19:00
Sumartónleikar
Kammersveitin í Lausanne

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.

Hljóðritun frá tónleikum Kammersveitarinnar í Lausanne sem fram fóru í Beaulieu salnum í Lausanne, 15. maí sl.

Á efnisskrá eru Brandenburgarkonsertar Johanns Sebastians Bachs.

Einleikari og stjórnandi er fiðluleikarinn Renaud Capuçon.

Umsjón: Sigrún Harðardóttir.

Var aðgengilegt til 01. ágúst 2024.
Lengd: 1 klst. 30 mín.
,