Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Draumalandið - Gunnar Guðbjörnsson
Við fljótið (Hjálmar H. Ragnarsson) - Þóra Einarsdóttir
Við sundið - Einar Sturluson
Kids in America - Kim Wilde
Jag vill tacka livet - Arja Saijonmaa
Un dì felice, eterea / La Traviata Verdi - Pavarotti / Sutherland
Tvær stjörnur - Emilíana Torrini
Turistens klagen - Cornelis Vreeswijk
The Girl From Ipanema - Astrud Gilberto / Antonio Carlos Jobim /Stan Getz
Man in Black - Johnny Cash
Þú veist í hjarta þér (e. Þorst. Valdimarsson) - Skólakór Kársness (diskur Undir bláum sólarsali 1993)
Vor í dal - Karlakórinn Vísir / Daníel Þórhallsson
Karlagrobb - Ómar Ragnarsson
- Endurflutt
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Það er martröð í skáldskap og tónum sem verður efni þessa þáttar. Til forna trúði fólk því að til væri óvættur, mara, sem legðist ofan á sofandi fólk eða traðkaði á því og af því er orðið „martröð“ dregið. Í Ynglinga sögu Snorra Sturlusonar segir frá því þegar mara treður mann til bana. Skáldkonan Natasha S. vísar til goðsagnarinnar um Möru í ljóðabók sinni „Mara kemur í heimsókn“ og í þættinum verða lesin þrjú ljóð úr henni. Einnig verður lesið ljóð „Martröð“ eftir Örn Arnarson og flutt tónverk Hildigunnar Rúnarsdóttur við ljóðið. Af öðrum tónskáldum sem hafa lýst martröð í tónum má nefna Gioacchino Rossini, Hanns Eisler og Antonio Francisco Braga. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Melkorka Ólafsdóttir.
- Endurflutt

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað sérstaklega um göngutúra, rölt og labb. Göngutúrar eru skoðaðir sem ferðamáti og lífsstíll – en líka sem hversdagslegt fyrirbæri. Rætt er um áhrif labbs á umhverfi og menningu. Dæmi eru tekin um heimspekinga og rithöfunda sem nýttu sér göngutúra til innblásturs og þekkingarsköpunar en einnig er rætt við fólk sem fer í göngutúra vegna vinnu, til dæmis við fræsöfnun eða söfnun græðlinga. Viðmælendur nýta sér sumir hverjir göngutúra til kennslu og aðrir hafa farið í göngutúr daglega í áraraðir – og aldrei misst úr dag.
Viðmælendur: Steinar Björgvinsson, Rósa Bjarnadóttir, Jón Ásgeir Kalmansson og Gunndís Ýr Finnbogadóttir.
- Endurflutt


frá Veðurstofu Íslands.

Tónlistarþáttur í umsjón Kristofers Rodríguez Svönusonar, slagverksleikara og tónskálds. Kristofer ræðir við góða gesti um sögu og þróun ryþma í menningarlegu samhengi, frá fornum helgisiðum til dansgólfa samtímans. Aðalsögumaður þáttarins er tónlistin og fjallar fyrsta serían um uppruna og þróun cumbia-tónlistar.
Kristofer Rodríguez Svönuson ræðir við Andrés Ramon, tónlistarmann og kennara við LHÍ, um þróun Cumbia tónlistar í Kólumbíu
Lagalisti
Leonor González Mina - Navidad Negra
Lucho Bermudez - Tolu
Pacho Galán - Playa Blanca
Los Alegres Diablos - La Magdalena
Conjunto Son San - Cumbia San Pablera
La Francachela - Mosquita Muerta
Aurita Castillo y Su Conjunto - Chambacu
Adolfo Echeverría y La Gran Banda - Amaneciendo
Grupo Niche - Canoa Rancha

Guðsþjónusta dagsins er send út frá Bústaðakirkju í Reykjavík og ber hún bleikan blæ í tilefni Bleiks októbers. Séra Laufey Brá Jónsdóttir og séra Sigríður Kristín Helgadóttir þjóna fyrir altari ásamt Hólmfríði Ólafsdóttur djákna og Báru Elíasdóttur kirkjuþjóni. Séra Auður Pálsdóttir, sjúkrahúsprestur, prédikar.
Konur úr Kammerkór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Jónasar Þóris organista. Gréta Hergils sópran og Laufey Geirlaugsdóttir syngja einsöng.
TÓNLIST Í MESSUNNI
Fyrir predikun
Forspil: Englasöngur-hymni Latn. texti/Jónas Þórir
390 Líður að dögun- Eleanor Farjeon/Sigríður Guðmarsdóttir
474 Lofsyngið Drottni- Valdemar V. Snævarr/George F. Händel
273 Stjörnur og sól-Britt G. Hallquist/Lilja S. Kristjánsdóttir
377 Þung er mín sorg -Hjördís Björg Kristinsdóttir/Jónas Þórir
Eftir predikun
Með eld í sál -Sigurbjörn Þorkelsson/Jóhann Helgason
Þitt fyrsta bros -Ólafur Haukur Símonarson/Gunnar Þórðarson
728 Ljósfaðir -Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson/Sigurður Flosason
Eftirspil: Sumri hallar Þjóðvísa og þjóðlag (spunnið útspil)

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimkviða kynnumst við nýrri kattartegund, þeirri fyrstu sem finnst í meira en hundrað ár! Við skoðum heimkynnum hans og heyrum af því hvernig hann fannst og vísindamanninum sem rannsakaði hann.

Karl Th. Birgisson rekur söguna á bak við Watergate-hneykslið sem leiddi til þess að Richard Nixon sagði af sér sem forseti Bandaríkjanna 1974.
(Áður á dagskrá 2004)
Karl Th. Birgisson rekur söguna á bak við Watergate-hneykslið sem leiddi til þess að Richard Nixon sagði af sér sem forseti Bandaríkjanna.
- Endurflutt

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Úrval úr Lestarþáttum vikunnar.

Útvarpsfréttir.

Efnisskrá:
Samuel Barber (1910 - 1981)
Dover Beach – fyrir rödd og strengjakvartett
Oddur Arnþór Jónsson les þýðingu Reynis Axelssonar á ljóði Matthews Arnolds á undan flutningnum.
Hildigunnur Rúnarsdóttir (1964)
Tilbrigði um Einu sinni rerum – fyrir fiðlu og víólu
Finnur Karlsson (1988)
Tvenna – fyrir fiðlu og víólu
Jón Nordal (1926-2024)
Systur í Garðshorni – fyrir fiðlu og píanó
I. Ása
II. Signý
III. Helga
Franz Schubert (1797-1828)
Auf dem Strom – fyrir rödd, horn og píanó
Johannes Brahms (1833 - 1897)
Horntríó í Es-dúr op. 40
I. Andante
II. Scherzo: Allegro
III. Adagio mesto
IV. Finale: Allegro con brio
Flytjendur:
Oddur Arnþór Jónsson, söngur
Stefán Jón Bernharðsson, horn
Mathias Susaas Halvorsen, píanó
Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla
Rannveig Marta Sarc, fiðla
Rita Porfiris, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Hljóðritun: Hrafnkell Sigurðsson
Umsjón: Pétur Grétarsson

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þáttur um íslenskt mál og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir.
Baldur Sigurðsson, prófessor emeritus í íslensku og læsi, við menntavísindasvið Háskóla Íslands, kom til okkar í Orð af orði og sagði okkur frá íslenskunámskeiðum á vegum Rauða krossins sem hann hefur kennt í vetur ásamt fleirum. Námskeiðin sækir fólk á flótta og í leit að hæli hér landi, einkum fólk sem fær ekki íslenska kennitölu og er því jafnvel í enn verri stöðu en annað flóttafólk sem hingað kemur.
- Endurflutt

Fréttir
Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.
Hvað gerðist eftir sprenginguna og hverjir tjáðu sig í ræðu og riti? Voru þetta strákapör eða þaulskipulagður verknaður? Hvað segja málfræðingur og listfræðingar um yfirlýsingu meints geranda og af hverju fjaraði rannsóknin út? Við sögu koma Jón Pétursson sem var fyrstur á vettvang glæpsins, Ásmundur Sveinsson og Ragnar í Smára.

frá Veðurstofu Íslands
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Norski fjarskiptarisinn Telenor er í vandræðum. Lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum þess vegna gruns um hlutdeild í glæpum gegn mannkyni með því að láta herforingjastjórninni í Mjanmar í té upplýsingar um viðskiptavini þar eftir valdarán hersins árið 2021. Leiðtogi landsins fyrir valdaránið var meðal þessara viðskiptavina. Fyrirtækið segist ekki hafa átt annarra kosta völ, en mannréttindasamtök eru því ekki sammála. Hallgrímur Indriðason kynnti sér þetta áhugaverða mál, og ræddi einnig við forsprakka einna þessara samtaka sem gagnrýna Telenor.
Valerí Salúsný, sendiherra Úkraínu í Bretlandi og fyrrum yfirmaður Úkraínuhers, lét þau orð falla að Úkraína væri langt á undan NATO-ríkjum í nýjungum í hernaði. Innan NATO væri einblínt á hugmyndafræði seinni heimsstyrjaldar og menn þar svifaseinir að tileinka sér nýjungar. Því væri ólíklegt að Úkraína ætti nokkurn tíma eftir að ganga þangað inn. Tíminn verður að leiða í ljós hvort Úkraína gangi einn daginn í NATO, en við ætlum nú að kynna okkur nýsköpun Úkraínumanna í hernaði, sem hefur verið töluverð síðan Rússlandsher hóf allsherjarinnrás í landið 2022. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.

Tónlistarþáttur í umsjón Kristofers Rodríguez Svönusonar, slagverksleikara og tónskálds. Kristofer ræðir við góða gesti um sögu og þróun ryþma í menningarlegu samhengi, frá fornum helgisiðum til dansgólfa samtímans. Aðalsögumaður þáttarins er tónlistin og fjallar fyrsta serían um uppruna og þróun cumbia-tónlistar.
Kristofer Rodríguez Svönuson ræðir við Andrés Ramon, tónlistarmann og kennara við LHÍ, um þróun Cumbia tónlistar í Kólumbíu
Lagalisti
Leonor González Mina - Navidad Negra
Lucho Bermudez - Tolu
Pacho Galán - Playa Blanca
Los Alegres Diablos - La Magdalena
Conjunto Son San - Cumbia San Pablera
La Francachela - Mosquita Muerta
Aurita Castillo y Su Conjunto - Chambacu
Adolfo Echeverría y La Gran Banda - Amaneciendo
Grupo Niche - Canoa Rancha
- Endurflutt
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Mahi musicians of Benin - Cengunmé.
Listafólk frá Kamerún - Music for the Buma dance.
Funkees, The - Dancing time.
Aga, Alèmu - Abatatchen hoy - Pater noster.
Waaberi, Mursal, Maryam - Rog rogosho = Changing.
Marhours, Ahmad, Achkar, Ely, Masry, Hussein el, Badoui, Hatem - Saqqarah nights.
Banna, Rim - The first rain.
Xiaolian, Dai - Liushui = Flowing waters.
Charlo - El cantar de los reseros.
Cuevas, Sergio - Golpe llanero.
Baptista, Cyro, Braga, Paulo, Matta, Nilson, Castro-Neves, Oscar, Ma, Yo-Yo, Alves, Helio - Apelo.
Deyhim, Sussan - Negara = Mesmerizes mirror.
- Endurflutt


frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Haust eftir Jón Nordal, ljóðið orti Snorri Hjartarson. Hamrahlíðarkórinn syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Einsöngvari er Hallveig Rúnarsdóttir.
Verkið er í þremur hlutum:
1. Haust; 2. Þögn; 3. Vor. - Lögin voru samin fyrir Hamrahlíðarkórinn 1994-1995
Útgefið á plötunni Vorkvæði um Ísland 2002.
Der Herbstabend, D405 eftir Franz Schubert. Johann Gaudenz von Salis-Seewis. Lucia Popp sópran syngur, Graham Johnson leikur á píanó. Útgefið á plötunni The Hyperion Schubert Edition - 17 árið 1993.
Heimkynni við sjó eftir Karólínu Eiríksdóttur.
Verkið er í 9 þáttum:
1. Tjaldurinn
2. Blár þríhyrningur
3. Selirnir
4. Þúfurnar
5. Stakur steinn
6. Fiðrildin
7. Flatur steinn
8. Fjaran
9. Fiskasteinn
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran syngur og Tinna Þorsteinsdóttir leikur með á píanó. Útgefið á plötunni Spil 1999.
Glitch for string quartet eftir Clarice Assad. Delgani strengjakvartettinn leikur. Kvartettinn skipa Anthea Kreston og Jannie Wei fiðluleikarar; Kimberlee Uwate víóluleikari og Eric Alterman sellóleikari.
Upptaka fór fram í Gung Ho Studio, Eugene, Oregon í júní og september 2022. Útgefið á plötunni Soul of Brazil, 2023.
September, Veiðin úr Árstíðunum op. 37 b (Les Saisons - Septembre, La chasse eftir Pjotr Tsjaikovskí. Edda Erlendsdóttir leikur á píanó. Útgefið á plötunni Les saisons ; Petites pièces 1997.
Haustvísur til Máríu eftir Ingunni Bjarnadóttur í útsetningu Smára Ólasonar. Einar Ólafur Sveinsson orti ljóðið. Barbörukórinn syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar. Einsöngvari er Margrét Árnadóttir. Útgefið á plötunni Syngið Drottni nýjan söng / Barbörukórinn árið 2012.
- Endurflutt

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Við lok 18. aldar var ástand lands og þjóðar með versta móti en jafnframt var að hefjast margvíslegt umbótastarf. Embættismenn ræddu landsins gagn og nauðsynjar, skáldin kváðu kvæði og athyglin beindist ekki síst að Reykjavík. Var hinn nýi höfuðstaður framtíðin eða einskær "saurvilpa". Lesið er úr bók Þóris Óskarssonar, Svipum brotanna, ævisögu Bjarna Thorarensen.

Útvarpsfréttir.

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.



Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.

Útvarpsfréttir kl. 11:00 sun.

Útvarpsfréttir.

Gísli Marteinn spilar tónlist og spjallar við gest sinn.

Útvarpsfréttir.

Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Lagalistinn:
QUEENS OF THE STONE AGE Insignificant Other
STELLA LEFTY Boston
MICHIGANDER Freaking Out
WARMLAND Violet Dreams
MAGNÚS OG JÓHANN Í timburhúsi við malargötu
Baksýnisspegilinn: Bonnie Tyler – Total Eclipse of the Heart
KRISTMUNDUR AXEL Bakkus
TINA DICO & EMILÍANA TORRINI This Fire!
ANDERSON .PAAK A Good Day
Topp tíu:
10. KINGS OF LEON - My Whole World
9. ARON CAN - Fæddur til þess að vera þinn
8. THE GAME - Love It or Hate It
7. ÁSGEIR TRAUSTI - Hunter
6. TOVE LO & STROMAE - Des fleurs x stromae
5. ARIANA GRANDE - petal
4. TEITUR MAGNÚSSON - Askur
Spákúlan: Arya Starr & ZAYN - Heaven baby
3. JÓNFRÍ & LÚPÍNA - Endalaus framtíð
2. JOHNNY MARR - It's Time
1. FRIÐRIK DÓR & SINFONIANORD - Hvað er það versta sem gæti gerst?
- Endurflutt