Birta og Bárður þurfa að hætta með Stundina okkar því að Bárður þarf að snúa heim til Súper að sinna störfum sínum sem ríkisarftaki og Birtu býðst að takast á við ný verkefni í Afríku. En til að valda krökkunum ekki vonbrigðum ákveða þau að fjölfalda sig sjálf og láta afritin taka við þættinum. Til að gera þetta hafa þau samband við Georg og Hallgerði, heimsfrægu vísindamennina sem öðru hvoru birtast í þættinum. Eitthvað mistekst áætlunin og afritin reynast vera mjög gölluð og það sem verra er Dans Hans lendir óvart í vélinni og þau ná ekki að tortíma þeim fjölmörgu afritum sem munu rangla um ganga RÚV um ókomin ár. Drekinn Dolli og rottan Rabbi fylgjast svo með ósköpunum ofan af ljósalofti og lítast ekkert á blikuna.
Brúðustjórn og leikur allra persónanna eru í höndum Jóhanns G. Jóhannssonar og Þóru Sigurðardóttur.