Þáttur 1 af 6
Í þættinum tökum við meðal annars opinskátt viðtal við athafnamanninn Skúla Mogensen í Hvammsvík, tökum lagið með Ágústu Evu Erlendsdóttur og förum út að borða á Jóni Forseta.
Að þessu sinni tökum við meðal annars hús Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, smökkum matinn í Sjávarpakkhúsinu í Stykkishólmi og látum spá fyrir okkur í Spákonuhofinu á Skagaströnd. Við kíkjum einnig í Gerðarsafn í Kópavogi þar sem haldin var yfirlitssýning á verkum listakonunnar Guðrúnar Bergsdóttur.

Fimmtánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Umsjón: Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.