Aðför að landsbyggðinni?
Hallar á landsbyggðina í verkum ríkisstjórnarinnar? Borið hefur á óánægju á landsbyggðunum með ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og jafnvel talað um aðför í því sambandi. Sem dæmi…
Hallar á landsbyggðina í verkum ríkisstjórnarinnar? Borið hefur á óánægju á landsbyggðunum með ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og jafnvel talað um aðför í því sambandi. Sem dæmi eru nefnd breytingar á Loftbrú, hækkun veiði- og kílómetragjalds, náttúru- og vinnviðagjald, sameining lögregluembætta og fleira. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, Dagur B. Eggertsson, varaformaður fjárlaganefndar, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði, fara yfir stöðuna í Silfrinu í kvöld.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.