09:05
Segðu mér með Sigríði Halldórsdóttur
Milla Ósk Magnúsdóttir

Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir.

Milla Ósk Magnúsdóttir er Hafnfirðingur, lögfræðingur og aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, fyrrverandi fjölmiðlakona og svo er hún líka eiginkona Einars Þorsteinssonar borgarstjóra. Hennar stærsti ótti er að eitthvað komi fyrir drenginn þeirra, Emil Magnús, sem þau Einar eignuðust fyrir rúmum tveimur árum. ,,Allt frá því að hann sé svangur yfir í að eitthvað alvarlegt gerist." Hún lýsir sjálfri sér sem glaðri, hvatvísri og stjórnsamri. ,,Ég á mjög auðvelt með að halda mörgum boltum á lofti í einu."

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 41 mín.
,