Heilabrot

Geðrofssjúkdómar

Hver er munurinn á rétthugmyndum og ranghugmyndum? Þrír af hverjum hundrað einstaklingum fara í geðrof um ævina. Geðrofssjúkdómar eru flóknir og fjölbreyttir en undir þá skilgreiningu falla til dæmis geðklofi og geðhvörf. Stelpurnar ræða við fjóra einstaklinga sem eiga það sameiginlegt hafa farið í geðrof, sérfræðinga og kíkja svo í innlit/útlit á Kleppi.

Frumsýnt

24. okt. 2019

Aðgengilegt til

19. sept. 2029
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Heilabrot

Heilabrot

Þáttaröð í sex hlutum þar sem Steiney Skúladóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir kryfja til mergjar geðheilsu og greiningu á andlegri vanheilsu ungs fólks, en kvíði og aðrir andlegir kvillar eru sívaxandi vandamál. Í þáttunum er fjallað um nokkra tiltekna kvilla, meðferð og mögulegar úrlausnir, algengar mýtur og rætt við fólk sem greinst hefur með geðröskun, aðstandendur og fagfólk. Þættirnir eru sjálfstætt framhald Edduverðlaunaþáttaraðarinnar Framapots. Leikstjóri: Arnór Pálmi Arnarsson. Framleitt af Sagafilm.

Þættir

,