20. september 2024
Gestir kvöldsins eru forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Bergur Ebbi Benediktsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson.
Gestir þáttarins eru Jón Gnarr, Vala Kristín Eiríksdóttir og Björg Magnúsdóttir.
Festival fólksins fjallar um ástina.
Margir óvæntir gestir kíkja í heimsókn.
Floni flytur blöndu af lögunum Þráhyggja og Svefnlaus í lok þáttar.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.