Miðstöðin

GusGus, raunveruleikaþættir og Bríet

Í Miðstöðinni þessu sinni förum við í stúdíó 12 með GusGus sem ætla halda risatónleika næstu helgi. Hljómsveitin er komin á fertugsaldurinn en hefur aldrei verið sprækari.

Svo dýfum við tánum í heim raunveruleikaþáttanna sem njóta mikilla vinsælda hér á landi. Hvað er helst og heitast í þessum heimi? Því svara Birta Líf og Elín Stefáns.

Í lok þáttar förum við með Bríeti aftur í tímann. Fyrir 10 árum var hún 17 ára með stóra drauma og spilaði í hverri viku á Íslenska barnum. Við rifjum þennan tíma upp og fáum hana til finna ræturnar og taka lagið þar sem þetta byrjaði allt.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

28. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Miðstöðin

Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.

Þættir

,