Þáttur 6 af 6
Í þættinum ræðir Jón Ársæll við Sigrúnu Finnbogadóttur og Einar Zeppelín Hildarson. Sigrún veiktist af geðklofa aðeins 25 ára gömul, skömmu eftir að hún hafði eignast yngri dóttur…
Viðmælendur Jóns Ársæls að þessu sinni hafa allir átt við geðsjúkdóma að stríða. Fjóla Kristín Ólafardóttir átti erfiða æsku í Grindavík þar sem hún var miðpunktur forræðisdeilu en hún hefur náð bata þrátt fyrir mótlæti af ýmsu tagi. Árni Steingrímsson, gítarleikari, hefur strítt við depurð og uppburðarleysi frá því hann var lítill drengur og rekur í þættinum stórmerkilega sögu sína. Bergþór Grétar Böðvarsson á sér einnig mikla sögu - en hann dvaldi lengi á geðdeildum, mikið veikur, en vinnur nú við að aðstoða aðra.

Jón Ársæll Þórðarson ræðir við fólk sem á við geðrænan vanda að stríða. Dagskrárgerð: Steingrímur Jón Þórðarson.