Heilabrot

Átraskanir

Átraskanir eru mikið samfélagsmein og jafnframt geðröskun sem oft er erfitt bera kennsl á. Samfélagsmiðlar, staðalímyndir og útlitsdýrkun ýta undir brenglaða sjálfsmynd ungs fólks og átraskanir virðast verða æ algengari í hinum vestræna heimi. Stelpurnar kanna málið í þessum þætti, þar sem Sigurlaug Sara heimsækir sálfræðing, þær hitta aðgerðateymi Hvíta bandsins og halda matarboð með ungu fólki sem hefur glímt við átröskun.

Frumsýnt

17. okt. 2019

Aðgengilegt til

19. sept. 2029
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Heilabrot

Heilabrot

Þáttaröð í sex hlutum þar sem Steiney Skúladóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir kryfja til mergjar geðheilsu og greiningu á andlegri vanheilsu ungs fólks, en kvíði og aðrir andlegir kvillar eru sívaxandi vandamál. Í þáttunum er fjallað um nokkra tiltekna kvilla, meðferð og mögulegar úrlausnir, algengar mýtur og rætt við fólk sem greinst hefur með geðröskun, aðstandendur og fagfólk. Þættirnir eru sjálfstætt framhald Edduverðlaunaþáttaraðarinnar Framapots. Leikstjóri: Arnór Pálmi Arnarsson. Framleitt af Sagafilm.

Þættir

,