Heilabrot

Árátta og þráhyggja

Er ekki bara fínt vera með smá OCD? Í þessum þætti er fjallað um áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD. Þekkingarleysi einkennir umræðu um röskunina, en hún er mun fjölbreyttar og flóknari en menn virðast halda. Við heyrum ótrúlegar sögur af lífinu með áráttu- og þráhyggjuröskun og leiðréttum algengar mýtur um sjúkdóminn.

Frumsýnt

3. okt. 2019

Aðgengilegt til

19. sept. 2029
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Heilabrot

Heilabrot

Þáttaröð í sex hlutum þar sem Steiney Skúladóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir kryfja til mergjar geðheilsu og greiningu á andlegri vanheilsu ungs fólks, en kvíði og aðrir andlegir kvillar eru sívaxandi vandamál. Í þáttunum er fjallað um nokkra tiltekna kvilla, meðferð og mögulegar úrlausnir, algengar mýtur og rætt við fólk sem greinst hefur með geðröskun, aðstandendur og fagfólk. Þættirnir eru sjálfstætt framhald Edduverðlaunaþáttaraðarinnar Framapots. Leikstjóri: Arnór Pálmi Arnarsson. Framleitt af Sagafilm.

,