Aldrei fór ég suður, GDRN og JóiPé
Í lokaþætti vetrarins kíkti Katla vestur á Ísafjörð í veðurblíðuna en þar fer hátíðin Aldrei fór ég suður fram á hverju ári. Þar hitti hún GDRN og spurði gesti hátíðarinnar um tískuna.
Í þessum þætti heimsækjum við leikhópa í nokkrum framhaldsskólum sem eru í óða önn að leggja lokahönd á uppsetningar leikrita. Þau kasta boltanum sín á milli og hafa misfagra hluti að segja um leikrit hinna skólanna. Daníel fer á stúfana og hittir Völu Kristínu sem sýnir okkur króka og kima Þjóðleikhússins en hún fer með hlutverk Önnu í leikritinu Frost.

Hvað er í gangi? Hressandi þáttur þar sem Daníel og Katla hitta skemmtilegt fólk, kíkja út á lífið og kryfja ýmis mál. Umsjón: Daníel Óskar Jóhannesson og Katla Vigdís Vernharðsdóttir.