Miðstöðin

Leyft öllum aldurshópum

Digger og Widow's Bay rýnd, staða tónlistarmyndbandsins og Önnur mál

Ein umtalaðasta kvikmynd ársins, Digger, verður krufin af kvikmyndagagnrýnendum Miðstöðvarinnar sem að þessu sinni eru Hugleikur Dagsson og Brynja Hjálmsdóttir. Þá fjalla þau einnig um þættina Widow's Bay á streymisveitunni Apple TV+ sem nú er loksins fáanleg á Íslandi.

Er tónlistarmyndbandið dautt? Við könnum stöðu tónlistarmyndbandsins í nútímanum þegar sjónvarpsstöðvar á borð við MTV og Popp Tíví eru þagnaðar.

Vinkonurnar og hlaðvarpsstjórendurnir Nadine Guðrún Yaghi og Þórhildur Þorkelsdóttir koma og segja frá Eftirmálum og Öðrum málum. Þá taka þær þátt í spurningakeppninni og mæla með efni sem þær eru að horfa eða hlusta á.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Miðstöðin

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.

Þættir

,