Forsætisráðherra Pakistan segir líkur á að friðarsamningur milli Bandaríkjanna og Írans verði undirritaður á næsta sólarhringnum. Ísraelsher hefur drepið minnst fimm í Líbanon í morgun og skipað íbúum tuttugu bæja og þorpa að flýja.
Frumvarp um lagareldi verður að líkindum ekki afgreitt á þessu þingi. Stefnt er að þinglokum í næstu viku. Stjórnarandstaðan vill að þing komi saman á ný í ágúst í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við ESB.
Formaður Samtaka atvinnulífsins segir óraunhæft að leysa verðbólguna með því að fyriræki landsins lækki eða frysti verð líkt og félagsmálaráðherra lagði til í gær. Hann kallar þess í stað eftir samhentu átaki.
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir dyraverði sem starfi á skemmtistöðum án starfsleyfis oft vinna fyrir stór fyrirtæki. Lögregla lokaði þremur skemmtistöðum í nótt.
Tvö gervigreindarlíkön fyrirtækisins Anthropic hafa verið tekin úr notkun eftir að bandarísk stjórnvöld sögðu að þau ógnuðu þjóðaröryggi.
Kuðungurinn fjörudoppa hefur fundist lifandi á Íslandi í fyrsta sinn. Eina fjörudoppan sem hafði fundist hér fram að því var yfir milljón ára gömul.
Stærðarinnar góðgerðargolfmót stendur nú yfir í Mosfellsbæ. Þar er safnað fyrir sumarbúðirnar Reykjadal. Við lítum við á mótinu í fréttatímanum.
Jón Þór Hauksson er tekinn við sem nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta. Knattspyrnudeild Stjörnunnar og Jökull Elísabetarson komust að samkomilagi um starfslok Jökuls í gær.