Við hófum daginn á því að taka stöðuna hjá Almannavörnum vegna gossins á Reykjanesskaga. Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri Almannavarna kom til okkar.
Ekkert eftirlit er með því hvort handhafar stæðiskorta fyrir hreyfihamlað fólk séu rukkaðir fyrir að leggja í einkareknum bílastæðahúsum. Í umferðarlögum segir að handhafa stæðiskorts sé ?heimilt að leggja ökutæki í gjaldskylt bifreiðastæði án sérstakrar greiðslu?. Innviðaráðuneytið heldur enga skrá yfir gjaldskyld bílastæði og hvorki ráðherra né undirstofnanir hafi eftirlitsheimildir með einkaaðilum sem reka slík bílastæði. Til að ræða þetta komu til okkar Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands og Bergur Þorri Benjamínsson formaður málefnahóps um aðgengi og verkefnastjóri hjá ÖBÍ
Svo ætlum við aðeins að spá í sumarfríi barnanna en foreldrar eru margir að verða uppiskroppa með hugmyndir um hvernig eigi að verja sumarfrísdögunum. Nei ég segi svona. Við ræddum öryggi og heilsu barna í sumarfríinu við Helgu Maríu Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðing á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna var gestur þáttarins. Við ræddum vatnsbúskapinn og stöðuna á borholum Veitna vegna skjálftavirkninnar á Reykjanesskaga undanfarna daga. Í kjölfar stærsta skjálftans í aðdraganda gossins, sem mældist 5,2, hefur grugg aukist í vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni.
Og í lok þáttar kom Sævar Helgi Bragason til okkar eins og alla jafna annan hvern þriðjudag. Hann talaði við okkur um sólina og hættur af henni meðal annars.
Tónlist
Björgvin Halldórsson, Friðrik Dór Jónsson - Dagar og nætur.
KLARA ELIAS - Nýjan stað.
FUN LOVIN' CRIMINALS - Scooby Snacks.
SIGRÚN STELLA - My Crazy Heart.
U2 - Stay (Faraway So Close).
MUGISON - Stóra stóra ást.
TRAIN - Drops of Jupiter.
Spandau Ballet - Gold.