Leikur að læra
Loft snýr endurnært heim frá Satúrnusi, Tenerife veðurguðanna, en afslöppunin endist ekki lengi. Áróra vill vita allt um leikhús og fær að skyggnast á bak við tjöldin. Á meðan kveðja…
Loft veiðir dularfullt flöskuskeyti sem sendir þau Sjón á vit ævintýranna. Hvað leynist á eyjunni – gull, silfur eða kannski krækiber? Á meðan brettir Áróra upp ermarnar á keramíkverkstæði.

Elsti sjónvarpsþáttur landsins snýr aftur með ný ævintýri!
Áróra heldur áfram að kanna heiminn og takast á við ný verkefni. Þegar Máni og fleiri vinir flytja burt tekur nýr kafli við og Áróra kynnist nýjum krökkum í sumarbúðunum. Með Loft og Sjón sér við hlið uppgötvar hún að ný ævintýri bíða alltaf handan við hornið.