Rokkland

Ragga

Borgarlistamaður 2025 Ragga Gísla er gestur Rokklands þessa vikuna.

Ragga úr Grýlunum og Stuðmönnum sem er búin gleðja okkur Íslendinga með söng og músík og frumleigheitum ýmiskonar. Og Ragga á sér svo margar hliðar en hún er alltaf í tengingu við sjálfa sig. Hún veit hvað hún vill og er með stíl sem hefur einnkennt hana í áratugi.

Ragga er söngkona/tónlistarmaður/tónmenntakennari/Stuðmaður/tónskáld/Grýla og svo margt fleira.

Ragga er fyrirmynd kvenna í músík og kvenna almennt - hún stofnaði fyrstu kvennahljómsveitina á Íslandi og hún er mikill jafnréttissinni.

Rokkland vikunnar er RögguRokkland!

Birt

15. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,