13:00
Í boði náttúrunnar
Kafað ofan í moldina

Þátturinn Í boði náttúrunnar hefur nú göngu sína annað sumarið í röð, en í fyrra byrjuðu þau hjónakorn, Guðbjörg Gissurardóttir og Jón Árnason að rækta sitt eigið lífræna grænmeti. Þau höfðu þá enga reynslu, né hugmynd um hvernig þau ættu að koma slíku verki í framkvæmd. En til að afla sér þekkingar fóru þau á stúfana og hittu sérfræðinga og vana leikmenn á því sviði og fengu ráðleggingar og hugmyndir sem skiluðu þeim ágætis uppskeru í lok sumars. Nú þegar þau hafa tekið sín fyrstu skref í matjurtaræktinni halda þau ótrauð áfram, full metnaðar og ætla að afla sér enn frekari reynslu og þekkingar á matjurtaræktinni og frekari sjálfbærni.

Í Boði náttúrunnar fjallar um ferðalag þeirra hjóna og verður hlustendum vonandi hvatning til að rækta sitt eigið grænmeti eða innblástur til enn frekari afreka í garðinum. (Áður á dagskrá 2010)

Í þessum þessum þætti munu Jón og Guðbjörg, sem hingað til hafa verið upptekin að yfirborði matjurtagarðsins, kafa ofan í moldina með Gunnþóri K. Guðfinnssyni, garðyrkjufræðing og umhverfisstjóra Ölfuss, en hann er einn af helstu sérfræðingum landsins á sviði lífefldrar ræktunnar. Hann mun svara ýmsum spuringum um jarðveginn, hvernig hægt er að lesa hann, hvað einkennir hann og hvernig hægt er að rækta upp góðan jarðveg heima hjá sér. Einnig segir Gunnþór frá helsta vini matjurtaræktandans, ánamaðkinum.

Þáttastjórnendur munu kíkja við í Nytjajurtagarðinum í Grasagarðinum í Laugardal og ræða við Auði Óskarsdóttur garðyrkjufræðing um matlauka, en nú er rétti tíminn til að koma þeim fyrir í garðinum. Að lokum verður Þorsteinn Úlfar Björnsson kvikmyndagerðamaður og áhugamaður um garðyrkju sóttur heim, en fyrir nokkrum árum gaf hann út bókina: Villigarðurinn, garðyrkjuhandbók letingjans.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,