Kona sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni á hóteli í miðborg Reykjavíkur segir það hafa verið gert með hennar samþykki. Aðalmeðferð í málinu hófst í morgun.
Samkomulag milli Bandaríkjanna og Írans um stríðslok gæti náðst fyrir G7-fundinn á mánudag, að sögn bandarískra fjölmiðla. Íranski ríkisfjölmiðillinn hefur birt drög að samkomulagi þar sem flestar kröfur Írana virðast uppfylltar.
Grindvíkingar eru saman komnir á Austurvelli. Þeir vilja vekja athygli á óvissu um framtíð Grindavíkur.
Veiðiheimildir ýsu dragast saman um 20% á næsta fiskveiðiári, samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Þorskveiðiheimildir standa í stað en loðnuveiði getur náð fyrir hæðum.
Á næstu vikum ákveður stýrihópur um hagræðingu í borgarkerfinu hvaða verkefni og stöðugildi verða lögð niður í Ráðhúsinu. Formaður hópsins segir að gengið verði hratt til verks.
Eignir Elons Musk eru metnar á þúsund milljarða bandaríkjadala. Hann samkvæmt því ríkastur allra.
Hiti gæti náð tuttugu stigum á landinu í dag.
Suður-Kórea vann Tékkland 2-1 á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í nótt.