Mikil óvissa er um friðarviðræður Bandaríkjanna og Íran sem fara áttu fram í Islamabad í Pakistan í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu AP er varaforseti Bandaríkjanna, sem átti að leiða viðræðurnar, enn í Washington.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar eldur kviknaði í kjallaraíbúð fjölbýlishúss í Snælandshverfi í Kópavogi síðdegis í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús.
Forsætisráðherra segir allt tal um að aðildarviðræður snúist um aðlögun að regluverki Evrópusambandsins þvælu og kallar eftir dæmum um slíka aðlögun frá fyrri aðildarviðræðum.
Nýjar strand-ratsjár Landhelgisgæslunnar, sem teknar verða í notkun í sumar, stórauka getuna til að fylgjast með umferð í hafi í kringum landið, einkum þeim sem reyna að leynast, segir yfirmaður greiningardeildar Ríkislögreglustjóra.
Upplýsingar um 45 börn sem flutt voru með valdi frá hernumdum svæðum í Úkraínu fundust í samræmdu rannsóknarátaki á vegum Europol í Hollandi í liðinni viku.