Máni er strandaglópur í Ástralíu og Loft svarar ekki kallinu. Krakkarnir reyna að ná sambandi með því að mynda risastór skilaboð á jörðinni. Áróra leitar til Lalla töframanns og lærir nokkur töfrabrögð og þá hefst kapphlaup við tímann um að finna Mána í myrkrinu.