
Kiljan
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Gyrðir Elíasson er gestur í Kilju kvöldsins. Hann ræðir við okkur um tvær bækur sínar sem hafa komið út á þessu ári, Gistiheimilið í Beroun, sem er nýtt smásagnasafn, og Ótíð í víti sem kom út síðastliðið vor og fjallar um baráttu hans við geðsjúkdóm. Guðrún Eva Mínervudóttir segir frá bók sinni sem nefnist Ljósfaðir - það er söguleg skáldsaga sem byggir á forföður hennar sem tók á móti börnum og rak merkilega sjúkrastofnun í Skagafirði. Hringvegurinn er bók sem fjallar um þennan sögulega veg sem opnaðist fyrir landsmenn árið 1974 með brúun Skeiðarár. Höfundurinn Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur fræðir okkur um þessi miklu tímamót. Loks kemur í þáttinn Gunnar Birgisson sem segir frá teiknimyndasögu sem hann hefur samið ásamt Fannari Gilbertssyni og nefnist Huldufólk - þetta er saga fyrir fullorðið fólk og segir frá Íslandi eftir að samfélagið hefur hrunið og óöld ríkir. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Míkadó eftir Gerði Kristnýju, Öld ímyndunaraflsins eftir Berg Ebba og Tvo mánuði á Íslandi en það er ferðabók sem ungur blaðamaður, Max Nordau, ritaði þegar hann kom hingað til lands á þúsund ára afmæli Íslandsbyggðar 1874. Segir þar margt misjafnt af Íslandi og Íslendingum.

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.