Náttúran kallar

5. Hafnir

Helga Björg Ingimarsdóttir býr á bænum Höfnum, nyrst á Skaga. Bærinn stendur við ysta haf og er jörðin rík af fuglalífi og sel, sérkennilegum klettamyndunum og náttúrufegurð. Helga Björg segir náttúruna vera ástæðuna fyrir því hún settist þarna að. Auk þess er náttúrugimsteinn á landareigninni þar sem hún getur setið tímunum saman og hlustað á fuglana og öldugjálfrið. Þá fer Lára með bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard um Hafnir.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

29. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Náttúran kallar

Nýir íslenskir heimildarþættir eftir Láru Zulima Ómarsdóttur. Hvernig er búa í nánum tengslum við náttúruna? Hvað er það í náttúrunni sem kallar svo sterkt á suma? Lára kynnist viðmælendum sínum og fer með þeim á þeirra uppáhaldsstaði, þar á meðal leynistaði sem fáir þekkja. Hún sýnir svo bandaríska ljósmyndaranum og ævintýramanninum Chris Burkard þessar einstöku náttúrugersemar, en hann sérhæfir sig í ljósmyndun á köldum slóðum. Framleiðsla: Zulima ehf.

Þættir

,