frá State of the Art hátíðinni í október 2024
Páfiðrildið - Snorri Sigfús Birgisson
Höfundur leikur eigið verk í hljóðritun frá State of the Art hátíðinni í október 2024.
Desert Wind - Ásgeir Ásgeirsson
Nýtt lag frá gítar- og oudleikaranum Ásgeiri Ásgeirssyni og félögum hans.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Hlustendum hefur frá upphafi útvarps verið umhugað um að vandað sé til verka í Ríkisútvarpinu. Úr hvaða jarðvegi sprettur það? Hvernig hefur verið fjallað um íslenskt mál í útvarpinu í tímans rás? Við leitum svara við þessum spurningum og fleirum og stöldrum sérstaklega við þáttinn Daglegt mál sem var á dagskrá áratugum saman.
Benedikt Hermannsson ræðir við góða gesti um tungumál tónfræðinnar og varpar ljósi á byggingareiningar tónlistarinnar.
Benedikt H. Hermannsson ræðir við Barða Jóhannsson um tónfræðikennslu, skýrleika í tónlist og reynslu hans af því að semja tónlist sem öðrum finnst vera röng.
Ljósmynd: Linda Bujoli

Veðurfregnir kl. 18:50.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Svala talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Rokið í stofunni e. Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur
Álfadalur e. Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur
A Very Private School e. Charles Spencer
Býr Íslendingu hér? e. Garðar Sverrisson
Hin hljóðu tár, ævisaga Ástu Sigurbrandsdóttur e. Sigurbjörgu Árnadóttur
Lífsstríðið, æviferð Margrétar Þórðardóttur e. Eirík Jónsson
Þáttaröð um íslenskt bókmenntalíf á níunda og tíunda áratugnum. Halldór Guðmundsson, fyrrverandi útgáfustjóri Máls og menningar, og Þröstur Helgason ræða saman um strauma og stefnur í bókaútgáfu og bókmenntum tímabilsins. Sömuleiðis er rætt við fræðimenn, höfunda og aðra þátttakendur í bókmenntalífi þessa forvitnilega skeiðs í íslenskri bókaútgáfu. Umsjón: Halldór Guðmundsson og Þröstur Helgason. Þáttagerð: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Fyrst á dagskrá árið 2022
Þáttaröð um íslenskt bókmenntalíf á níunda og tíunda áratugnum. Halldór Guðmundsson, fyrrverandi útgáfustjóri Máls og menningar, og Þröstur Helgason ræða saman um strauma og stefnur í bókaútgáfu og bókmenntum tímabilsins. Sömuleiðis er rætt við fræðimenn, höfunda og aðra þátttakendur í bókmenntalífi þessa forvitnilega skeiðs í íslenskri bókaútgáfu. Umsjón: Halldór Guðmundsson og Þröstur Helgason. Þáttagerð: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Í þættinnum mun Ásta Sigríður Arnardóttir, tónlistarkona, dýfa sér inn í hljóðheim íslenska langspilsins og endurvakningu þess. Viðmælendur hennar eru tónlistarmennirnir Örn Magnússon og Línus Orri Gunnarsson Cederborg.

Veðurfregnir kl. 22:05.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Vorið eftir Edvard Grieg í útsetningu fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Ben Palmer. Eldbjørg Hemsing leikur á fiðlu ásamt Fílharmóníusveit Norðurslóða (Arctic Philharmonic) undir stjórn Christian Kluxen.
Liebst du um schönheit úr ljóðaflokknum Rückert lieder, eftir Gustav Mahler. Friedrich Rückert orti ljóðið. Jan DeGaetani mezzosópran syngur með Eastmann kammersveitinni, stjórnandi er David Effron. (útg. 1989).
Saxófónkvartett (2010) eftir Þórð Magnússon, Íslenski saxófónkvartettinn leikur.
Íslenska saxófónkvartettinn skipa: Vigdís Klara Aradóttir, sópran-saxófónn; Sigurður Flosason, alt-saxófónn; Peter Tompkins, tenór-saxófónn; Guido Bäumer, barítón-saxófónn. (Útg. 2013)
2. þáttur, Adagio molto espressivo úr Kvintetti fyrir tvær fiðlur, tvær víólur og selló í D-dúr op. 29 eftir Ludwig van Beethoven. Flytjendur eru Cecil Aronowitz víóluleikari ásamt Amadeus-kvartettinum. (Útg. 1997).
Í dag, eftir Sigfús Halldórsson, tónskáldið syngur og leikur á píanó. Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti orti ljóðið. Hljóðritun frá 1951.
Febrúarhiminn (2017), verk í sjö þáttum eftir Kolbein Bjarnason. Flytjendur eru Elektra Ensemble og Duo Harpverk. (Útg. 2019)
2. þáttur, Andante úr Trompetkonserti í Es-dúr eftir Franz Joseph Haydn. Flytjendur eru Alan Stringer trompetleikari ásamt Academy of St Martin-in-the-Fields-sveitinni, stjórnandi er Neville Marriner. (Útg. 1967).
2. þáttur, Menuetto - Trio úr Divertimento fyrir blásara í B-dúr KV 186 (159b) eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Flytjendur eru blásarar úr Fílharmóníusveit Berlínar, stjórnandi er Karl Böhm.
(Blásarar: Gerhard Turetschek, óbó; Walter Lehmayer, óbó; Alfred Prinz, klarinett; Christian Cubasch, klarinett; Gunter Lorenz, enskt horn; Gottfried Boisits, enskt horn; Dietmar Zeman, fagott; Camillo Oehlberger, fagott; Roland Berger horn; Volker Altmann, horn)
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Vegna fjölda áskorana er hér kominn síðasti þátturinn þar sem lesið úr bók Jökuls Jakobssonar sem hann skrifaði ásamt teiknaranum Baltasar og fjallaði um mannlíf í Breiðafjarðareyjum að fornu og nýju. Merkilegt mannlíf, hlýleg frásögn.

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
undefined
Tónlist frá útsendingarlogg 2025-09-14
Hljómsveit Gunnars Sveinssonar - Mikið var gaman að því.
Brassens, Georges - Les copains d'abord.
Skapti Ólafsson - Mikið var gaman að því.
Riperton, Minnie - Les Fleurs.
TRÚBROT - To be grateful.
Stuðmenn - Út í veður og vind.
Lay Low - Gleðileg blóm.
Hannes Örn Blandon Prestur, Helgi Þórsson - Ég þakka þér að ég er betri en þeir (Gestir út um allt).
DIDO - Thank You.
Sam & Dave - I thank you.
Marley, Bob, Marley, Bob & The Wailers - Give thanks and praise.
LED ZEPPELIN - Thank You.
Holiday, Billie - Willow weep for me.
Glámur og Skrámur - Í Sælgætislandi [Syrpa].
Ari Matthíasson, Haukur Guðmundsson, Kór Verslunarskóla Íslands - Kvöldin í bænum = Nights on Broadway.
TOM TOM CLUB - Genius of Love.
STEVIE WONDER - Thank You For Loving Me All The Way.
Lindblom, Anita - Danke schön.
Como, Perry - It's only a paper moon.
Skee-Lo - I wish.
DAÐI FREYR - Thank You.
PALMI GUNNARSSON - Íslenska Konan.
SLY & THE FAMILY STONE - Thank You (Falettinme Be Mice Elf Agin).
Big Star - Thank you friends.
Robin S. - I want to thank you (radio edit).
Beatles, The - Thank you girl.
Don Covay - Mercy, Mercy.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Fjallað var um þjóðalagasöngvara af ýmsu tagi; til að mynda söngkonuna Sandy Denny sem söng með Magga Kjartans og Led Zeppelin.
Svavar Knútur Kristinsson - Refur.
Emiliana Torrini - Vertu Úlfur - Titillag.
Elín Hall - barnahóstasaft.
HIPSUMHAPS - Góðir hlutir gerast hææægt.
Snorri Helgason - Eyvi.
Supergrass - Coffee in the pot.
LED ZEPPELIN - Tangerine.
JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi.
Marley, Bob, Marley, Bob & The Wailers - War.
BOB MARLEY & THE WAILERS - Stir It Up.
SÍÐAN SKEIN SÓL - Ég Stend Á Skýi.
SKE - Julietta 2.
Magnús Kjartansson - Sweet Little Lady Friend
LED ZEPPELIN & SANDY DENNY - The Battle of Evermore.
Útvarpsfréttir.
Forseti Rússlands vill ræða beint við stjórnvöld í Úkraínu um stríðslok. Forseti Úkraínu segir það jákvætt en vill að Rússar framlengi stutt vopnahlé sitt til 30 daga.
Stóru viðskiptabankarnir þrír högnuðust um tæpa 20 milljarða á fyrstu þremur mánuðum ársins. Landsbankinn hagnaðist mest.
Hagfræðingur segir jákvætt að almenningur fá forgang í fyrirhugaðri sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Þrátt fyrir að sprengingar hafi heyrst í hinu umdeilda Kasmír-héraði í gærkvöld, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að vopnahlé hafði náðst, virðist hléið hafa haldið að mestu leyti.
Um sjötíu prósent þeirra vara sem keyptar eru í gegnum netverslanir á borð við Temu og Shein innihalda skaðleg efni. Umhverfisráðherra segir verst að þetta eigi einnig við um vörur sem ætlaðar eru börnum.
Karlalandsliðið í handbolta leikur í dag lokaleik sinn í undankeppni Evrópumótsins á móti Georgíu.
Rúnar Róberts í huggulegum sunnudagsgír með mikið af tónlist frá níunda áratugnum, "Eitís".
Topplagið 11. maí 1988 í Bretlandi var lagið Perfect með Fairground attraction, plata Men at work, Cargo frá 1983 var "eitís" plata vikunnar og heyrðum við tvö lög af henni. Garbage áttu Nýjan ellismell vikunnar af nýrri plötu sem kom út 9. apríl sl. Lagið sem við heyrðum heitir There's No Future in Optimism.
Lagalisti:
Mannakorn - Einhverstaðar Einhverntíman Aftur.
JóiPé & Króli ásamt GDRN - Næsta.
The Motels - Suddenly Last Summer.
Ásdís - Touch Me.
Duran Duran - Friends Of Mine.
Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík.
Sinead O' Connor - Mandinka.
Miley Cyrus - End of the World.
Fairground Attraction - Perfect.
Dead or alive - You Spin Me Round (Like A Record).
Chappell Roan - Hot To Go!.
Madonna - Crazy for you.
Alanis Morissette - Ironic.
WHAM! - The edge of heaven.
David Bowie & Tina Turner - Tonight.
Tinna Óðinsdóttir - Þrá.
Franz Ferdinand - Take Me Out.
14:00
Bubbi Morthens & Auður - Tárin falla hægt.
U2 - Gloria.
My Morning Jacket - Time Waited.
Men at Work - Overkill.
Men at Work - It's a mistake.
VÖK - Stadium.
OMD - Enola Gay.
No Doubt - It's My Life.
Bob Marley & The Wailers - Could You Be Loved.
LÓN - Cold Crisp Air.
Ultravox - The voice.
Marcagi, Michael - Scared To Start.
15:00
Land og synir - Von Mín Er Sú.
Tears for fears - Shout.
Lizzo - Still Bad.
Selena Gomez & Benny Blanco - Talk.
David Lee Roth - Yankee Rose.
Post Malone & Luke Combs - Guy For That.
Boz Scaggs - Lowdown.
Garbage - There's No Future In Optimism.
The Beloved - Sweet Harmony.
Jalen Ngonda - Just as Long as We’re Together.
Kate Bush - Running up that hill.
James Bay & Sheryl Crow - You and me time.
Snap! - Rhythm is a dancer.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Neil Young kemur við sögu í þættinum en það var að koma út plata sem gefin er út honum tiul heiðurs – en líka til að safna peningum fyrir Bridge skólann í Kaliforníu sem fyrrum eiginkona hans, Pegi, stofnaði fyrir næstum 40 árum. Bridge skólinn er fyrir fjölfötluð börn – eins og Ben son þeirra Neil og Pegi. En Neil er líka að fara að senda frá sér nýja plötu með nýrri hljómsveit, The Chrome Hearts, og er á leiðinni í tónleikaferð. Hann verður 80 ára í nóvember.
Luiciano Pavarotti kemur líka við sögu, Hörður Torfason, Fiona Apple, Brandi Carlile, Elvis og fleiri.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 4. - 11. maí 2025.

Fréttastofa RÚV.
Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.
Urður Óliversdóttir semur tónlist undir nafninu Undur og gaf nýlega út sína fyrstu plötu. Hún kíkti til okkar og sagði okkur nánar frá plötunni, sköpunarferlinu og mörgu fleiru.
HVFFI er rappari og mikill grúskari í „neðanjarðar“ tónlistarsenunni hér á landi. Hann kom og sagði okkur frá tónlistinni sinni, hvernig hann hefur nýtt sér TikTok til þess að auglýsa sig og hvað það getur verið erfitt að kynnast fólki í rapp senunni.
Lagalisti:
Andrés Þór Þorvarðarson - Ólátagarður
Kári the Attempt, RAKEL - she drags me out of bed
Knife Fights - Nothing
AGLA - Stjörnur skína
Hera Lind - KEEPER - DEMO
LUCA - tellmewhatsgoingonwithyou
Undur - Homeless
Undur - Eftir
Undur - Er þetta um mig
Undur - Tímabil
Hafaldan - reality
105, Matthildur Agla - Til*viljun
G4RPUR F4LK, Eva Viktoría - TIL EF ÞÚ ERT TIL?
orri - anda
HVFFI - Lífstíll
HVFFI - SKYLLE MIDDEL
HVFFI - RUSLAHAUGUR
HVFFI - Streita
Öngþveiti - Trúin á moldina
miostora - Track 5 (game over)
Unfiled - Skallastíngur
VöLVa - Broken Diode
Jonbjorn, Intr0Beatz - Gárur - Intr0Beatz Combo Remisch
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Silja Rós Ragnarsdóttir, tónlistarkona, leikkona og handritshöfundur, hefur frá 2017 sent frá sér nýmóðins sálartónlist og poppi. Hún hefur bakgrunn í djasssöng og lærði í tónlistarskóla FÍH og þaðan lá leiðin til ævintýra í Kaupmannahöfn og Los Angeles.
Fyrsta breiðskífa hennar, Silence, kom út árið 2017; önnur plata hennar, Stay Still, árið 2021; og ...letters from my past kom út 2. maí og inniheldur níu jözzuð popplög.
Á plötunni sótti Silja Rós innblástur frá gömlum dagbókum og skúffulögum og gaf gömlum ósögðum sögum nýtt líf. Platan er styrkt af Hljóðritasjóð, Stef, RÚV og Bylgjunni.
Silja Rós á plötu vikunnar á Rás 2 og mætti í hljóðstofu til Margrétar Erlu Maack og ræddi við hana um nýju plötuna og ferilinn fram að þessu.